Morgunblaðið - 29.07.2019, Blaðsíða 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚLÍ 2019
Dýrabær Smáralind, Kringlunni, Reykjanesbæ og Akranesi | Byko Selfossi
Fiskó Garðabæ | Heimkaup | Hundaheppni | Sími 511 2022 | dyrabaer.is
NÁTTÚRULEG INNIHALDSEFNI
bragðgott – hollt – næringarríkt
– fyrir dýrin þín
HANDBOLTI
HM U21 árs karla
Leikið á Spáni:
Undanúrslit:
Egyptaland – Frakkland ..................... 33:35
Portúgal – Króatía................................ 28:31
Keppni um 5.-8. sæti:
Noregur – Danmörk ............................ 34:40
Slóvenía – Túnis.................................... 31:27
Úrslitaleikur:
Frakkland – Króatía ............................ 28:23
Leikur um 3. sætið:
Egyptaland – Portúgal ........................ 37:27
Leikur um 5. sætið:
Danmörk – Slóvenía ............................. 34:26
Leikur um 7. sætið:
Túnis – Noregur ................................... 37:36
Ólympíuhátíð æskunnar
U17 ára karlar í Bakú:
Leikur um 5. sætið:
Ísland – Slóvenía .................................. 24:17
EM U18 karla
B-deild í Rúmeníu:
C-riðill:
Tékkland – Ísland............................... 103:65
Bosnía – Noregur ................................. 69:63
Ísrael – Lúxemborg ........................... 100:31
Ísland – Ísrael....................................... 53:97
Lúxemborg – Noregur......................... 42:67
Tékkland – Bosnía.............................. 112:68
Staðan: Tékkland 6, Ísrael 6, Bosnía 5,
Noregur 4, Ísland 3, Lúxemborg 3.
Ísland mætir Noregi í 4. og næstsíðustu
umferð á morgun og Lúxemborg á mið-
vikudaginn.
KÖRFUBOLTI
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Kórinn: HK – Stjarnan ........................ 19.15
Víkingsv.: Víkingur R. – Breiðablik.... 19.15
Í KVÖLD!
VESTURBÆR/
KÓPAVOGUR/AKUREYRI
Bjarni Helgason
Einar Sigtryggsson
Fylkir er komið úr fallsæti eftir 2:0-
sigur gegn KR í úrvalsdeild kvenna í
knattspyrnu, Pepsi Max-deildinni, á
Mestaravöllum í gær í 12. umferð
deildarinnar. Marija Radojicic skor-
aði bæði mörk Árbæinga hvort í sín-
um hálfleiknum.
Vesturbæingar voru sterkari í
leiknum og sköpuðu sér urmul tæki-
færa til þess að skora mörk. KR-liðið
fór hins vegar illa með hvert dauða-
færið á fætur öðru og það getur
reynst dýrt, sér í lagi þegar þú ert að
berjast fyrir lífi þínu í deildinni.
Fylkisliðið var stálheppið að sleppa
með þrjú stig úr Vesturbænum. Ra-
dojicic fékk þrjú færi í leiknum, skor-
aði úr tveimur þeirra og Fylkiskonur
geta þakkað Serbanum kærlega fyrir
að skjóta þeim upp í sjötta sæti deild-
arinnar.
Það er allt annað að sjá KR liðið
spila eftir þjálfaraskiptin en að sama
skapi verður liðið að nýta færin sín
betur. Vesturbæingum til happs þá
eru sex umferðir eftir af deildinni og
ef þær byrja að skora mörk þá ættu
áhyggjurnar að vera litlar í Vest-
urbænum. Fylkiskonur hafa loksins
náð að tengja saman tvo sigra í deild-
inni eftir langa bið. Liðið er hins veg-
ar hvergi nærri hólpið og leikmenn
liðsins, sem eiga það til að sofna á
verðinum, þurfa að halda einbeitingu
í 90. mínútur plús ef ekki á illa að fara
í haust. bjarnih@mbl.is
Of auðvelt hjá Breiðabliki
Breiðablik er komið í efsta sæti
deildarinnar eftir öruggan 5:2-sigur
gegn Keflavík á Kópavogsvelli.
Breiðablik byrjaði leikinn illa og
lenti undir eftir fimm mínútna leik en
það hafði engin áhrif á liðið. Um leið
og Blikastúlkur trekktu sig í gang
voru þær komnar yfir og það tók þær
ekki nema þrjár mínútur.
Keflavíkurliðið fór vel af stað og
átti fína spretti í upphafi fyrri hálf-
leiks og upphafi seinni hálfleiks. Liðið
var að reyna einhvers konar há-
pressu á meistarana, sem gekk ágæt-
lega á upphafsmínútum leiksins. Eft-
ir 25. mínútna leik var allt liðið hins
vegar sprungið og stelpurnar af
Reykjanesinu geta þakkað klaufa-
legu Breiðabliksliði fyrir það að leik-
urinn endaði ekki 15:2.
Það er eitt lið sem getur stoppað
Blika í sumar og það er Valur og
Kópavogsliðið virðist vera full-
komlega meðvitað um það. Þau lið
sem mæta í Kópavoginn og ætla að
fara sækja eitthvað eru hreinlega nið-
urlægð, líkt og Keflavík og ÍBV. Þá
virðist Kópavogsliðið vera í mun
betra formi en önnur minni lið í deild-
inni og í kvennadeildinni er það oft
úthaldið sem ræður úrslitum. Það var
aðdáunarvert að sjá nýliða Keflavík-
ur mæta í Kópavpoginn og reyna að
pressa eitt best spilandi lið landsins.
Ef eitthvað lið ætlar sér hins vegar að
fá stig á móti Val og Breiðabliki, en
ekki útreið, þá kann það eflaust betri
lukku að stýra, að múra bara fyrir
markið sitt og freista þess að beita
skyndisóknum. bjarnih@mbl.is
Línudans kveikti í Þór/KA
Eftir tvo tapleiki í röð komst lið
Þórs/KA aftur á sigurbraut á laug-
ardag. Lið ÍBV var í heimsókn á
Þórsvellinum og fékk skell. Þór/KA
vann 5:1 eftir markalausan fyrri hálf-
leik.
Úrslitin gefa ekki rétta mynd af
leiknum en Þór/KA nýtti færin sín
vel. Tveir leikmenn skoruðu sín
fyrstu mörk fyrir félagið, þær Agnes
Birta Stefánsdóttir og María Cat-
harina Ólafsdóttir Gros.
Heimakonur voru án margra lykil-
manna í leiknum en sýndu að án
þeirra er ýmislegt hægt. Liðið var
búið að spila sjö hálfleiki í röð án
marks en þegar stíflan loks brast þá
kom hreinlega markaflóð. Tvö fyrstu
mörk liðsins voru ansi skondin en þau
skoraði Hulda Ósk Jónsdóttir eftir að
hafa prjónað sig fram hjá varn-
armönnum eftir endalínunni.
Helsta ógn Eyjakvenna var í Cloé
Lacasse en rispur hennar ollu usla og
sköpuðu nokkur ágæt færi. Brenndu
Eyjakonur m.a. af víti eftir að Cloé
var felld og einnig var bjargað á línu
frá henni eftir að hún komst í gegn-
um alla varnarlínu heimakvenna.
Þór/KA virðist ætla að berjast fyrir
þriðja sætinu í deildinni en Eyjakon-
ur eru í stórhættu á að falla. Fall úr
deildinni yrðu skelfileg örlög fyrir
jafn öflugt lið og ÍBV. einar@ma.is
Fylkiskonur
sendu KR í
fallsæti
Breiðablik tyllti sér á toppinn
Þór/KA lék sér að ÍBV á Akureyri
Morgunblaðið/Hari
Inngrip Cecilía Rán Rúnarsdóttir markvörður Fylkis handsamar knöttinn.
1:0 Hulda Ósk Jónsdóttir 46.
2:0 Hulda Ósk Jónsdóttir 53.
2:1 Caroline Van Slambrouck 58.
3:1 Agnes Birta Stefánsdóttir 60.
4:1 María C. Ólafsdóttir Gros 82..
5:1 Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir 88.
I Gul spjöldKaren María (Þór/KA) 65.
Áhorfendur: 110.
ÞÓR/KA – ÍBV 5:1
M
Bryndís L. Hrafnkelsd. (Þór/KA)
Lára Einarsdóttir (Þór/KA)
Lára Kristín Pedersen (Þór/KA)
Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA)
Þórdís Hrönn Sigfúsd. (Þór/KA)
Caroline Van Slambrouck (ÍBV)
Cloé Lacasse (ÍBV)
Clara Sigurðardóttir (ÍBV)
Dómari: Arnar Ingvarsson, 7.
0:1 Marija Radojicic 11.
0:2 Marija Radojicic 80
I Gul spjöldHulda Hrund Arnarsdóttir
(Fylki), Betsy Hassett (KR).
MM
Marija Radojicic (Fylkir)
KR – FYLKIR 0:2
M
Betsy Hassett (KR)
Ásdís Karen Halldórsdóttir (KR)
Grace Maher (KR)
Gloria Douglas (KR)
Cecilia Rán Rúnarsdóttir (Fylki)
Berglind Rós Ágústsdóttir (Fylki)
Kyra Taylor (Fylki)
Stefanía Ragnarsdóttir (Fylki)
Dómari: Þórður Már Gylfason, 6.
0:1 Sophie Groff 6.
1:1 Alexandra Jóhannsdóttir 12.
2:1 Hildur Antonsdóttir 15.
3:1 Agla María Albertsdóttir 45.(v.)
4:1 Selma Sól Magnúsdóttir 77.
5:1 Alexandra Jóhannsdóttir 83.
5:2 Sophie Groff 89.(víti)
I Gul spjöldAgla María (Breiðabliki)
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson 7.
Áhorfendur: 287.
BREIÐABLIK – KEFLAVÍK 5:2
MM
Alexandra Jóhannsdóttir (Breið.)
Ásta Eir Árnadóttir (Breiðabliki)
M
Hildur Antonsdóttir (Breiðabliki)
Agla María Albertsdóttir (Breið.)
Andrea Rán Hauksdóttir (Breið.)
Sveindís Jane Jónsdóttir (Kefl.)
Katla María Þórðardóttir (Kefl.)
Aníta Lind Daníelsdóttir (Keflavík)
Aytac Sharifova (Keflavík)
Enska knattspyrnufélagið Liverpool
gekk í gær frá kaupunum á Harvey
Elliott frá Fulham en hann hann
skrifar undir fimm ára samning við
félagið. Kaupverðið á leikmanninum
hefur ekki verið gefið upp en það er
talið vera í kringum átta milljónir
punda. Elliott varð yngsti leikmað-
urinn til þess að spila í ensku úrvals-
deildinni á síðustu leiktíð, þá 16 ára
og 30 daga gamall. sport@mbl.is
Sá yngsti til
Liverpool