Morgunblaðið - 30.07.2019, Page 11

Morgunblaðið - 30.07.2019, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 2019 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Reykjavíkurborg hefur samþykkt niðurrif á átta húsum og einni botn- plötu á lóðinni númer 10 við Kjalar- vog. Samanlagt flatarmál þessara bygginga er 5.727 fermetrar. Bygg- ingarnar, sem standa á Gelgjutanga, þurfa að víkja fyrir íbúðarbyggð, svo- kallaðri Vogabyggð 1. Gelgjutangi er smánes sem skagar út í Elliðaárvog á móts við Grafarvog. Á Gelgjutanga hófst uppbygging skipasmíðaiðnaðar á árum seinni heimsstyrjaldar og þar var byggð lít- il dráttarbraut. Meðal fyrirtækja á nesinu voru Keilir, Landssmiðjan og Bátanaust. Olíufélagið hf.(Essó), nú N1, var með einnig starfsemi á Gelgjutanga. Takmörkuð starfsemi hefur verið í húsunum síðustu árin. Samkvæmt húsaskrá eru bygging- arnar sem rífa á reistar á árunum 1948-1981. Yngsta byggingin og jafn- framt sú stærsta er lagerbygging frá 1981, 2.669 fermetrar. Sú næst- stærsta og jafnframt elsta er geymsla, byggð árið 1948. Það er fyrirtækið U14-20 ehf., Borgartúni 25, sem sækir um leyfi til niðurrifsins. Í hlutafélagaskrá kemur fram að þetta er einkahlutafélag, stofnað árið 2017. Starfsemi þess er bygging íbúðar- og atvinnuhúsnæðis. Stofnandi er Steinsteypan ehf., Kop- arhellu 1 í Hafnarfirði. Skráður stjórnarformaður er Jóhann Ásgeir Baldurs og meðstjórnandi Daníel Þór Magnússon. Hann er jafnframt framkvæmdastjóri og prókúruhafi. Eins og áður segir mun hluti svo- nefndrar Vogabyggðar, Vogabyggð 1, rísa á Gelgjutanga. Vorið 2017 skrifaði Reykjavíkurborg undir samninga um uppbyggingu íbúðar- húsnæðis á Gelgjutanga en heildar- fjöldinn þar verður 349 íbúðir. Inni í þeirri tölu eru 75 íbúðir sem Bjarg – íbúðafélag ASÍ og BSRB mun byggja og eru þær ætlaðar fyrir tekjulágar fjölskyldur og einstakl- inga. Dótturfélag Kaldalóns Félagið Festir, í eigu hjónanna Ólafs Ólafssonar (Samskip) og Ingi- bjargar Kristjánsdóttur, átti fjórar af fimm lóðum á Gelgjutanga. Þar hafði Festir látið forhanna 270 íbúðir í fjórum byggingum. Fram kom í fréttum að Festir hefði selt lóðirnar til félagsins U 14-20 ehf., dóttur- félags Kaldalóns bygginga hf. sem er tengt Kviku banka. Nú er unnið að gerð nýs sjóvarna- garðs á Gelgjutanga, en framkvæmd- ir hófust í desember sl. Verktaki er Jarðvirki ehf. Þessar framkvæmdir eru í samræmi við deiliskipulag svæðisins sem gerir ráð fyrir um 3.500 fermetra landfyllingu og að um 17.000 fermetrar lands verði hækk- aðir. Lágmarksyfirborðshæð lands verður fimm metrar yfir sjávarmáli. Íbúðarbyggðin verður því vel varin komi til hækkunar á yfirborði sjávar vegna mögulegrar hlýnunar and- rúmsloftsins. Vogabyggð er heiti á hverfinu sem er byrjað að rísa sunnan Kleppsmýr- arvegar og austan Sæbrautar. Sam- kvæmt aðalskipulagi er gert ráð fyrir að þarna geti risið allt að 1.300 íbúðir, samtals um 155.000 fermetrar, og at- vinnuhúsnæði verði um 56.000 fer- metrar. Skipulagssvæðið er um 18,6 hektarar. Niðurrif á Gelgjutanga  Eldri atvinnuhús víkja fyrir íbúðarbyggð  Húsin samtals tæpir 6.000 fermetrar Morgunblaðið/Hari Gelgjutangi Húsin í Kjalarvogi sem verða rifin eru fyrir miðri mynd. Norðan við húsin er athafnasvæði Samskipa en Snarfarahöfnin er sunnan megin. Bæjarráð Grindavíkurbæjar hefur samþykkt að útvega starfsmönnum tjaldsvæðis Grindavíkur örygg- ishnapp þar til öryggismyndavélar verða settar upp fyrir tjaldsvæðin. Starfsmaður á tjaldsvæðinu varð fyrir óþægindum, sem leiddi til aukinna örygg- isráðstafana, að sögn bæjarstjóra Grindavíkur, Fannars Jón- assonar. „Þetta var að- eins að gefnu til- efni. Það var ákveðið að setja bæði upp myndavélakerfi í opnu rými og síðan vera með öryggishnapp ef eitthvað kæmi upp á þegar starfs- menn eru einir þarna að kvöldi til,“ sagði Fannar. Hnappurinn er tengdur öryggis- kerfi og er því starfsmönnum út- veguð vöktunarþjónusta allan sól- arhringinn. Bæjarráð Grindavíkurbæjar samþykkti á bæjarráðsfundi hinn 3. júlí að uppsetning eftirlits- myndavéla á tjaldsvæði bæjarins hæfist „í vinnu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020. En fram að þeim tíma fái starfsmenn öryggis- hnapp“. „Við ákváðum þetta á okkar for- sendum. Eitthvað gæti komið upp á hjá gestunum og þetta kemur sér vel ef tilefni þætti til að kalla eftir aðstoð,“ sagði Fannar. Eftirlit í Eyjum Myndavélaeftirlit verður einnig á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum sem fram fer um næstu helgi. Rúmlega 10 eftirlitsmyndavélar munu vakta hátíðarsvæðið í Herj- ólfsdal allan sólarhringinn og geyma upptökur, að því er fram kemur á vef hátíðarinnar. Þá verða einnig til taks sjúkraskýli 233 metra frá brekkusviðinu, þar sem gestir geta fengið læknisþjón- ustu. Neyðar- hnappur á tjaldsvæði Fannar Jónasson Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Str. 36-56 20% aukaafsláttur af allri útsöluvöru Verðhrun á útsölu TISSOTWATCHES .COM TISSOT, INNOVATORS BY TRADITION #ThisIsYourTime TISSOT heritage visodate INSPIRED BY THE TISSOT VISODATE COLLECTION FROM 1950. SKARTGRIPIR&ÚR SÍÐAN 1923 Bankastræti 12 | Sími 551 4007 | skartgripirogur.is Héraðsdómur Reykjavíkur sam- þykkti í gær flýtimeðferð í dóms- máli VR gegn Fjármálaeftirlitinu (FME). VR stefndi FME og Líf- eyrissjóði verzl- unarmanna (LIVE) til ógild- ingar á stjórn- valdsákvörðun. VR gerði kröfu um að ákvörðun FME frá 3. júlí sl. um að stjórn- armenn LIVE sem tilkynntir voru til FME 23. mars sl. séu enn stjórnarmenn LIVE. Í frétt VR segir að það liggi fyrir að VR tilnefni fjóra að- almenn í stjórn LIVE og fjóra varamenn. „Á fundi fulltrúaráðs VR 20. júní 2019 var samþykkt að afturkalla umboð allra stjórn- armanna, bæði aðal- og vara- manna, sem sitja í umboði VR í stjórn lífeyrissjóðsins. Í kjölfarið tók fulltrúaráðið ákvörðun um að skipa nýja stjórnarmenn VR í líf- eyrissjóðnum,“ sagði í fréttinni. Þar segir og að FME telji að full- trúaráðinu sé ekki heimilt að aft- urkalla umboð stjórnarmanna LIVE heldur sé það á valdi stjórnar. VR segir að stjórnvalds- ákvörðun FME sé ógildanleg vegna annmarka. Mál VR gegn FME í flýtimeðferð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.