Morgunblaðið - 29.07.2019, Qupperneq 28
Látbragðsleikari „Ég get alveg fullyrt að það hefur aldrei
komið alvöru látbragðsleikari á Suðureyri,“ segir Elfar.
Einleikur Sýning Maríu Thelmu Smáradóttur, Velkomin heim,
er ein af bestu sýningum ársins að mati Elfars Loga.
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Maður heldur alltaf að það sé ekki
hægt að toppa dagskrá síðasta árs
en ég held að við séum að gera það
núna,“ segir Elfar Logi Hann-
esson, listrænn stjórnandi listahá-
tíðarinnar Act alone á Suðureyri
sem haldin verður í 16. sinn helgina
8.-10. ágúst. „Dagskráin hefur
aldrei verið jafn umfangsmikil og
hún er í ár. Það eru yfir þrjátíu við-
burðir í boði á þremur dögum;
mjög fjölbreyttir og úr öllum átt-
um.“
Elfar segir há-
tíðina hafa
þróast. „Hún
byrjaði sem leik-
listarhátíð en er í
dag miklu frekar
hátíð sóló-
senunnar á Ís-
landi. Eina regl-
an, að vanda, er
að aðeins einn
listamaður komi
fram í hverju verki. Það eru meira
að segja þrjár fatahönnunarsýn-
ingar. Það hefur aldrei verið áður.“
Þrátt fyrir fjölbreytileikann heldur
hátíðin tryggð við einleikinn. „Mað-
ur verður að gæta vel að rótunum
og rætur hátíðarinnar eru eig-
inlegir einleikir. Við erum með úr-
val einleikja fyrir alla aldurshópa í
ár.“
Elfar nefnir nokkur dæmi um þá
einleiki sem sjá má á hátíðinni.
Leikur, dans og söngur
„Við erum með stórar sýningar
eins og Allt sem er frábært sem er
alveg frábær og sló í gegn í Borg-
arleikhúsinu. Á hátíðinni er líka Í
hennar sporum sem er afskaplega
skemmtileg sýning sem var sýnd í
Tjarnarbíói.“ Hann nefnir einnig
sýningu Maríu Thelmu Smáradótt-
ur, Velkomin heim. „Ein af bestu
sýningum síðasta árs finnst mér.
María gerir þetta listavel,“ segir
Elfar.
Á dagskrá hverrar hátíðar er
einhvers konar danssýning og í ár
er það sýningin WikiHow to Start a
Punk Band sem er, að sögn Elfars,
einhvers konar „pönk/dans/músík“-
sýning. „Svo er tónlist alltaf mjög
áberandi og núna má segja að kyn-
slóðirnar mætist. Við erum með
sönvarana Jógvan og Magnús Þór
Sigmundsson, annar er „up-and-
coming“ en hinn er „grand-old“ en
hefur þó aldrei verið sprækari en í
dag,“ segir listræni stjórnandinn.
Mikilvægt að hlúa að æskunni
Að sögn Elfars er vegleg dag-
skrá fyrir börn á hátíðinni. „Við
ákváðum að leggja mikla áherslu á
fjölskylduna og viðburði fyrir börn.
Það gerum við náttúrlega af því að
við vitum að ef við hlúum ekki að
æskunni og framtíðinni þá er til lít-
ils að vera að byggja upp hátíð sem
langar til að verða hundrað ára. Við
þurfum að gæta að því að það komi
áhorfendur eftir tíu ár og það þarf
því að ala listina upp í börnunum,“
segir hann.
„Við á Vestfjörðum erum ekkert
mikið fyrir að monta okkur en við
erum samt rosalega ánægð með
okkar fólk þegar því gengur vel. Í
ár útskrifaðist nærri heill tugur
Vestfirðinga úr Listaháskóla Ís-
lands og rjóminn af þeim mætir á
hátíðina, þar á meðal þrír fata-
hönnuðir, myndlistarmenn og leik-
arar. Við erum mjög ánægð að geta
flaggað framtíðinni. Þannig stígur
grasrótin á svið við hliðina á öllum
hinum. Á Act alone eru allir jafnir
og það er frábært.“
Það komast færri listamenn að á
hátíðinni en vilja en það hefur ekki
alltaf verið svo. „Í upphafi þurfti ég
nánast að draga menn hingað og
lokka þá með ýmsum gylliboðum til
þess að fá þá til að sýna á hátíð-
inni,“ segir Elfar og bætir við að nú
séu skipuleggjendur hátíðarinnar í
þeirri forréttindastöðu að fá að
velja úr fjölda umsókna. „Það
sækja miklu fleiri um en við getum
tekið á móti. Það hafa aldrei verið
jafn margar umsóknir og í ár sem
sýnir kannski að við erum að gera
eitthvað rétt. Það er meðal annars
gífurleg aðsókn erlendis frá og við
vildum gjarnan taka við fleirum,“
segir hann.
Látbragðsleikari frá Moldavíu
„Á tímabili vorum við með mikið
af erlendum sýningum sem var
skemmtilegt og ekki síður nauð-
synlegt því hingað kemur mjög
mikið af fólki úr bransanum sem
vill sjá eitthvað nýtt og spennandi.
Þá er auðvitað mikilvægt að við
séum ekki bara að sjá okkar eigið
gallerí heldur einnig að víkka sjón-
deildarhringinn. Síðustu ár hefur
verið erfitt að fá erlenda gesti, að-
allega vegna skorts á fjármagni.“
Elfar segir einn erlendan gest
verða á hátíðinni í ár en bætir við
að hann telji færeyska söngvarann
Jógvan ekki með sem útlending.
„Nú fáum við látbragðsleikarann
George Ciolpan frá Moldavíu. Þeg-
ar maður heyrir látbragðsleik
nefndan þá sér maður yfirleitt fyrir
sér hvítmálaðan mann og þetta er
einmitt þannig. Ciolpan er með
gömlu góðu pantómínuna. Ég get
alveg fullyrt að það hefur aldrei
komið alvöru látbragðsleikari á
Suðureyri, ekki einu sinni á Vest-
firði.“
Elfar nefnir að þeim sem standi
að hátíðinni þyki mikilvægt að
bjóða upp á eitthvað sem heima-
menn á Vestfjörðum hafa ekki séð
áður. Hann segir frá því að ein-
hverjir heimamenn hafi séð dans-
sýningu í fyrsta sinn á Act alone og
nú fái þeir að sjá látbragðsleik.
„Þetta er fólk sem er kannski orðið
áttrætt og aldrei séð neitt þessu
líkt.“
Aðgangur er, eins og fyrri ár,
ókeypis á allar sýningar á hátíð-
inni. „Það væri ekki hægt nema af
því að við erum með sterkt bak-
land, fyrirtæki og sjóði sem hafa
verið trúir hátíðinni frá upphafi.
Þetta væri ekki hægt án þeirra.“
Hann bætir við að Suðureyri sé
einstakt þorp sem geri hátíðina að
því sem hún er. „Þorpsbúarnir eru
svo frábærir gestgjafar og það eru
þeir sem umlykja listamennina,
sem og alla hátíðina. Þeir faðma
hana. Það eru allir eins og ein stór
fjölskylda.“
Alla dagskrá hátíðarinnar Act
alone má finna á vefsíðunni
www.actalone.net.
Skóverk Svanlaug Jóhannsdóttir er höfundur og flytjandi Í
hennar sporum, einleiks sem sjá má á Act alone.
Listahátíðin Act alone haldin í 16. sinn Yfir þrjátíu fjölbreyttir viðburðir á þremur dögum
Elfar Logi
Hannesson
Allir eru jafnir á hátíð sóló-senunnar
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚLÍ 2019