Morgunblaðið - 30.07.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.07.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 2019 Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666      Kæli- & frystiklefar í öllum stærðum Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Megrunarkaffi sem inniheldur am- fetamínskylt efni og er til sölu hér á landi er nú til skoðunar hjá Mat- vælastofnun og Lyfjaeftirliti Ís- lands. Í kaffinu er virka efnið phenylethylamine sem er á bann- lista Alþjóðalyfjaeftirlitsins, WADA, og er því neysla þess fyrir hvers kyns íþróttakeppni t.a.m. bönnuð. Framkvæmdastjóri Lyfjaeftir- litsins, Birgir Sverrisson, segir að eftirlitinu hafi borist ábendingar um megrunarkaffi, sem seljendur kalla gjarnan „töfrakaffi“ og inni- heldur efnið phenylethylamine (PEA), sem hefur örvandi áhrif. „Ástæðan fyrir því að þetta örv- andi efni er á bannlista WADA er að efnið er hættulegt heilsu fólks og er árangursbætandi,“ segir Birgir. Þess vegna gæti íþróttafólk sem tekur inn efnið fyrir keppni fallið á lyfjaprófi, þar sem efnið er amfetamínskylt. Birgir frétti fyrst af því í gær að kaffi sem inniheldur efnið væri til sölu á Íslandi. „Lyfið er amfetamínskylt og það ætti að vera ólöglegt að selja þetta í flestum löndum. Þessi vara er skólabókardæmi um eitthvað sem varað er við. Vörur sem eiga að grenna fólk eða auka vöðvamassa þess, þær ber að varast. Það er oft eitthvað óvenjulegt í þessu,“ segir hann. Söluaðilar á samfélagsmiðlum Áhrifavaldar og aðrir umboðs- aðilar selja megrunarkaffi á sam- félagsmiðlum, s.s. Instagram og Facebook, og eru einnig dæmi um sölusíður þar sem megrunarkaffi er selt. Fjöldi Facebook-síðna er með söluumboð fyrir megrunar- kaffi og voru margar þeirra stofn- aðar um svipað leyti, fyrr í júlí- mánuði þessa árs. Þar eru dæmi um að birtar séu árangurssögur af þyngdarmissi eftir nokkurra vikna neyslu kaffisins. Á síðu sem selur megrunarkaffi segir að kaffið hafi „jákvæð áhrif á heilastarfsemina, jafnar blóðsykur og geðslag, eykur fókus, skýrleika, einbeitingu og bætir minnið“. MAST hefur fengið ábendingar um fyrrgreinda vöru að sögn Ingi- bjargar Jónsdóttur, fagsviðsstjóra hjá Matvælastofnun. „Við höfum fengið ábendingar og við erum að skoða virk inni- haldsefni í þessu. Við skoðum akkúrat svona vörur vel þegar við fáum ábendingar um það að þetta sé í millidreifingu hérna,“ sagði hún. Matvælastofnun Írlands innkall- aði nýlega megrunarkaffi frá fyrir- tækinu Miss Fit Enterprises, en fyrirtækið hætti starfsemi skömmu seinna. Varan var innköll- uð vegna misvísandi skilaboða á umbúðum sem samræmdust ekki lögum þar í landi. Írski miðillinn The Journal greindi stuttu seinna í febrúarmánuði frá því að skellt hefði verið í lás í verslunum Miss Fit Enterprises. „Töfrakaffi“ til skoðunar hjá MAST  Áhrifavaldar og aðrir umboðsaðilar selja kaffi í gegnum samfélagsmiðla sem inniheldur amfetamínskylda efnið phenylethylamine  Efnið er á bannlista Alþjóðalyfjaeftirlitsins, sem Lyfjaeftirlitið starfar eftir Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Drykkur Lyfjaeftirlitinu hafa borist ábendingar um megrunarkaffið. Landsmenn hafa notið blíðunnar í sumar sem best þeir geta. Þessi ungi maður var staddur í Kvígindisfirði á dögunum og notaði góða veðrið til að baða sig í sjónum. Kvígindisfjörður gengur norður úr Breiða- firði og er á milli Skálmarfjarðar og Kolla- fjarðar. Samnefndur bær er í botni hans og er sá nefndur í Landnámabók. Hvorugkynsorðið kvíg- indi merkir ungir nautgripir og er skylt orð- unum kvíga og kvígur. Nokkur fleiri örnefni og bæjarnöfn hafa kvígindi að forlið, að því er fram kemur á Vísindavefnum. Morgunblaðið/Hari Buslað í blíðunni í Kvígindisfirði Allt bendir til þess að kríu- varp á Gróttu og Seltjarn- arnesi hafi gengið vel þetta sumarið. Þetta segir Elísa Skúladóttir líf- fræðingur sem hefur staðið að rannsókn kríu- varps á svæðinu í sumar ásamt líffræðingunum dr. Freydísi Vigfúsdóttur og Sig- urlaugu Sigurðardóttur. Elísa segir að margir þeir ung- ar sem hafi verið vaktaðir frá klaki séu þegar orðnir fleygir. „Það koma undan varpinu fleygir ungar og margir flottir líka og stálpaðir sem eru alveg að fara að reyna sig við flugið,“ segir Elísa. Hún segir að flestum kríunum hafi tekist vel að fæða unga sína og mælingar sýni að þær gefi þeim síli frekar en ann- að næringarsnauðara fæði eins og flugur og kóngulær. Segir hún að kríum hafi fjölgað í Gróttu á síðustu tveimur árum miðað við tölur úr skýrslu frá 2017. Hún bendir þó á að enn eigi eftir að vinna úr nið- urstöðum rannsóknarinnar en kveðst bjartsýn á jákvæðar nið- urstöður. rosa@mbl.is Kríuungar margir orðnir fleygir Síli Kríuungar dafna best á sílum og sjávarfangi. Öll sýni sem Heil- brigðiseftirlit Reykjavíkur hef- ur tekið úr ís í ís- búðum í Reykja- vík þetta sumarið hafa staðist heilbrigð- iskröfur. Þetta segir Óskar Ísfeld Sig- urðsson, deildar- stjóri mat- vælaeftirlits hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. Hann staðfestir að sýnatakan hafi verið í gangi síðan í maí og segir að meirihluti ísbúða hafi nú verið kannaður en um 30 sýni hafa verið tekin úr ísvélum í höfuðborginni. Óskar segir að Heilbrigðiseftir- litið kanni ýmsar tegundir gerla, m.a. iðragerla og coli-gerla. Hann segir að ef íssýni úr ísvél standist ekki kröfur sé henni umsvifalaust lokað en staðfestir að skaðlegir gerlar hafi ekki fundist í ísbúðum í Reykjavík lengi. „Eins og staðan er í dag er ekk- ert sýni sem hefur fallið. Allur sá ís sem við höfum skoðað er öruggur og við höfum ekki fengið neinar til- kynningar um meintar matarsýk- ingar vegna íssölu í Reykjavík í ár,“ segir Óskar. rosa@mbl.is Allar ísbúðir staðist heilbrigðiskröfur Ís Gott er að gæða sér á ís í blíðunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.