Morgunblaðið - 29.07.2019, Blaðsíða 23
Þýskalandi, 3) Kári Erlingsson, f. 16.
ágúst 1982, lögregluþjónn, búsettur
á Akureyri. Kona hans er Margrét
Kristín Helgadóttir, lögfræðingur á
Akureyri, börn þeirra Sunna Mekk-
ín, Helgi Hrafn og Baltasar Bassi.
Systkini Sigríðar sammæðra eru
1) Guðrún Edda Káradóttir, djákna-
kandídat og myndlistarmaður, f. 26.
september 1953, búsett í Reykjavík,
2) Einar Kárason rithöfundur, f. 24.
nóvember 1955, búsettur í Reykja-
vík, 3) Anna Karen Káradóttir há-
skólanemi, f. 24. september 1965,
búsett í Garðabæ.
Samfeðra Sigríði eru 4) Magnús
Örn Stefánsson flugstjóri, f. 2. júlí
1951, búsettur í Lúxemborg og
Reykjavík, 5) Halla Stefánsdóttir líf-
eindafræðingur, f. 12. ágúst 1955,
búsett Garðabæ, 6) Þorleifur V.
Stefánsson, umboðsmaður LEGO á
Íslandi, f. 4. september 1959, d. 5.
maí 2017, bjó í Mosfellsbæ.
Móðir Sigríðar var Anna Camilla
Einarsdóttir, f. 4. júní 1925, d. 26.
nóvember 2014, húsmóðir, versl-
unarkona og deildarritari. Hún var
búsett á Ísafirði til 18 ára aldurs, síð-
an í Reykjavík. Faðir Sigríðar var
Stefán Magnússon, f. 26. ágúst 1926,
d. 18. mars 1963, flugstjóri í Reykja-
vík. Stjúpfaðir Sigríðar var Kári
Gunnarsson, f. 9. mars 1921, d. 8.
febrúar 1995, mjólkurfræðingur og
bílstjóri í Reykjavík.
Sigríður
Stefánsdóttir
Anna Ívarsdóttir
húsfreyja á Ísafi rði
Valdimar Sigurðsson
húsmaður á Ísafi rði
Sigríður Valdimarsdóttir
húsfreyja og verkakona á Ísafi rði
Einar Kristján Þorbergsson
sjómaður og verkamaður á Ísafi rði
Guðrún Kristjánsdóttir
vinnukona á Langadalsströnd, N. Ís.
Þorbergur Einarsson
húsmaður, Bakkaseli
Ísak Jónsson, skólastjóri og
stofnandi Ísaksskóla í Reykjavík
Kristbjörg Stefánsdóttir, húsfreyja í Vestmannaeyjum
Anna Camilla Einarsdóttir
deildarritari, Reykjavík
Bragi Einarsson í Eden, Hveragerði
Birna Einarsdóttir húsfreyja og skrif-
stofumaður á Ísafi rði og í Reykjavík
Ragnheiður Sigurbjörg Ísaksdóttir
ljósmóðir og húsfreyja m.a. í Loðmundarfi rði.
Jón Þorsteinsson
bóndi og hreppstjóri, Gilsárteigi í Eiða-
þinghá og Seljamýri í Loðmundarfi rði
Arnbjörg Jónsdóttir
húsfreyja og sjálfl ærður náttúrufræðingur, Rvík
Magnús Stefánsson
dyravörður í Stjórnarráðinu og bóndi í Reykjavík
Guðbjörg Jósefsdóttir
húsfreyja á Heiðarseli, Hróarstungu
Stefán Magnússon
bóndi á Heiðarseli, Hróarstungu
Úr frændgarði Sigríðar Stefánsdóttur
Stefán Magnússon
fl ugstjóri í Reykjavík
DÆGRADVÖL 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚLÍ 2019
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG ÆTLA EKKI AÐ FELA PENINGANA MÍNA
HÉRNA UPPI.”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að elska nýja skeggið
hans.
ÉG ER
YNDI
SPYRÐU NÆSTUM
HVERN SEM ER
SVEINN! ÞÚ KLÚÐRAÐIR MÁLUM Í
ORRUSTUNNI Í DAG! ÞÚ MÁTT VELJA
REFSINGU ÞÍNA SJÁLFUR!
ÉG VEL ÁBÓT FRÁ HEPPNA EDDA!
BÍDDU!
ÞÚ
KLÚÐRAÐIR
EKKI SVO
ILLA!
„HANN SAMÞYKKTI AÐ RÆÐA VIÐ OKKUR
EN FYRST KREFST HANN ÞESS AÐ FÁ
FÖRÐUNARRÁÐGJÖF.”
Jóhann S. Hannesson orti „uminnrætingu“:
„Ég álít það alls ekki smekkvísi
að innræta lömbunum stekkvísi.
Þetta er óþverrasiður
en miðast, því miður,
við mig,“ sagði refurinn hrekkvísi.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir
á Boðnarmiði og kallar „Stera-
tröll“:
Grettir sterki var gallharður,
garpi þeim líkist Hallvarður,
hausinn skekur
og hræðslu vekur
hrikalegur sem fjallgarður.
Gunnar J. Straumland gefur
holl ráð:
Oftast nær er æviskeið
auðnu háð,
en alltaf má sjá aðra leið
þá að er gáð.
Óðagot mun ei til neins,
er mitt ráð,
því tíminn vísast tifar eins
og til var sáð.
Pétur Stefánsson er í sólskins-
skapi:
Og fuglarnir syngja sumarlag
sælir í morgunbjarma.
Ég skrúbba tennur og tauta brag
og treð mér í útslitna garma.
Við eigum í vændum dýrðlegan dag
með dásemdar stillu og varma.
Davíð Hjálmar í Davíðshaga
segir á Leirnum að ekki fari hjá
því að vætutíðin hafi áhrif á líf-
ríki og umhverfi.
Melrakki flýr sitt moldargreni,
músahræ fljóta niður kíl.
Þó er nú bara þörf á dreni
þar sem er mest af krókódíl.
Enn segir Davíð Hjálmar og
kvíðinn leynir sér ekki:
Felur þokan fjallahring,
frussast regn um hóla.
Fúnar burn og beitilyng.
Breytist ég í Sunnlending?
Ólafur Stefánsson segir „bót í
máli“ – og ekki að ástæðulausu!
Ég yrki vers og vísur,
og vinn mig fram um spönn.
Dotta og dreg svo ýsur,
er dagsins hljóðnar önn.
En enginn kann þau kvæði,
né kannast við skáldið, mig,
fyrir utan örlítið svæði,
eina frænku, – og þig.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Það er ýmist vætutíð
eða þurrkur
Gullfiskur
Kæliþurrkaður harðfiskur
semhámarkar ferskleika,
gæði og endingu.
Inniheldur 84%prótein.
84%prótein - 100% ánægja
Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is
Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur
Tilvalinn með
á völlinn í
sumar