Morgunblaðið - 29.07.2019, Qupperneq 25
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚLÍ 2019
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
silestone.com
Bakteríuvörn
Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum.
Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri
bakteríu- og sveppavörn.
Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone.
Blettaþolið Sýruþolið
Högg- og
rispuþolið
Kvarts steinn
í eldhúsið
Pepsi Max-deild kvenna
Breiðablik – Keflavík ............................... 5:2
Þór/KA – ÍBV ........................................... 5:1
KR – Fylkir............................................... 0:2
Staðan:
Breiðablik 12 11 1 0 43:12 34
Valur 11 10 1 0 39:7 31
Þór/KA 12 6 2 4 24:20 20
Selfoss 11 5 1 5 13:15 16
Stjarnan 11 4 1 6 10:19 13
Fylkir 11 4 1 6 12:23 13
ÍBV 11 4 0 7 19:28 12
Keflavík 12 3 1 8 21:26 10
KR 12 3 1 8 12:25 10
HK/Víkingur 11 2 1 8 10:28 7
Bandaríkin
Utah Royals – North Carolina ............... 1:2
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék fyrstu 72
mínúturnar með Utah.
Svíþjóð
Rosengård – Kungsbacka....................... 6:1
Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik-
inn og skoraði 2 mörk fyrir Rosengård.
Djurgården – Eskilstuna ........................ 0:3
Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn
með Djurgården og Ingibjörg Sigurðar-
dóttir í 87 mínútur. Guðbjörg Gunnarsdótt-
ir er í barneignafríi.
Linköping – Piteå .................................... 0:0
Anna Rakel Pétursdóttir kom inn á sem
varamaður á 64. mínútu Linköping.
Östersund – Malmö.................................. 0:0
Arnór Ingvi Traustason lék ekki með
Malmö vegna meiðsla.
Sirius – AIK.............................................. 0:2
Kolbeinn Sigþórsson lék fyrstu 57 mín-
úturnar með AIK.
Eskilstuna – Hammarby ......................... 1:6
Aron Jóhannsson spilaði síðsta korterið
með Hammarby.
Gautaborg – Norrköping ....................... 0:0
Guðmundur Þórarinsson lék allan leik-
inn með Norrköping en Alfons Sampsted
var ekki í hópnum.
B-deild:
Brage – Mjällby........................................ 1:2
Bjarni Mark Antonsson spilaði fyrstu 65
mínúturnar með Brage.
Óttar Magnús Karlsson var allan tímann
á bekknum hjá Mjällby.
GAIS – Syrianska .................................... 0:1
Nói Snæhólm Ólafsson var allan tímann
á varamannabekk Syrianska.
Noregur
B-deild:
Aalesund – Nest-Sotra ............................ 2:0
Aron Elís Þrándarson, Davíð Kristján
Ólafsson og Daníel Leó Grétarsson léku
allan leikinn með Aalesund en Hólmbert
Aron Friðjónsson var í leikbanni.
HamKam – Sandefjord ........................... 1:0
Viðar Ari Jónsson lék allan leikinn mep
Sandefjord en Emil Pálsson er frá keppni
vegna meiðsla.
Ull/Kisa – Start........................................ 0:2
Aron Sigurðarson lék allan leikinn með
Start og Kristján Flóki Finnbogason kom
inná á 81. mínútu í kveðjuleik. Jóhannes
Harðarson er þjálfari liðsins.
KNATTSPYRNA
Golfklúbbur Kópavogs og Garða-
bæjar fagnaði tvöföldum sigri á Ís-
landsmóti golfklúbba sem lauk í
gær. Keppt var á Leirdalsvelli og
Urriðavelli og léku GKG og Golf-
klúbbur Reykjavíkur til úrslita hjá
báðum kynjum. Kylfingarnir léku
tvo leiki á föstudag og tvo á laug-
ardag en í gær var leikið um sæti.
Í úrslitaleiknum í efstu deild
kvenna hafði GKG betur gegn GR
með 4,5 vinningum gegn 0,5 vinn-
ingi GR.
Með sigrinum stöðvaði GKG sig-
urgöngu GR, sem hafði unnið mót-
ið síðustu fjögur ár. Keilir hafnaði í
þriðja sæti eftir 3:2-sigur á Golf-
klúbbi Mosfellsbæjar.
Í karlaflokki var GKG meistari í
sjötta sinn eftir sigur á GR, 3,5:1,5.
Keilir, sem átti titil að verja, varð
einnig í þriðja sæti hjá körlunum
eftir sigur á Golfklúbbi Mosfells-
bæjar, 3:2. Sömu klúbbarnir skip-
uðu því fjögur efstu sætin hjá báð-
um kynjum sem er athyglisvert.
Golfklúbbur Vestmannaeyja féll
úr 1. deild kvenna og Leynir frá
Akranesi tekur sæti GV. Í karla-
flokki var það öfugt; Leynir féll og
GV fór upp í efstu deild.
Lokastaðan í 1. deild kvenna:
1. GKG
2. GR
3. Keilir
4. GM
5. GS
6. Oddur
7. GSS
8. GV
Lokastaðan í 1. deild karla:
1. GKG
2. GR
3. Keilir
4. GM
5. GA
6. GS
7. Jökull
8. Leynir
Lokastaðan í 2. deild kvenna:
1. Leynir
2. Nesklúbburinn
3. GFB
Lokastaðan í 2. deild karla:
1. GV
2. GOS
3. Setberg
4. GÖ
5. Nesklúbburinn
6. Oddur
7. GKB
8. GÍ
Tvöfaldur sigur hjá GKG
Sömu liðin höfnuðu í fjórum efstu
sætunum hjá báðum kynjum
Ljósmyndir/GSÍ
2. deild Leynir með Valdísi Þóru í fararbroddi tryggði sér sæti í efstu deild.
1. deild Sveitir GKG sem urðu Íslandsmeistarar eftir sigra gegn GR í gær.
Glódís Perla Viggósdóttir og sam-
herjar í Rosengård unnu 6:1-sigur á
Kungsbacka í sænsku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu. Glódís var í
miklu stuði og skoraði annað og
þriðja mark Rosengård í leiknum
þótt miðvörður sé.
Þar sem Gautaborg gerði marka-
laust jafntefli við Örebro dugði sig-
urinn til að skjóta Rosengård upp í
toppsætið. Liðið er með 20 stig eftir
9 leiki, með stigi meira en Gauta-
borg. Glódís hefur leikið hverja ein-
ustu mínútu í deildinni til þessa, alls
810 mínútur, og skora þrjú mörk.
Glódís í miklu
stuði í stórsigri
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Mörk Glódís Perla Viggósdóttir
skoraði tvívegis fyrir toppliðið.
Egan Bernal sigraði í hjólreiða-
keppni Tour de France sem lauk
með lokasprettinum í París í gær.
Bernal er aðeins 22 ára gamall og
er sá yngsti sem vinnur keppnina í
110 ár. Bernal kemur frá Kólumbíu
en þaðan hefur sigurvegarinn aldr-
ei áður komið. „Ég er hamingju-
samasti maður í heimi. Ég var að
vinna Tour de France en trúi því
varla,“ sagði Bernal við fjölmiðla-
menn í gær.
Fráfarandi meistari, Geraint
Thomas frá Wales, hafnaði í 2. sæti
í keppninni.
Yngsti sigur-
vegarinn í 110 ár
AFP
Klökkur Kólumbíumaðurinn Bernal
komst við á verðlaunapallinum.
FH er bikarmeistari í frjáls-
íþróttum utanhúss eftir öruggan
sigur í 53. bikarkeppni FRÍ á
heimavelli í Kaplakrika á laug-
ardaginn. FH varð efst í karla- og
kvennaflokki með samanlagt 135
stig. ÍR endaði í öðru sæti með 118
stig.
Kvennalið FH fékk 56 stig, 13
stigum meira en ÍR og karlaliðið
fékk 66 stig og varð ÍR í öðru sæti
með 62 stig.
FH-ingar unnu samanlagt tíu
greinar, lentu sjö sinnum í öðru
sæti og einu sinni í þriðja sæti. ÍR
vann sex greinar, lenti sex sinnum í
öðru sæti og þrisvar í þriðja sæti.
Tvö mótsmet féllu í kastgreinum
að þessu sinni. FH-ingurinn Vigdís
Jónsdóttir setti mótsmet í sleggju-
kasti þegar hún kastaði lengst 59
metra.
ÍR-ingurinn Erna Sóley Gunn-
arsdóttir, sem vann til brons-
verðlauna á Evrópumóti 20 ára og
yngri um síðustu helgi, vann kúlu-
varpið. Hún setti mótsmet er hún
varpaði kúlunni 14,85 metra.
Morgunblaðið/Hari
Sigur Langstökkvarinn Kristinn Torfason með bikarinn á lofti.
FH með flest stig
hjá báðum kynjum