Morgunblaðið - 24.07.2019, Side 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2019
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Fjölbreytt dagskrá verður á Reyk-
holtshátíð sem haldin verður næstu
helgi, föstudaginn 26. júlí til sunnu-
dagsins 28. júlí. Venju samkvæmt
verða fernir tónleikar á dagskrá;
opnunartónleikar á föstudagskvöldi,
tvennir á laugardegi og loks loka-
tónleikar á
sunnudeginum.
Að sögn listræns
stjórnanda hátíð-
arinnar, Sigur-
geirs Agnars-
sonar
sellóleikara, er
allt frá barokki til
verka sem eru 10
til 15 ára gömul á
efnisskrá
tónlistar-
hátíðarinnar. Meginþorrann af verk-
unum segir hann þó vera klassísk og
rómantísk verk. Sigurgeir segir val
á tónverkum fyrir hátíðina yfirleitt
samtal milli sín og þeirra sem munu
syngja þar eða spila. „Ég er langt
því frá að vera einráður en kem
kannski með fyrstu hugmyndir.“
Þess má einnig geta að fyrirlestur á
vegum Snorrastofu er fastur liður á
dagskrá hátíðarinnar og verður
hann haldinn kl. 13 á laugardag.
Yngri kynslóð söngvara
Sigurgeir spilar sjálfur á hátíðinni
ásamt fiðluleikurunum Auði Haf-
steinsdóttur og Helgu Þóru Björg-
vinsdóttur, Bryndísi Höllu Gylfa-
dóttur sellóleikara og hollenska
lágfiðluleikaranum Önnu Magda-
lenu den Herder sem kemur fram í
fyrsta sinn á hátíðinni. Að sögn Sig-
urgeirs hafa Auður og Bryndís Halla
oft tekið þátt í Reykholtshátíð, sér-
staklega fyrstu árin. „Þær hafa hins
vegar ekki komið í nokkur ár og því
verður gaman að bjóða þær vel-
komnar aftur,“ segir hann og bætir
við að þau séu mjög spennt að fá
hina hollensku Önnu Magdalenu den
Herder til liðs við sig.
„Í ár einblínum við á yngri kyn-
slóð íslenskra söngvara,“ segir Sig-
urgeir og nefnir að barítónsöngv-
arinn Oddur Arnþór Jónsson verði í
stóru hlutverki. Hann hlaut titilinn
Söngvari ársins á Íslensku tónlistar-
verðlaununum í ár. „Hann verður í
aðalhlutverki á opnunartónleik-
unum. Þar mun hann flytja Svana-
söng Schuberts ásamt Önnu Guð-
nýju Guðmundsdóttur píanóleikara
auk fleiri verka. Á lokatónleikunum
á sunnudaginn koma söngkonurnar
Hrafnhildur Árnadóttir Hafstað og
Guja Sandholt fram ásamt Oddi.
„Þetta eru allt söngvarar í yngri
kantinum og það verður gaman að
heyra þau spreyta sig,“ segir Sig-
urgeir.
Síðdegis á laugardag heldur
kvennakórinn Vox feminae tónleika.
Það verður í fyrsta sinn sem kvenna-
kór kemur fram á Reykholtshátíð.
„Það var tími til kominn,“ segir Sig-
urgeir. Söngkonan Hrafnhildur
verður því í tvískiptu hlutverki á há-
tíðinni; annars vegar syngur hún á
lokatónleikunum á sunnudag og hins
vegar stýrir hún Vox feminae á tón-
leikum þeirra. Efnisskrá kórsins er
að sögn Sigurgeirs aðallega sett
saman af íslenskum lögum sem
mörg hver eru mjög þekkt, sum í
nýjum útsetningum.
„Getur ekki orðið betra“
Kammertónleikar verða haldnir á
laugardagskvöld þar sem flutt verð-
ur úrval verka eftir höfunda sem
Sigurgeir segir ekki ýkja þekkta.
„Þeir eiga engu að síður skilið að
vera fluttir. Þetta eru mjög falleg
verk sem eru ekki svo þekkt, m.a.
sellókvartett eftir rússneska tón-
skáldið Anton Arensky.“ Kvartett
Arenskys er óhefðbundinn að því
leyti að gert er ráð fyrir tveimur
sellóum, einni fiðlu og einni lágfiðlu
en ekki hinum hefðbundna strengja-
kvartett sem fólk á að venjast með
einu sellói, tveimur fiðlum og einni
lágfiðlu. „Það getur eiginlega ekki
orðið betra,“ segir sellóleikarinn og
hlær.
Á lokatónleikunum á sunnudag
verður fjölbreytt dagskrá. Þar verð-
ur m.a. flutt örópera sem hefur verið
kölluð stysta ópera í heimi og segir
sögu Haralds konungs harðráða.
Sigurgeir segir hana vera 10 mín-
útur að lengd en þó í þremur þáttum
og með sérstöku niðurlagi. „Hún er
eftir breska tónskáldið Judith Weir
og er söguþráðurinn fenginn úr
Heimskringlu, svo það má segja að
þessi ópera sé að einhverju leyti að
koma heim. Okkur fannst vel við
hæfi að flytja hana í Reykholti þar
sem Snorri Sturluson bjó lengi,“
segir hann.
„Mjög áhugaverð músík“
„Síðasta verkið á efnisskránni er
ljóðaflokkurinn Heimskringla eftir
Tryggva M. Baldvinsson tónskáld
við ljóð Þórarins Eldjárns úr sam-
nefndri bók. Þórarinn samdi ljóða-
bókina Heimskringlu sem aðallega
var hugsuð fyrir börn. Tryggvi las
þessa bók fyrir börnin sín og féll fyr-
ir ljóðunum sem eru öll full af húm-
or, glettni og kaldhæðni og jafnvel
svolítið absúrd. Tónskáldið tók sig til
og úr varð ellefu laga bálkur.
Tryggvi beitir fyrir sig alls konar stíl
og tækni til þess að ná fram inni-
haldi ljóðanna. Þetta er mjög áhuga-
verð músík og ég get alveg lofað því
að fólk mun ganga út með bros á
vör.“
Sigurgeir á í erfiðleikum með að
segja til um hvað stendur upp úr á
hátíðinni í ár. „Þegar maður er bú-
inn að vera svona flæktur í að skipu-
leggja þetta þá væri það svolítið eins
og að gera upp á milli barnanna
sinna.“ Allir tónleikarnir fara fram í
Reykholtskirkju, dagskrána má
kynna sér á reykholtshatid.is og
miðasala fer fram á midi.is.
„Fólk mun ganga út með bros á vör“
Reykholtshátíð haldin um helgina Fjölbreytt dagskrá á fernum tónleikum Áhersla á yngri
kynslóð söngvara, kvennakór í fyrsta sinn og Heimskringla á efnisskránni segir listrænn stjórnandi
Kvennakór Vox feminae er fyrsti kvennakórinn sem kemur fram á Reykholtshátíð. Á efnisskrá tónleika þeirra, sem
haldnir verða á laugardag kl. 16, verða ýmis þekkt verk eftir íslensk tónskáld, sum í nýjum útsetningum.
Raddir Hrafnhildur Árnadóttir Hafstað sópran, Guja Sandholt mezzósópran og Oddur Arnþór Jónsson barítón.
Sigurgeir
Agnarsson
Fjórði fasi Marvel-ofurhetjukvik-
myndanna sem ætlunin er að frum-
sýna á næstu árum býður upp á
meiri fjölbreytni í persónum ofur-
hetjusagnabálksins en hingað til
hefur viðgengist. Kevin Feige, yfir-
maður Marvel Studios, kynnti á ný-
afstaðinni teiknimyndahátíð í San
Diego þær tíu kvikmyndir sem eru í
eða fara senn í framleiðslu. Líkt og
greint var frá í blaðinu í gær er von
á fyrstu ofurhetjumyndinni þar sem
Bandaríkjamaður af asískum upp-
runa fer með aðalhlutverkið, þ.e. í
myndinni Shang-Chi and the Leg-
end of the Ten Rings.
Í frétt á vef BBC kemur fram að
Lauren Ridloff muni leika Makkari,
sem er fyrsta heyrnarlausa ofur-
hetjan, í Eternals. Einnig kemur
fram að valkyrjan sem Tessa
Thompson leikur í Thor: Love and
Thunder verði fyrsta ofurhetjan
sem opinberlega er hinsegin.
Þótt margir aðdáendur fagni
auknum fjölbreytileika í persónu-
galleríi Marvels finnst öðrum þetta
koma heldur seint í ferlinu og vera
til marks um að stjórnendur hjá
Marvel hafi í reynd ekki verið til-
búnir til að taka neina fjárhagslega
áhættu.
Fyrsti fasi Marvel-ofurhetju-
myndanna hófst með Iron Man 2008
og nær til þeirra mynda sem gerðar
voru fram til 2012. Annar fasi nær
frá 2013 til 2015 og þriðji fasi frá
2016 til 2019, en þeim fasa lauk með
Spider-Man: Far From Home. Alls
eru myndirnar orðnar 23 frá 2008.
Boða aukna fjölbreytni í hópi ofurhetja
Lauren Ridloff Tessa Thompson
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
UMFERÐAREYJAR
Sérlausnir fyrir sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki
Henta vel til að stýra umferð, þrengja
götur og aðskilja akbrautir.
Til eru margar tegundir af skiltum,
skiltabogum og tengistykkjum sem
passa á umferðareyjarnar.