Morgunblaðið - 29.07.2019, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚLÍ 2019
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • tonastodin.is
Upptöku tækiÞér er í lófa lagið
að taka upp
!
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Donald Trump Bandaríkjaforseti
hefur enn og aftur þurft að sæta
harðri gagnrýni vegna ummæla
sinna á Twitter en hann fór ófögrum
orðum um Elijah Cummings, þing-
mann demókrata, á Twitter á laug-
ardaginn var. Kallaði hann kjör-
dæmi Cummings í Baltimore,
Maryland, m.a. „viðbjóðslegt og
morandi í rottum og nagdýrum“ og
kvað Cummings vera öskrandi og
æpandi kúgara.
Hefur Trump verið sakaður um
kynþáttahatur vegna ummæla sinna
en meirihluti íbúa kjördæmisins er
dökkur á hörund, þar á meðal
Cummings.
Spili „kynþáttspilinu“
Cummings, sem er formaður eft-
irlitsnefndar fulltrúadeildar Banda-
ríkjaþings, hefur áður gagnrýnt
Trump, m.a. stefnu hans í innflytj-
endamálum og meðferð hælisleit-
enda við landamæri Mexíkó.
Fram kemur á fréttavef AFP að
Trump hafi varið ummæli sín á
Twitter í gær. Þar sagði hann ekk-
ert vera rangt við að beina athygli
fólks að þeirri staðreynd að Elijah
Cummings hefði staðið sig illa í
starfi sínu fyrir kjördæmi sitt í
Baltimore. Að auki sakaði hann
demókrata um að spila „kynþátta-
spilinu“ og sagði þá ekkert hafa gert
fyrir Bandaríkjamenn af afrískum
uppruna.
Baráttumaður mannréttinda
Nancy Pelosi, forseti fulltrúa-
nefndar demókrata á Bandaríkja-
þingi, svaraði ummælum Trump á
Twitter á laugardaginn og kallaði
Cummings „baráttumann mannrétt-
inda og efnahagslegs réttlætis“.
„Við höfnum öllum kynþáttátta-
árásum gegn honum,“ sagði Pelosi í
tísti sínu, en fram kemur í frétt AFP
að hún sé uppalinn í Baltimore þar
sem faðir hennar var hverfisstjóri.
Trump svaraði ummælum Pelosi í
gær og kvað hana standa sig illa í
starfi sínu fyrir kjördæmi hennar í
Kalíforníu.
Innan við tvær vikur eru síðan
fulltrúadeild Bandaríkjaþings for-
dæmdi ummæli Bandaríkjaforseta á
Twitter um fjórar þingkonur af er-
lendum uppruna. Þar sagði Trump
þingkonunum meðal annars að fara
aftur heim til sín og sagðist telja að
þær væru ófærar um að elska
Bandaríkin.
AFP.
Baráttumaður Cummings hefur gagnrýnt Donald Trump í gegnum tíðina.
Sakaður um kynþáttahatur á ný
Trump ver ummæli sín um Cummings á Twitter Sagði Baltimore „viðbjóðs-
legt og morandi í rottum“ Sakar demókrata um að spila „kynþáttaspilinu“
65 manns eru látnir og 10 eru
særðir eftir árás vígamanna Boko
Haram á hóp syrgenda á leið úr
jarðarför í Nganzai í norðaust-
urhluta Nígeríu á laugardaginn
var. Samkvæmt AFP-fréttaveit-
unni er þetta þrefalt hærri tala en
fyrst var talið.
Er fólkið sagt hafa verið á leið
heim úr jarðarför ættingja þegar
ásársin var gerð.
AFP hefur eftir Bunu Bukar
Mustapha, leiðtoga uppreisnarhóps
á svæðinu, að hann telji árásina
tengjast dauða ellefu vígamanna
Boko Haram. Þeir voru drepnir af
þorpsbúum sem vildu verja þorp
sitt gegn árás tveimur vikum fyrr.
Vígamennirnir hafa staðið fyrir
fjölda árása í norðausturhluta Níg-
eríu og er talið að þeir hafi valdið
dauða um 27 þúsund manns.
NÍGERÍA
Myrtu 65 manns á
leið úr jarðarför
Táragasi og gúmmíkúlum var beitt
gegn tugþúsunum mómælenda í Yu-
en Long-hverfinu í Hong Kong í gær
og fjölmargir voru handteknir. Þetta
kemur fram í frétt AFP um mótmæl-
in.
Lögregla hafði áður bannað mót-
mæli annars staðar en í almennings-
görðum en mótmælendur virtu
bannið að vettugi. Nokkrir mótmæl-
endur særðust í mótmælunum auk
að minnsta kosti tveggja blaða-
manna.
Breska ríkisútvarpið BBC greinir
frá því að margir mótmælendur hafi
mætt á mótmælin með hjálma og
hlífðargleraugu til að verjast aðgerð-
um lögreglu og að slagorðin: „Frels-
ið Hong Kong“ hafi hljómað víða.
Regnhlífar voru áberandi á mótmæl-
unum og klæddust flestir mótmæl-
endur svörtu.
Þetta er áttunda helgin sem lýð-
ræðissinnar hafa staðið fyrir mót-
mælum í Hong Kong. Fyrstu mót-
mælin voru haldin um miðjan júní
eftir að stjórnvöld kynntu áform sín
um að leggja fram framsalsfrumvarp
sem myndi leyfa framsal sjálfstjórn-
arhéraðsins til Kína.
Mótmælendur
hunsuðu bannið
„Frelsið Hong Kong,“ heyrðist víða
AFP
Mótmæli Fjölmargir báru regnhlífar, hjálma og hlífðargleraugu í gær.
Hitabylgja sem gengið hefur yfir
Evrópu upp á síðkastið hefur bæði
glatt og plagað Norðmenn með
ýmsum hætti undanfarna daga.
Hitamet var þríslegið í Bergen í
Noregi þar sem hiti mældist 34,8
gráður en norska ríkisútvarpið
NRK greindi frá því í gær að líf-
verðir í konunglega norska líf-
verðinum í Ósló ættu erfitt með að
sinna starfi sínu í þungum og
svörtum búningunum sökum hita.
NRK greindi auk þess frá því í
gær að norska slökkviliðið hefði
verið kallað út óvenjuoft vegna
drukknandi einstaklinga. Eru flest
útköllin rakin til þess að fólk hafi
ákveðið að skella sér í sjóinn
vegna hita eftir að hafa verið að
skemmta sér.
Hitabylgj-
an plagar
AFP
BANDARÍKIN
Saman Russi Taylor með Mínu Mús.
Rödd Mínu fallin frá
Russi Taylor, sem er þekkt fyrir að
talsetja Mínu Mús í yfir þrjá áratugi,
er látin, 75 ára að aldri.
Þetta kemur fram í frétt breska
ríkisútvarpsins BBC en Walt Disney
kvikmyndafyrirtækið sendi út yfirlýs-
ingu vegna fráfalls Taylor á laug-
ardaginn.
Í yfirlýsingunni kemur fram að
Taylor hafi fundið „sinn raunveru-
lega Mikka“ í eiginmanni sínum
Wayne Allwine, sem talsetti Mikka
Mús frá 1977 en þau voru hamingju-
samlega gift fram að andláti hans
2009.
„Mína Mús hefur glatað rödd sinni
með andláti Russi Taylor,“ sagði Bog
Iger, framkvæmdastjóri Disney í yf-
irlýsingunni þar sem fram kemur að
Taylor hafi fallið frá á föstudaginn
var. Dánarorsök er ekki tilgreind.