Morgunblaðið - 30.07.2019, Side 1
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Um 28 þúsund fleiri erlendir ríkis-
borgarar hafa flutt til landsins frá
ársbyrjun 2012 en fluttu frá landinu.
Til samanburðar búa um 30 þúsund
manns í Hafnarfirði sem er þriðja
fjölmennasta sveitarfélag landsins.
Þetta má lesa má úr nýjum tölum
Hagstofunnar en rúmlega 2 þúsund
erlendir ríkisborgarar fluttu til
landsins á 2. ársfjórðungi. WOW air
hætti starfsemi í lok 1. fjórðungs en í
kjölfarið urðu uppsagnir á Keflavík-
urflugvelli og víðar. Þrátt fyrir það
var áfram straumur til landsins.
Karl Sigurðsson, sérfræðingur hjá
Vinnumálastofnun, segir að miðað
við þróun síðustu ára megi áætla að í
ár flytji um 4.000 fleiri erlendir ríkis-
borgarar til landsins en frá því. Hins
vegar muni 400 fleiri íslenskir ríkis-
borgarar flytjast frá landinu en til
þess. Margt geti haft áhrif á spána,
ekki síst gengi ferðaþjónustu í haust.
Meiri aðflutningur en spáð var
Halldór Kári Sigurðarson, sér-
fræðingur í greiningardeild Arion
banka, segir tölurnar koma á óvart.
„Um 2.400 erlendir ríkisborgarar
hafa flutt til landsins umfram brott-
flutta á fyrri helmingi ársins þrátt
fyrir að atvinnuleysi meðal erlendra
ríkisborgara sé komið upp í 7,4%.
Sögulega séð hafa frjálsir fólksflutn-
ingar í gegnum EES-samninginn
stuðlað að bættri aðlögunarhæfni
vinnumarkaðarins og þar með leitt
til minna atvinnuleysis eða eftir-
spurnarþrýstings eftir stöðu hag-
kerfisins, en nú gæti hins vegar verið
komin upp ný staða.
Kröftugir fólksflutningar til lands-
ins ofan í efnahagssamdrátt eru til
þess fallnir að auka atvinnuleysi enn
frekar og draga úr eftirspurnar-
þrýstingi sem er ekki meðal þess
sem kólnandi hagkerfi þarf á að
halda,“ segir Halldór Kári og bendir
á að atvinnuleysið sé þó lágt í alþjóð-
legu samhengi. Aðflutningurinn sé
til þess fallinn að styðja við húsnæð-
isverð þótt aðgangur að lánsfé muni
ef til vill hafa meira að segja um
verðþróunina til skemmri tíma.
Aðflutningurinn er
á við Hafnarfjörð
Straumur til landsins frá 2012 Fjölgun í ár umfram spá
MHægir á fjölgun »6
Aðfluttir umfram brottflutta
2012-2019 samtals eftir ríkisfangi*
27.974
Erlendir
ríkisborgarar
-2.896
Íslenskir
ríkisborgarar
*Til og með 31.6. 2019
Heimild: Hagstofan
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Laun knattspyrnumanna á Íslandi
hafa hækkað talsvert á undan-
förnum þremur árum. Jafnframt
hefur aukist mjög að leikmenn skrifi
undir sérstaka viðaukasamninga við
sín félög og þá er ánægja með
frammistöðu lækna og sjúkraþjálf-
ara liðanna í ár minni en árið 2016.
Þetta eru meðal helstu niðurstaða
í ítarlegri könnun Leikmanna-
samtaka Íslands á kjörum og vinnu-
umhverfi leikmanna í efstu deild
karla í knattspyrnu á Íslandi og er
byggð á svörum 191 leikmanns í
deildinni.
Laun leikmanna hafa hækkað
talsvert frá árinu 2016. Af 191 leik-
manni sem svaraði könnuninni í ár
eru 30 prósent, eða 57 leikmenn,
með laun á bilinu 242 til 485 þúsund
krónur á mánuði, 28 leikmenn (15
prósent) eru með 485 til 970 þúsund
á mánuði, fimm leikmenn eru með
970 til 1.820 þúsund á mánuði, tveir
leikmenn eru með 1,8 til 3,6 milljónir
á mánuði og þrír leikmenn kváðust
vera með meira en 3,6 milljónir á
mánuði í laun.
Til samanburðar var enginn með
meira en 1,8 milljónir í laun á mán-
uði árið 2016 og 13 leikmenn fengu
485 til 970 þúsund krónur í mán-
aðarlaun.
Leikmannasamtök Íslands fagna
þessari þróun og segja þetta sýna að
hægt sé að vera atvinnumaður í
knattspyrnu á Íslandi. »24
Hærri laun í ís-
lenskum fótbolta
Morgunblaðið/Hari
Könnun Varpar meðal annars ljósi
á kaup og kjör knattspyrnumanna.
Þ R I Ð J U D A G U R 3 0. J Ú L Í 2 0 1 9
Stofnað 1913 177. tölublað 107. árgangur
JAFNVEL
LOGNIÐ ER
HVASST
LOKA TVEIMUR
EDDU-
HÓTELUM
AUGLÝSINGA-
HERFERÐ
UM BREXIT
FERÐAÞJÓNUSTA, 10 BORIS JOHNSON 12HULDA SIF 28
„Frá aldamótum 2000 hefur Svínafellsjökull hörfað um 200
metra á meðan nágranni hans, Skaftafellsjökull, hefur hopað
um rúmlega 1.000 metra,“ segir Hrafnhildur Hannesdóttir,
sérfræðingur á sviði jöklarannsókna hjá Veðurstofu Íslands.
Hér sést hinn tignarlegi jökull sem bráðnar hratt. Að sögn
Hrafnhildar hefur það breyst mikið hvernig jöklar hreyfast
og hörfa. Fyrir framan flesta sporða Suður-Vatnajökuls hafa
myndast lón sem flýta fyrir hörfun og leysingu jöklanna.
„Jöklarnir eru í raun búnir að grafa sínar eigin grafir, en
botninn undir þeim nær allt að 300 metra undir sjávarmál,
þeir hafa grafið stórar dældir sem síðan mynda þessi jökul-
lón,“ segir Hrafnhildur. »6
Jöklar Suður-Vatnajökuls „grafa sínar eigin grafir“
Morgunblaðið/RAX