Morgunblaðið - 29.07.2019, Side 1
M Á N U D A G U R 2 9. J Ú L Í 2 0 1 9
Stofnað 1913 176. tölublað 107. árgangur
ORKUNÝTING
FER SAMAN VIÐ
FERÐAÞJÓNUSTU
EINLEIKARAR
REYNA AÐ
TOPPA SIG
ÍSLENDINGAR
GETA STUNDUM
VERIÐ DÓNAR
ACT ALONE Í 16. SINN 28 MARGRÉT RÁÐGJAFI 12EVA ODDVITI 6
Hálfur milljarður tapast
Málum vegna fjárfestasvika hefur fjölgað um 77% á árinu, miðað við allt árið í
fyrra Svindlinu beint með einbeittum hætti að fólki sem er í viðkvæmri stöðu
milljarði króna með þessum hætti.
Málafjöldi vegna fjárfestasvika hefur
nú þegar aukist um 77% frá fyrra ári,
þótt árið 2019 sé aðeins rétt rúmlega
hálfnað, að því er fram kemur í sam-
antekt Landsbankans.
G. Jökull Gíslason, rannsóknarlög-
reglumaður hjá embætti ríkislög-
reglustjóra, segir að svona svindli sé
beint með einbeittum hætti að fólki í
viðkvæmri stöðu. Þess séu dæmi að
reynt fólk í viðskiptalífinu láti glepjast
af gylliboðum og að glöp þau megi
rekja beint til nýlegs áfalls í lífi þeirra.
Þrjótarnir vita að þá er best að láta til
skarar skríða.
Að sögn Landsbankans eru þessi
fjárfestasvik orðin algengustu svikin
gagnvart einstaklingum hér á landi og
svonefndar fyrirmælafalsanir enn þá
algengustu svikatilraunirnar gagn-
vart fyrirtækjum.
Snorri Másson
snorrim@mbl.is
Fjárfestasvikum er beint að Íslend-
ingum á netinu í auknum mæli. Eru
boðin hlutabréf í fyrirtækjum í örum
vexti, fyrirtækjum sem oftar en ekki
eru ekki til. Þegar fólk hefur lagt inn á
erlendan reikning er skaðinn oft skeð-
ur og féð óafturkræft.
Er talið að á síðustu tólf mánuðum
hafi Íslendingar tapað hátt í hálfum
Alvarlegt vandamál
» G. Jökull Gíslason segir
netsvikin orðin að alvarlegu
vandamáli.
» Erfitt getur reynst að end-
urheimta fé sem tapast í hend-
ur netglæpamanna.
MHerja á fólk... »14
200 kílómetra malarhjólreiðakeppnin The Rift
var haldin í fyrsta sinn um helgina. Áskoranir
keppenda voru af fjölbreyttum toga, meðal ann-
ars óbrúaðar ár eins og þessi sem hjólreiða-
kempan María Ögn Guðmundsdóttir fann við
Heklurætur og fór létt með að svífa yfir. Hún
lenti í öðru sæti á eftir Alison Tetrick. Í karla-
flokki sigraði Colin Arturo Strickland. 250
manns skráðu sig til leiks, flestir þeirra erlendir.
Ljósmynd/Snorri Þór Tryggvason
Óbrúaðar ár keppendum Sprungunnar engin fyrirstaða
Skiptastjórar
þrotabús WOW
air eiga í við-
ræðum við inn-
lenda og erlenda
aðila um möguleg
kaup þeirra á
flugrekstr-
areignum WOW
air. Þetta stað-
festir Þorsteinn
Einarsson, annar
tveggja skiptastjóra, í samtali við
Morgunblaðið. Hann staðfestir jafn-
framt frétt blaðsins frá því á laug-
ardag um að samningi um kaup
Michele Ballarin og félags henni
tengdri á fyrrnefndum eignum hafi
verið rift. Segir hann talsverðan
áhuga á eignunum, ekki síst þeim
sem tengist viðhaldsmálum Airbus-
flugvéla en WOW air átti talsverðan
lager varahluta og búnaðar sem
tengdist viðhaldi flugflota félagsins.
Þorsteinn segir þau verðmæti vel
seljanleg á alþjóðlegum markaði og
að unnið sé að koma þeim í verð. »4
Viðræður
við fleiri
um WOW
Skiptastjóri stað-
festir riftun samnings
Þorsteinn
Einarsson
Fleiri hafa látist í flugslysum það
sem af er ári en bílslysum.
Flugmaður flugvélar sem hlekkt-
ist á við flugtak á Haukadalsflugvelli
á Rangárvöllum síðdegis á laugar-
dag var úrskurðaður látinn á vett-
vangi. Hann er sá fjórði sem týnir líf-
inu í flugslysi á þessu ári.
Þrír hafa látist í bílslysum á þessu
ári en leita þarf aftur til ársins 2014
til þess að finna jafn lága tölu látinna
í umferðarslysum á fyrstu sjö mán-
uðum ársins.
Að sögn Sævars Helga Lárusson-
ar, rannsóknarstjóra á umferðar-
sviði rannsóknarnefndar samgöngu-
slysa, er talan um bílslysin
óvenjulág. „Það hefur náttúrulega
verið unnið markvisst að umferðar-
öryggismálum á Íslandi í áratugi.
Vonandi þýðir þetta að sú vinna sé að
skila sér,“ segir Sævar. »2
Morgunblaðið/Hari
Haukadalsflugvöllur Mynd af vettvangi á Haukadalsflugvelli á Rangárvöllum þar sem banaslysið varð um helgina.
Fleiri látnir í flug-
slysum en bílslysum
„Þá voru þeir ekki ósvipaðir
sléttuúlfum, það var svo skrýtin ró
yfir þeim,“ segir Finnur Arnar Arn-
arson myndlistamaður sem varð
vitni að því sem hann kallar „skipu-
lagða aftöku“ tveggja hunda á
ófleygum álftarunga.
„Foreldrarnir urðu eftir grenj-
andi og kvakandi tímunum saman,
unginn þeirra dauður, einkason-
urinn,“ segir Finnur um eftirmála
árásarinnar.
„Þegar hundar fá að koma saman
tveir til þrír og leika lausum hala.
Þá kemur upp eitthvert hjarðeðli í
þeim,“ segir Guðbjörg Þorvarð-
ardóttir dýralæknir. Hún segir að
rólegustu hundar geti umturnast sé
þeim leyft að fara saman á flakk og
því sé varhugavert að þeir séu látn-
ir leika lausum hala. »10
Lausir hundar tættu
í sig álftarunga