Morgunblaðið - 30.07.2019, Page 15

Morgunblaðið - 30.07.2019, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 2019 Mýrar Skuggi flugvélar sem ljósmyndari Morgunblaðsins var staddur í blasti við honum á leið hans yfir Mýrar norðvestan við Borgarfjörð fyrir skömmu. Svæðið er þekkt fyrir vötn og mýrar. RAX Þeir finnast enn sem telja að best hefði verið að samþykkja Icesave- samningana, jafnvel finn- ast þeir sem telja að best hefði verið að samþykkja svokallaðan Svavars- samning, sem var alverst- ur. Ég hef haldið því fram að sú skoðun byggist á misskilningi á Icesave- málinu í heild, þeir sem halda þessu fram átti sig ekki á hvar áhættan lá í málinu. Svipuð staða er komin upp í málum tengdum þriðja orkupakkanum. Har- aldur Benediktsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, kom fram með tillögu að lausn á þeim ágreiningi sem uppi er í aðsendri grein í Morgunblaðinu 8. júlí sl. Tillaga Haraldar gengur í stuttu máli út á að ekki verði tekin ákvörðun um að leggja sæstreng frá Íslandi nema að undangenginni þjóðar- atkvæðagreiðslu. Nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins tóku strax undir tillöguna, Óli Björn Kárason fyrstur og nokkrir þingmenn úr stjórnarliðinu hafa hoppað á vagninn síðan. Það jákvæða við tillögu Haraldar er að stjórnarliðar skuli vera farnir að átta sig á að það verður engin sátt í samfélaginu um þriðja orkupakkann, eins og um málið er nú búið. Það verði að finna lausn á málinu sem hefur hrakið rútu Sjálfstæðisflokksins út í skurð, hersingu VG upp á heiðar og framsóknarmennina flesta í felur. Þessi tillaga er skref í átt að því sem þarf að gerast en fjarri því að vera full- nægjandi lausn og það sem alvarlegra er; það er stigið inn í málið á röngum stað. Ummæli Haraldar um að ef tillagan rói bakland Sjálfstæðisflokksins, þá sé hún góð, benda til að heimabrúks- aðferðin sé höfð í huga við tillögugerð- ina (rétt eins og með fyrirvarana), það þurfi að friða baklandið, um það verður þó ekkert fullyrt að sinni. Snúum okkur þá að kjarna málsins: Ef Al- þingi samþykkir þriðja orkupakkann er þjóðin þar með skuldbundin til að fylgja reglum hans, annað væri brot á EES- samningnum. Ef lög- mætri umsókn um sæ- streng er hafnað getur það leitt til skaðabóta- skyldu ríkisins gagnvart málsaðilum sem byggja rétt á EES-samningnum. Á þetta hafa okkar færustu lögspekingar bent. Miðflokkurinn tókst á við ríkis- stjórnarflokkana undir þinglok um það hvort fært væri að viðhalda svokallaðri frystiskyldu á innfluttu kjöti. Telja Óli Björn og Haraldur mögu- legt að setja lög um afnám frystiskyldu á innfluttu kjöti í þjóðaratkvæða- greiðslu? Telja þeir félagar að með því féllu niður þær skaðabótakröfur sem settar hafa verið fram á hendur ríkinu vegna samningsbrota? Auðvitað ekki, það blasir við! Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins er á villigötum ef hann ætlar sér fyrst að samþykkja samningsviðauka við EES- samninginn og halda síðan þjóð- aratkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að brjóta kjarnaákvæði í þessum samningsviðauka. Verði leið Haraldar fyrir valinu er hætt við að spurningin í þjóðar- atkvæðagreiðslunni verði: Vilt þú a) samþykkja sæstreng, eða b) borga skaðabætur? Eftir Bergþór Ólason » Verði leið Haraldar fyrir valinu er hætt við að spurningin í þjóð- aratkvæðagreiðslunni verði: Vilt þú samþykkja sæstreng eða borga skaðabætur? Bergþór Ólason Höfundur er þingmaður Miðflokksins. Plástur Haraldar settur á rangt sár Óstjórn orkumála er ein af ástæðum viðvar- andi efnahagsstöðn- unar ESB sem fer versnandi. Orkuverð er orðið of hátt og veldur óeirðum á göt- um úti, iðnaðarfjár- festingar fara til ann- arra landa og atvinnuleysi breiðist út. Afskipti ESB af orkumálum aðild- arlanda, draumurinn um „Orku- samband ESB“, koma í formi til- skipana frá Brussel og hafa verið til baga fyrir aðildarlöndin. Tilskip- anapakki 1 og 2 splundraði orkufyr- irtækjum, kom á fót sýnd- arsamkeppni og dýrari rekstri. 3. pakkinn færir orkukerfin beint undir yfirráð og stjórnsýslu ESB og eignarhald og nýtingu einkafjár- magns í ESB/EES. Tilskipun (2009/72) um 3. pakk- ann segir m.a.: – nýtt stjórnvald verður stofnað hér (raforkumarkaðseftirlit) sem sér um að regluverki ESB sé fylgt, íslensk stjórnvöld hafa engin völd yfir því. Verkefni þess eru m.a.: – framkvæma ákvarðanir ACER og framkvæmdastjórnar ESB – gefa út bindandi ákvarðanir um raforkufyrirtæki – ákvarða eða samþykkja gjald- skrár – virkjanaleyfi á Íslandi skal aug- lýsa í Stjórnartíðindum ESB Fyrirtæki í ESB/EES, eða dótt- urfyrirtæki hér, geta boðið í virkj- analeyfi sem verður úthlutað í sam- ræmi við regluverk ESB/EES. 3. pakkinn einkavæðir fyrirtæki orku- kerfisins og veitir einkafjármagni aðgang að orkulindunum. 3. pakkinn setur af stað hömlu- lausa útþenslu vindorku og sólar- orku með útbreiddum landslýtum og umhverfisspjöllum. Fjárfesting í vatnsorkuverum og jarðorkuverum verður einnig sett í forgang og flýti- meðferð, fjárfestar boðnir velkomnir, fé útvegað. Noregur og Ísland eru helstu skot- mörkin. EES-reglu- verkið hefur þegar heimilað ESB/EES- aðilum að eiga eignir, og land með land- kostum, þar með tald- ar virkjanir, hérlendis. Með 3. orkupakkanum staðfestist réttur fyrir- tækja í ESB/EES til að eiga og reka orkufyrirtæki á Ís- landi og nýta orkuauðlindir lands- ins í sína þágu. Stefna ESB, eða réttara sagt draumar, er að „nýta orku aðild- arlanda í þágu sambandsins“, mynda stórt samtengt orkukerfi ESB/EES með orkuver og orku- fyrirtæki í einkaeigu sem lúta stjórnvaldi ESB eingöngu, án af- skipta heimamanna. „Orkustofnunin“ ACER sér um að farið sé eftir fyrirmælum ESB og er með útibú í aðildarlöndum ESB/EES. Venjulegir orkugjafar, gas, olía, kol og úran, falla ekki í kramið hjá ESB, óstöðug og dýr vind- og sólarorka er fyrirskipuð. Fallvatnsorka og jarðvarmi eru vin- sæl þar sem hægt er að ná í þannig orku og hefur ESB í hyggju að nýta orkulindir Noregs og Ísland að fullu í sína þágu. Valdið sem ESB hefur með EES-samningnum gerir ESB fært að setja ráðstöfun á auðlindum þessara landa undir sitt regluverk og stjórnsýslu og nýta orkuna í sína þágu og sinna fyr- irtækja. Orkukerfi aðildarlanda ESB/ EES eru oft góð en af af ýmsum gerðum og hafa verið byggð upp með miklu fé á löngum tíma. Kjarn- orka er víða notuð, Finnar og Bret- ar eru að reisa ný ver. Gas, kol og olía eru miklir orkugjafar, vatns- orka er á mörgum stöðum. Allir þessir orkugjafar eru aðgengilegir, hagkvæmir og mikil geta og reynsla til við að nýta þá og lands- lýti og umhverfisáhrif af notkun þeirra þekkt og takmörkuð. Margir orkugjafar eru til í ofgnótt og skortur ekki í fyrirsjáanlegri fram- tíð. Almannaeign er á orkufyrirtækj- um víða í ESB/EES. Það fyrir- komulag hefur reynst vel að jafnaði þar eð nærþjónusta er hagkvæm- asta rekstrarkerfi orkunýtingar. Hætta á fáokun er mikil þegar orkufyrirtækin eru í einkaeigu. Ís- lenska orkukerfið var að fullu í al- mannaeigu fyrir daga EES og eitt það hagkvæmasta. Tilskipanapakkar ESB verða sí- fellt draumórakenndari. ESB tók formlega upp 4. orkupakkann 22. maí 2019, hann heitir „Hrein orka fyrir alla Evrópubúa-pakkinn“ og setur kvaðir á aðildarlöndin um að framleiða og nota „hreina“ orku. Kvaðirnar eru óframkvæmanlegar fyrir flestöll ESB-lönd en setja aukinn kraft í að ná orku frá t.d. Noregi og Íslandi til handa ESB-fyrirtækjum. Orkukreppan fer dýpkandi í ESB. Það er afleiðing afskipta Brussel af orkumálum aðildarland- anna og hefur leitt af sér stöðugt hækkandi orkuverð og rýrnandi lífskjör, vaxandi orkuskort, iðnaðar- flótta og atvinnuleysi. Stefnumörk- unina skortir raunsæi og stjórnun orkumála er röng. Ísland hefur vegna EES verið að dragast með inn í orkukreppu ESB og versnar ástandið með hverju nýju valdboði, „orkupökkum“, frá ESB. Pyngjur almennings á Íslandi léttast með hverjum pakkanum. Eftir Friðrik Daníelsson » Stefna ESB er að „nýta orku aðild- arlanda í þágu sam- bandsins“ Friðrik Daníelsson Höfundur er stjórnarmaður í Frjálsu landi. Ísland er að dragast með í orkukreppu ESB

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.