Morgunblaðið - 30.07.2019, Síða 8

Morgunblaðið - 30.07.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 2019 SMÁRALIND www.skornirthinir.is Your Shoes strigaskór Margar gerðir Leður Leðurstrigaskór Verð 12.995 Stærðir 36-42 Styrmir Gunn-arsson bendir á að í könnun Zenter mælist „fylgi Sjálf- stæðisflokksins 20,5%, sem er 2,1 prósentustigi minna fylgi en í könnun sama aðila hinn 27. júní sl. Í könnun MMR fyrir skömmu mældist Sjálf- stæðisflokkurinn með 19% fylgi.    Það verður fróðlegt að sjá,hvort þjóðarpúls Gallup stað- festir þessa þróun, þegar þær töl- ur koma, væntanlega undir lok vikunnar.    Stóra myndin er sú, að frá hrunihefur fylgi Sjálfstæðisflokks- ins hrunið. Það hefur lítið sem ekkert verið rætt á opnum vett- vangi flokksins, þótt sjálfsagt hafi slíkar umræður farið fram bæði í þingflokki og miðstjórn.    Er ekki kominn tími á slíkarumræður á opnum vettvangi meðal flokksmanna?    Það er athyglisvert að fylgjastmeð þeim áhrifum, sem harð- ari stefna Boris Johnson, forsætis- ráðherra Breta, gagnvart ESB er að hafa á fylgi Íhaldsflokksins í Bretlandi, sem er á uppleið.Getur verið að orkupakkinn eigi hlut að máli að því er varðar Sjálfstæð- isflokkinn hér?“    Þetta er rétt en flokkurinnhafði þó rétt sig verulega af þar til hann kúventi án skýringa í Icesave og storkaði flokksfólkinu og hefur ekki borið sitt barr síð- an. Því var hreint óráð að hann hyrfi frá samþykkt Landsfundar og yfirlýsingum formanns á þingi um orkupakkann og enn skýring- arlaust. Styrmir Gunnarsson Skýringarlaust sjálfsskaparvíti STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Um fimm og hálfur mánuður er síðan þriggja manna starfshópur á vegum umhverfisráðherra átti að skila tillögum sínum um hvort og með hvaða hætti tak- marka ætti notkun flugelda. Hópurinn var skipaður í lok desember 2018 og átti að skila tillögum til ráð- herra fyrir 15. febrúar sl. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofustjóra um- hverfis- og auðlindaráðuneytisins, Steinunni Fjólu Sigurðardóttur, er starfshópurinn ekki að störfum eins og er vegna sumarfría. Segir hún vinnu hópsins langt komna og hann muni einhenda sér í að ljúka henni strax að loknu sumarfríi. Vonast er eftir nið- urstöðu í málinu í haust að sögn hennar. Ljóst er að vinna starfshópsins mun líklega ekki hafa áhrif á flugeldasýningar í sumar og snemma í haust en hefð er fyrir því að skjóta upp flugeldum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, á Menningarnótt í Reykjavík og á Ljósanótt í Reykjanesbæ. Óvíst er hvort áhrifa vinnunnar muni gæta um áramótin. Fjallað var um það í Morgunblaðinu fyrir rúmum mánuði að rætt hefði verið um það á fundi menning- ar-, íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar hvort flugeldasýningin á menningarnótt í ágúst yrði hugsanlega sú síðasta. rosa@mbl.is Fimm og hálfs mánaðar töf  Enn bólar ekkert á til- lögum varðandi flugeldamál Morgunblaðið/Ómar Flugeldar Hefð er fyrir því að Íslendingar skjóti upp flugeldum á ýmsum hátíðlegum viðburðum. Næstu dagar verða annasamir hjá starfsmönnum Faxaflóahafna og fyrirtækja sem annast móttöku á farþegum skemmtiferðaskipa. Á morgun verða fimm skemmti- ferðaskip stödd samtímis í Reykja- vík. Með þessum skipum koma alls tæplega 8.500 manns, þar af eru farþegar 5.925. Gera má ráð fyrir að langflestir þeirra fari í skipu- lagðar skoðunarferðir. Eitt þessara fimm skipa er stærsta skipið sem hingað kemur í sumar. Það heitir MSC Preziosa, 139.072 brúttótonn, smíðað 2013. Farþegar eru 3.502 og í áhöfn eru 1.370. MSC Preziosa er væntanlegt að Skarfabakka í Sundahöfn klukk- an átta í dag og mun láta úr höfn klukkan 17 á morgun. Á morgun mun Rotterdam einnig liggja við Skarfabakka og Ocean Atlantic við Korngarða. Í gömlu höfninni verða tvö skip, Silver Wind við Miðbakka og Ocean Diamond við Faxagarð. sisi@mbl.is Fimm skemmtiferða- skip samtímis í höfn Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Skarfabakki MSC Preziosa og Norwegian Getaway voru samtímis í höfn fyrr í sumar. Farþegar og áhafnir voru samtals nærri 10 þúsund talsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.