Morgunblaðið - 30.07.2019, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 2019
30. júlí 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 121.63 122.21 121.92
Sterlingspund 151.14 151.88 151.51
Kanadadalur 92.21 92.75 92.48
Dönsk króna 18.122 18.228 18.175
Norsk króna 13.961 14.043 14.002
Sænsk króna 12.815 12.891 12.853
Svissn. franki 122.5 123.18 122.84
Japanskt jen 1.1188 1.1254 1.1221
SDR 167.4 168.4 167.9
Evra 135.32 136.08 135.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 166.2192
Hrávöruverð
Gull 1418.25 ($/únsa)
Ál 1776.0 ($/tonn) LME
Hráolía 63.28 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Óttinn við að
Bretar yfirgefi
Evrópusam-
bandið án út-
göngusamnings
hafði talsverð
áhrif á gjaldeyr-
ismörkuðum í
gær og lækkaði
gengi sterlings-
pundsins talsvert
gagnvart dollara
af þeim sökum. Þannig hefur gengi
þess gagnvart dollar ekki mælst lægra í
tvö ár. Stóð pundið í 1,2222 dollurum
en það náði 1,198 dollurum í janúar
2017 í aðdraganda ræðu Theresu May,
þáverandi forsætisráðherra, varðandi
stöðuna á Brexit. Lægst fór pundið hins
vegar í október 2016 í kjölfar þjóðar-
atkvæðagreiðslunnar um Brexit en þá
stóð gengi þess í 1,1841 dollar. Hafði
gengi pundsins þá ekki mælst lægra
gagnvart dollar í 33 ár.
Pundið ekki lægra
gagnvart dollara í tvö ár
Pund Spenna vegna
Brexit hefur áhrif.
STUTT
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturh@mbl.is
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, hyggst á næstunni
hleypa af stokkunum stærstu aug-
lýsingaherferð þar í landi frá seinni
heimsstyrjöld, um það að gera Bret-
land í stakk búið til þess að takast á
við útgöngu úr Evrópusambandinu
án samnings. Þá vaknar upp sú
spurning hvernig mál standa hvað
varðar milliríkjasamninga Íslend-
inga og Breta. Í svari við fyrirspurn
Morgunblaðsins segir Guðlaugur
Þórðarson utanríkisráðherra að bú-
ið sé að tryggja kjarnahagsmuni Ís-
lendinga á lykilsviðum.
Í frétt Telegraph um auglýsinga-
herferðina miklu segir að hún muni
fara fram á öllum miðlum, í sjón-
varpi, útvarpi og á auglýsingaskilt-
um. Á sunnudag fundaði Johnson
með ráðherrum sínum í Cobra-
fundarherberginu, sem vanalega
hýsir fundi bresku ríkisstjórnarinn-
ar um mál er varða þjóðaröryggi, en
áætlað er að verja allt að 100 millj-
ónum punda, tæpum 15 milljörðum
króna, í auglýsingar á næstu þrem-
ur mánuðum.
Bretar eru nú þegar farnir að
leggja drög að viðræðum við Banda-
ríkin um tvíhliða viðskiptasamning
þjóðanna. Þegar kemur að sam-
skiptum Íslendinga og Breta hefur
íslenska utanríkisþjónustan náð
samningi við Breta sem tryggir
kjarnahagsmuni um vöruviðskipti,
búseturéttindi og loftferðamál,
hvort sem Bretland gengur úr ESB
með eða án samnings, að því er fram
kemur í frétt á vef utanríkisráðu-
neytisins. Samningaviðræðum við
Breta á þessum þremur sviðum er
nú lokið og gætu samningar tekið
gildi ef til þess kæmi að Bretland yf-
irgæfi ESB án samnings.
Í svari Guðlaugs Þórðarsonar ut-
anríkisráðherra segir hann málefni
tengd útgöngu Bretlands úr Evr-
ópusambandinu hafa verið for-
gangsmál frá upphafi ráðherratíðar
sinnar. „Ef útgöngusamningur næst
gilda til bráðabirgða áfram reglu-
verk ESB og alþjóðasamningar,
m.a. EES-samningurinn, uns samn-
ingar verða gerðir til frambúðar. Ef
sú staða kemur aftur á móti upp 31.
október að Bretland gengur úr ESB
án samnings hafa íslensk stjórnvöld
tryggt kjarnahagsmuni á lykilsvið-
um,“ segir Guðlaugur en þau lyk-
ilsvið voru nefnd hér að ofan.
Stefnt að vítækari efnhags- og
samstarfssamningi við Breta
Í skýrslu utanríkisráðherra um
utanríkis- og alþjóðamál, sem ný-
lega var lögð fyrir Alþingi, kemur
fram að Brexit-vinnuhópur Stjórn-
arráðsins hafi fundað margoft með
Bretum, bæði tvíhliða og með
fulltrúum frá Noregi og Liechten-
stein. „Heildarstefna Bretlands
gagnvart umheiminum er að
tryggja eftir fremsta megni óbreytt
ástand,“ segir í skýrslunni þar sem
enn fremur kemur fram að Bretar
stefni á að afrita nánast alla alþjóða-
samninga sem ESB hefur gert við
þriðju ríki, og ætli sér að yfirfæra
þá á milli sín og viðkomandi ríkja, sé
það hægt.
En „[þ]ar sem EES-samningur-
inn nær yfir allan innri markaðinn
er ekki unnt að afrita hann í heild og
því er leitast við að undirbúa samn-
inga við EFTA-ríkin innan EES
sem yllu sem minnstri röskun.“ Um
varúðarráðstafanir er að ræða en til
lengri tíma er stefnt að gerð víð-
tæks efnahags- og samstarfssamn-
ings við Breta.
Frá sjónarhóli Íslendinga byggir
slíkur samningur „á þeim markaðs-
aðgangi sem Ísland nýtur á vett-
vangi EES,“ þar sem m.a. er horft
til fulls afnáms tolla á sjávarafurðir.
Formlegar viðræður um þessi mál
geta fyrst hafist eftir útgöngu Bret-
lands úr ESB.
Boris efnir til stórrar aug-
lýsingaherferðar um Brexit
AFP
Brexit Margt bendir til þess að Bretar gangi úr Evrópusambandinu án
samnings, undir forystu Boris Johnson, forsætisráðherra Breta.
Brexit
» Bretar ganga úr Evrópusam-
bandinu 31. október án samn-
ings ef ekki tekst að miðla mál-
um.
» Ísland hefur náð samn-
ingum við Bretland sem
tryggja kjarnahagsmuni um
vöruviðskipti, búseturéttindi
og loftferðamál, hvort sem
Bretland yfirgefur ESB með
eða án samnings. Formlegar
viðræður um framtíð-
arsamskipti við Bretland geta
fyrst hafist eftir útöngu Breta
úr ESB.
Ísland búið að tryggja kjarnahagsmuni komi til útgöngu Bretlands án samnings
Þjónustuskipið Fáfnir Viking hefur
verið selt til kanadískrar þjónustu-
skipaútgerðar, Atlantic Towing.
Þetta kemur fram í fréttamiðlum þar
í landi.
Forsögu málsins má rekja allt aft-
ur til ársins 2014 þegar íslenska
fyrirtækið Fáfnir Offshore fékk
skipið Polarsyssel afhent. Áður hafði
fyrirtækið pantað smíði á tveimur
þjónustuskipum, fyrrnefndu Polar-
syssel og Fáfni Viking. Norska
skipasmíðastöðin Havyard í Fosna-
vogi var fengin til verksins, en skipin
voru ætluð til verkefna í tengslum
við olíuflutning.
Fljótlega eftir að Fáfnir Offshore
fékk afhent skipið Polarsyssel var
ljóst að verkefni þess voru af skorn-
um skammti. Það bitnaði á rekstri
félagsins sem í kjölfarið varð til þess
að ekki reyndist gerlegt að greiða
fyrir seinna skipið, Fáfni Viking.
Stjórn Fáfnis Offshore ákvað í fram-
haldinu að seinka smíðinni og greiða
tafabætur. Vanefndirnir voru þó
slíkar að ákveðið var að rifta samn-
ingnum í upphafi árs 2017.
Frá þeim tíma hefur skipið legið
bundið við bryggju í Noregi, en það-
an var það dregið frá Tyrklandi þar
sem smíðin fór fram. Nú er hins veg-
ar ljóst að skipið kemst í hendur
nýrra eigenda innan skamms. Ráð-
gert er að Atlantic Towing fái skipið
afhent fullbúið á næsta ári og mun
það bera heitið Atlantic Harrier.
Haft er eftir stjórnarmönnum Atl-
antic Towing að skipið sé eitt það
allra besta sinnar tegundar og muni
nýtast fyrirtækinu mjög vel á næstu
árum. aronthordur@mbl.is
Ljósmynd/Atlantic Towing
Skipið Atlantic Harrier verður í þjónustu útgerðar í Kanada.
Fáfnir seldur til
útgerðar í Kanada