Morgunblaðið - 29.07.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚLÍ 2019
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Hágæða sláttutraktorar frá
40 ár
á Íslandi
Sterkir og
notendavænir
Hjólastillingar
Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 7.45-17.00, föstudaga kl. 7.45-16.00
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
SAMEINUÐ GÆÐI
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Vissulega fylgir virkjun Hvalár
að fórna þarf ósnortnu landi;
reyndar lítt grónu og hrjóstugu
svæði sem fáir höfðu farið um og
séð til skamms tíma,“ segir Eva
Sigurbjörnsdóttir, oddviti Árnes-
hrepps á Ströndum. „Styrkja þarf
orkubúskap á Vestfjörðum, bæði
auka framleiðsluna og koma á
hringtengingu rafmagnsflutninga.
Því segi ég að virkjun sé nauðsyn-
leg og þá þarf líka nokkru að kosta
til, enda þó reynt verði að halda
umhverfisraski í lágmarki.“
Undirbúningur er hafinn að
virkjunarframkvæmdum í Ófeigs-
firði á Ströndum, þar sem stendur
til að virkja Hvalá, Rjúkanda og
Eyvindarfjarðará á Ófeigsfjarðar-
heiði með byggingu 55 MW orku-
vers. Til þess þarf að gera stíflur,
mynda þrenn lón og grafa göng að
stöðvarhúsi sem verður neðan-
jarðar ásamt rennslisröri sem
kemur út nærri ósum Hvalár.
Gífuryrði og læti
Athugsemdir vegna þessa
hafa komið fram, nýlega sjö kærur
vegna endurbóta á veginum frá
Ingólfsfirði á virkjunarstað og
vegna rannsókna sem eiga að fara
fram á þessu ári. Úrskurðarnefnd
umhverfis- og auðlindamála hafn-
aði fyrir skemmstu stöðvun vega-
bótanna og hófust þá fram-
kvæmdir aftur. Landeigendur á
jörðinni Seljanesi hafa boðað mót-
mæli og aðgerðir þegar þangað
kemur, á næstu dögum.
„Auðvitað er öllum frjálst að
hafa og láta í ljós skoðun sína á
þessu verkefni, en mér finnst
verra þegar því fylgja gífuryrði og
læti. Annars er eftirtektarvert að
þeir sem hafa mestar meiningar
um þetta mál er fólk suður í
Reykjavík og svo brottfluttir
Strandamenn; fólk sem bjó hér
fyrir mörgum áratugum. Mér hef-
ur mjög sárnað að í þessu máli
skuli vera beitt skítkasti eins og að
sverta starfsemi Hótel Djúpavíkur
sem ég rek með fjölskyldu minni.
Inn á erlendar bókunarsíður hafa
verið sett skilaboð hvar við erum
sögð vera umhverfishryðjaverka-
menn, þjóðníðingar og fleira
slíkt,“ segir Eva og heldur áfram:
Mútufé í brúnum poka
„Fullyrt er að fólki hér hafi
verið mútað með peningum í brún-
um bréfpokum sem mér finnst
grátbroslegt ef einhver trúir. Svo
vissi ég ekki hvaðan á mig stóð
veðrið þegar lögmaður að sunnan
kom norður og spurði hvort hót-
elið í Djúpavík væri falt fyrir rétt
verð. Þegar að var spurt voru
meintir kaupendur fólk sem væri
andstæðingar virkjunar og við
spurð hvort að það skipti okkur
einhverju máli. Kjarni málsins er
sá að sakleysi þessarar sveitar er
horfið. Við setjum dyrnar alltaf í
lás að kvöldi, sem áður þurfti svo
sannarlega ekki.“
Skráðir íbúar í Árneshreppi í
dag eru um 40 en byggðin hefur
lengi átt í vök að verjast. Eva odd-
viti væntir að virkjun geti þar
nokkru breytt. Vesturverk og HS-
Orka ætli meðal annars að leggja
þriggja fasa rafmagn á virkjunar-
stað og þess muni fólkið í sveitinni
einnig njóta. Umrædd fyrirtæki og
fulltrúar þeirra hafi sömuleiðs góð
orð um stuðning við ýmsar inn-
viðaframkvæmdir í sveitinni. Á
fundi í hreppnum í síðasta mánuði
hafi svo komið fram hjá Sigurði
Inga Jóhannssyni samgöngu-
ráðherra að meðal annars vegna
virkjunarframkvæmda standi til
að flýta gerð nýs vegar yfir Veiði-
leysuháls, en sá hryggur hefur
verið haft svo ófært er landleiðina
norðurstóran hluta vetrar.
Aldrei fleiri ferðamenn
„Ferðamenn sem hingað
koma hafa aldrei verið fleiri en nú
í sumar og í fyrra. Ég sé reyndar
fyrir mér að orkunýting og ferða-
þjónusta geti farið vel saman, ýmis
mannvirki sem þarfa að útbúa, svo
sem vegir og hús, geta nýst í því
skyni. Og almennt talað þá er fórn-
in sem fylgir Hvalárvirkjun ekki
mikil; landsvæðið þar sem útbúa
þarf lón og setja upp stíflur er ekki
stórt samanborið við til dæmis
miðhálendisþjóðgarð sem á að ná
yfir hálft landið. Já, ég hef enga
ástæðu til að ætla annað en af
virkjun Hvalár verði, enda hefur
undirbúningurinn verið vandaður
og hvert skref stigið eftir lögform-
legum leiðum,“ segir Eva.
Hart er deilt á áform um byggingu Hvalárvirkjunar á Ströndum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Árneshreppur Við setjum dyrnar alltaf í lás að kvöldi, sem áður þurfti svo sannarlega ekki, segir Eva oddviti.
Sakleysi sveitar horfið
Eva Sigurbjörnsdóttir er
fædd á Akureyri 1950, en alin
upp í Garðabæ. Leikskólakenn-
ari að mennt.
Árið 1985 opnuðu Eva og
maður hennar Ásbjörn Þorgils-
son Hótel Djúpavík þar sem
þau hafa starfað og búið síðan.
Eva tók sæti í hreppsnefnd Ár-
neshrepps eftir kosningar
2002 og hefur setið þar síðan,
oddviti frá 2014.
Hver er hún?
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Breytingar á gatnamótum Geirsgötu og Lækj-
argötu/Kalkofnsvegar eru ekki áætlaðar að
sögn Þorsteins R. Hermannssonar, samgöngu-
stjóra Reykjavíkurborgar.
Ólafur Kristinn Guðmundsson, umferðar-
sérfræðingur og varaborgarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins, gagnrýndi gatnamótin í viðtali sem
birtist í Morgunblaðinu sl. laugardag. Þar
sagði Ólafur meðal annars að það hefðu verið
mistök að leggja Geirsgötu ekki í stokk.
„Geirsgata var ekki lögð í stokk og þá
vinnum við með Geirsgötu á yfirborði,“ segir
Þorsteinn sem kveðst ekki geta sagt til um
hvort vænlegra hefði verið að setja götuna í
stokk á sínum tíma.
Ólafur gagnrýndi sömuleiðis ljósastýringu á
gatnamótunum sem er þannig að öll gönguljós
eru græn samtímis. Þorsteinn segir að á þess-
um gatnamótum, sem og öðrum gatnamótum
miðsvæðis, séu gangandi og hjólandi vegfar-
endur settir í forgang.
„Það er gríðarlega margt fólk sem fer þarna
yfir gangandi og hjólandi og þegar við erum að
stilla og hanna umferðarljósin þá er það okkur
mikið forgangsmál að tryggja öryggi þeirra. Á
þessum gatnamótum eru líka forgangsstýring-
ar fyrir strætisvagna.“
Þrátt fyrir að engar breytingar séu fyrir-
hugaðar verður áfram fylgst með gatnamót-
unum. „Við endurskoðum auðvitað ljósastýr-
ingar ef þær eru ekki að virka sem skyldi. Þær
hafa verið endurskoðaðar einu sinni eftir að
gatnamótin voru tekin í notkun. Við viljum
auðvitað hafa þetta sem allra best fyrir alla en
forgangsröðunin er skýr.“
Stokkur enn mögulegur
Ólafur segir að með því að byggja bílakjall-
ara undir Geirsgötu hafi borgaryfirvöld alfarið
útilokað að setja Geirsgötu nokkurn tímann í
stokk. Þorsteinn segir að strangt til tekið sé
það ekki rétt. „Tæknilega væri alveg hægt að
breyta notkuninni á bílakjallaranum og breyta
honum í stokk. Sömuleiðis er enn hægt að fara
með götuna í jarðgöng.“
Forgangsröðun við gatnamótin skýr
Engar breytingar eru fyrirhugaðar á gatnamótum Geirsgötu og Lækjargötu/Kalkofnsvegar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Umferð Þorsteinn segir gatnamótin anna
þeirri umferð sem um þau fer ágætlega.
Landhelgisgæslan sinnti fjórum út-
köllum á laugardaginn og var því
þyrla Gæslunnar á ferðinni nánast
allan daginn.
Fyrsta útkallið kom á níunda tím-
anum frá göngumönnum á Vest-
fjörðum. Varðskipið Þór var sent af
stað til þess að aðstoða björgunar-
sveitir.
Um hálftólf var óskað eftir þyrlu
vegna vélhjólaslyss í Ólafsvík og
varð svo að TF-GRO, þyrla Gæsl-
unnar, var send af stað frá höfuð-
borginni.
Þyrlan komst ekki strax heim eftir
stoppið í Ólafsvík þar sem hennar
var óskað við Langjökul. Þar þurfti
að sækja hjartveikan mann.
Næsta útkall kom klukkan stund-
arfjórðung fyrir þrjú. Þá var beðið
um þyrlu vegna flugslyssins við
Haukadalsflugvöll. Var beiðnin aft-
urkölluð skömmu seinna.
Áhöfnin var svo vart komin til
Reykjavíkur þegar beiðni barst um
aðstoð þyrlunnar í Fljótavík. Tók
þyrlan því af stað á nýjan leik klukk-
an stundarfjórðung yfir fjögur.
Annasöm helgi hjá
þyrlu Gæslunnar
TF-GRO á ferðinni allan daginn