Morgunblaðið - 30.07.2019, Síða 13

Morgunblaðið - 30.07.2019, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 2019 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla DUCA Model 2959 Rafmagn L 238 cm Áklæði ct. 83 Verð 699.000,- L 238 cm Leður ct. 15 Verð 879.000,- Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Götumótmæli í Moskvu síðustu vikur eru talin til marks um vaxandi óánægju meðal almennings í Rúss- landi með stjórn Vladimírs Pútíns forseta. Harkaleg viðbrögð yfirvald- anna við mótmælunum benda til þess að Pútín og forystumenn flokks hans hafi áhyggjur af þessu og vilji koma í veg fyrir að stjórnarandstæðingar auki fylgi sitt í borgarstjórnar- kosningum í Moskvu 8. september. Þúsundir manna mótmæltu í mið- borg Moskvu á laugardaginn var þótt yfirvöld hefðu ekki heimilað mótmæl- in og borgarstjórinn hefði varað við því að þeir sem tækju þátt í þeim yrðu handteknir. Lögreglan barði mótmælendur með kylfum og hand- tók nær 1.400 manns en rússneskir fjölmiðlar segja að flestir þeirra hafi seinna verið látnir lausir. Hermt er að um 150 manns hafi enn verið í fangelsi í gær og eigi yfir höfði sér ákæru vegna mótmælanna. Fyrir mótmælin hafði lögreglan handtekið þekktasta baráttumanninn gegn stjórn Pútíns, Alexej Navalní, sem hefur lengi verið rússneskum stjórnvöldum óþægur ljár í þúfu. Navalní hefur verið dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir að hvetja til mót- mælanna en var fluttur á sjúkrahús á sunnudag vegna bráðra ofnæmis- viðbragða. Augnlæknir hans sagði að fanginn hefði aldrei áður fengið ein- kenni ofnæmis og þau kynnu að stafa af „einhvers konar eiturefni“. Vinsældir forsetans minnka Efnt var til mótmælanna um helgina vegna þeirrar ákvörðunar kjörstjórnar í Moskvu að meina hópi stjórnarandstæðinga að bjóða sig fram í kosningunum í september. Hún sagði að þeir hefðu ekki lagt fram undirskriftalista með nægileg- um fjölda meðmælenda en stjórnar- andstæðingarnir neita því. Þeir von- ast til þess að vinna sæti í borgar- stjórninni af flokki Pútíns, Samein- uðu Rússlandi, sem er með meirihluta í borgarstjórninni. Næðu þeir því markmiði gæti það gefið stjórnarandstæðingum byr í öðrum borgum í Rússlandi, að sögn stjórn- málaskýrenda. Síðustu mánuði hafa komið fram vísbendingar um vaxandi óánægju meðal Rússa með stjórn Pútíns, m.a. vegna minnkandi kaupmáttar, ákvörðunar stjórnarinnar um að hækka lágmarkseftirlaunaaldurinn og nýrra laga sem talin eru skerða frelsi Rússa á netinu. Vinsældir Pút- íns hafa minnkað frá því þær náðu hámarki árið 2015, þegar hann naut stuðnings 89% Rússa í könnun sem gerð var eftir innlimun Krímskaga í Rússland. Stuðningurinn mældist 65% í maí sl. samkvæmt könnun ríkisrekins rannsóknafyrirtækis sem sagði að aðeins 31,7% Rússa bæru traust til forsetans. Ráðamennirnir í Kreml gagnrýndu síðarnefndu niðurstöðuna og fyrirtækið hækkaði töluna í 72,3% nokkrum dögum síðar. Berst gegn spillingu Ráðamenn í Kreml hafa lengi haft horn í síðu Navalnís, sem er álitinn hættulegasti pólitíski andstæðingur Pútíns og sá eini sem talinn er geta velgt forsetanum undir uggum. Navalní er 43 ára lögfræðingur, þykir gæddur sérstökum hæfileika til að hrífa fólk með sér og hefur vakið mikla athygli á netinu með hvassri og hnyttinni gagnrýni á spillingu meðal ráðamanna í Kreml og bandamanna þeirra sem stjórna ríkisfyrirtækjum. Hann lýsti t.a.m. Sameinuðu Rússlandi sem „flokki lævísra svikalóma og þjófa“ og sú nafngift festist við stjórnarflokkinn. Navalní hóf baráttu sína gegn spillingu árið 2007 þegar hann keypti hlutabréf í fyrirtækjum í meiri- hlutaeigu ríkisins og mætti á árs- fundi þeirra til að rekja garnirnar úr stjórnendum þeirra. Hann hóf einnig bloggskrif um spillinguna og stór- felld fjársvik rússneskra risafyrir- tækja. Navalní varð einn af þekktustu leiðtogum stjórnarandstöðunnar í mótmælum í Rússlandi veturinn 2011-2012 áður en Pútín var kjörinn forseti í þriðja skipti. Það voru fjöl- mennustu götumótmæli í Rússlandi frá því Pútín komst til valda. Rússnesk yfirvöld hófu þá sak- sókn á hendur Navalní og hann var dæmdur í fangelsi í júlí 2013 fyrir fjársvik. Hann var þó leystur úr haldi þegar dómnum var áfrýjað og Navalní bauð sig fram í borgar- stjórakosningum sem fóru fram í Moskvu 8. september 2013. Hann fékk þá 27,2% atkvæðanna og varð í öðru sæti á eftir bandamanni Pútíns. Navalní var síðar dæmdur fyrir aðhafa svikið fé út úr rússnesku dótturfélagi franska snyrtivöru- fyrirtækisins Yves Rocher þótt fyrirtækið segist ekki hafa orðið fyr- ir tjóni af viðskiptum við hann. Hann hélt þó gagnrýninni áfram og sakaði Dmitrí Medvedev forsætisráðherra um stórfellda spillingu árið 2017. Sama ár þurfti hann að fara í skurð- aðgerð eftir að hafa orðið fyrir árás á götu í Moskvu þegar litunarefni var kastað í andlit hans. Hann missti sjón á öðru auga um tíma en náði sér. Eitrað fyrir hann? Augnlæknir Navalnís, Anastasia Vasíljeva, sagði í gær að hann hefði verið fluttur á sjúkrahús á sunnu- daginn var vegna ofnæmisviðbragða sem lýstu sér í ofsakláða, bólgum á andliti og útbrotum. „Einhvers kon- ar eiturefni kann að vera ástæðan fyrir „veikindum“ hans,“ sagði Va- síljeva. Lögmaður Navalnís sagði síðar að veikindi hans stöfuðu af „einhvers konar óþekktu efni“, en að sögn fréttaskýrenda er of snemmt að fullyrða nokkuð um hvort veikindi hans stafi af eitrun eða tengist bar- áttu hans gegn ráðamönnunum í Kreml. AFP Í fangelsi Lögreglumenn handtaka mann á mótmælum í Moskvu eftir að yfirvöld meinuðu stjórnarandstæðingum að bjóða sig fram í kosningum. AFP Byrlað eitur? Alexej Navalní ávarpar stuðningsmenn sína á mótmælafundi gegn Pútín í Moskvu í fyrra, áður en fjórða kjörtímabil forsetans hófst. Vaxandi óánægja með stjórnina  Nær 1.400 manns handteknir í Moskvu vegna mótmæla eftir að stjórnarandstæðingum var meinað að bjóða sig fram gegn bandamönnum Pútíns  Stjórnarandstöðuleiðtogi hnepptur í fangelsi Handtökur gagnrýndar » Stjórnvöld í Þýskalandi hvöttu í gær yfirvöld í Rúss- landi til að sleppa þeim sem voru handteknir í Moskvu um helgina og til að tryggja lýð- ræðislegar kosningar. » Evrópusambandið hefur einnig gagnrýnt handtökurnar, sagt þær grafa undan tján- ingar- og fundafrelsi. Sendiráð Bandaríkjanna í Moskvu tók í sama streng í yfirlýsingu. Rúmlega 400 loftbelgir, fylltir heitu lofti, hófu sig til flugs á herflugvelli í Chambley-Bussières í austanverðu Frakklandi í gær í misheppnaðri til- raun til að setja nýtt heimsmet á loftbelgjahátíð sem haldin er á vellinum annað hvert ár. Stefnt var að því að slá heimsmet í fjölda loftbelgja frá há- tíðinni fyrir tveimur árum þegar 456 belgir hófu sig á loft en það markmið náðist ekki, að sögn fréttaveitunnar AFP. AFP Hundruð loftbelgja á flugi Misheppnuð tilraun til að setja heimsmet

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.