Morgunblaðið - 30.07.2019, Side 20

Morgunblaðið - 30.07.2019, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 2019 Atvinnuauglýsingar Verslun Okkur vantar starfsmann við afgreiðslu, lítinn lager og símavörslu í verslun okkar í Grafarvogi. Vinnutími frá 8:30-16:30, 3 daga vikunnar og 10:00-18:00, 2 daga vikunnar. Upplýsingar: elin@krumma.is Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9- 16. Opin handavinnustofa kl. 9-12. Opið hús t.d. spil kl. 13-15. Brids kl. 12.30. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinnuhópur kl. 12-16. Opið fyrir innipútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. S. 535 2700. Boðinn Brids og kanasta kl. 13. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi, spjall og blöðin við hring- borðið kl. 8.50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-16. Salatbar kl. 11.30-12.15. Hádegismatur kl. 11.30. Gáfumannakaffi kl. 14.30. Kosning stendur yfir á nafni á nýju æfingatækin, lýkur kl. 16 á morgun miðvikudag 31. júlí. Komdu og taktu þátt þitt atkvæði skiptir máli. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411 2790. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Tölvu- og snjallsímakennsla kl. 10.30. Opin handverkstofa alla virka daga. Heitt á könnunni fyrir hádegi. Hádegismatur frá kl. 11.30-12.30 alla daga vikunnar og kaffi frá kl. 14.30-15.30 alla virka daga. Verið velkomin á Vitatorg. Nánari upp- lýsingar í síma 411 9450. Garðabær Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 13 handavinna, kl. 13.30 alkort. Gullsmári Myndlistarhópur kl. 9-11.30. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45, hádegismatur kl. 11.30. Brids í handavinnustofu kl. 13, kaffi kl. 14.30. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upp- lestur kl. 11, hádegisverður kl. 11.30, kaffihúsaferð kl. 14, síðdegiskaffi kl. 14.30, tölvu- og snjalltækjakennsla kl. 15.30. Uppl. í s. 411 2760. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í Sundlaug Seltjarnarness kl. 7.10, kaffi- spjall í króknum kl. 10.30, pútt á golfvelli kl. 13.30. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Bókabíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568 2586. Bækur Allar 4 eftir Guðlaug 3,900 kr. frítt með Póstinum Fortunu slysið í Eyvindarfirði á Ströndum 1787 Á hjara veraldar Lífvörður Jörundar hundadaga- kóngs Þórður Þ. Grunnvíkingur Vestfirska forlagið jons@snerpa.is Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bókhald NP Þjónusta Sé um liðveislu við bókhaldslausnir o.fl. Hafið samband í síma 831-8682. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Veiði Sumarið er tíminn S. 555 6090 • heimavik.is Tveir góðir úr nýju netunum Reynsla • Þekking • Gæði Heimavík, s. 892 8655 Silunganet • Sjóbleikjunet Flot og Sökknet Fyrirdráttarnet Ofurnet fyrir fiskeldisfélög Bleikjugildrur Netin í littlasjó tilbúin Sendum um land allt Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Hreinsa þakrennur ryðbletta þök og tek að mér ýmis verkefni Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Smá- og raðauglýsingar ✝ Erla GuðrúnÞórðardóttir fæddist á Akureyri 20. ágúst 1937. Hún lést á Landspítalan- um Hringbraut 23. júlí 2019. Foreldrar henn- ar voru Stefanía Jó- hanna Steindórs- dóttir, f. 18. júlí 1913, d. 24. sept- ember 1995, og Þórður Sigursveinn Aðal- steinsson, f. 28. september 1901, d. 10. maí 1982. Systur Erlu Guð- rúnar eru: Ásta, f. 12. október 1938, Marta, f. 30. nóvember Adolfs Garðars eru: 1) Margrét Unnur, f. 14. nóvember 1958, maki Leo Santos Shaw, f. 11. desember 1964. Synir þeirra eru: Ad, Frosti og Tex. 2) Stef- anía, f. 27. ágúst 1960, maki Sig- urður Halldórsson, f. 13. janúar 1963. Börn þeirra eru: Viktoría, Klara og Tómas. 3) Guðmundur Viðar, f. 2. september 1961, maki Lilja Sigurðardóttir, f. 9. maí 1965. 4) Garðar, f. 11. nóvember 1970, maki Eirný Þöll Þórólfsdóttir, f. 11. júlí 1973. Dætur þeirra eru Katla, Hekla og Eyja. Erla ólst upp og gekk í skóla á Akureyri, fór í Húsmæðraskól- ann á Ísafirði og fluttist til Reykjavíkur árið 1957. Síðustu árin bjuggu þau Adolf í Kópa- vogi. Útför Erlu Guðrúnar fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 30. júlí 2019, og hefst athöfnin kl. 13. 1940, Alda, f. 30. desember 1946, og Þórdís, f. 23. apríl 1955. 12. júlí 1958 gift- ist Erla Guðrún eftirlifandi eigin- manni sínum, Adolf Garðari Guðmunds- syni, f. 14. júní 1935. Foreldrar Adolfs voru Magnea Ingi- björg Gísladóttir, f. 16. apríl 1903, d. 3. júní 1975, og Guðmundur Kristinn Símonar- son, f. 22. ágúst 1897, d. 14. ágúst 1988. Börn Erlu Guðrúnar og Það var sólríkt og fallegt sumar- kvöld 23. júlí sl. þegar hún Erla, mín elskulega tengdamóðir, kvaddi þennan heim. Erla fæddist á Akureyri 20. ágúst 1937 og var var elst fimm systra. Hún gekk í skóla á Akur- eyri og fór í Húsmæðraskólann á Ísafirði. Hún giftist Dolla sínum árið 1958 og eignuðust þau þrjú börn á fjórum árum, Margréti Unni 14. nóvember 1958, Stefaníu 27. ágúst 1960 og Guðmund Viðar 2. september 1961. Hún var fyrsta konan til að koma aftur á Fæðing- arheimili Reykjavíkur sem hóf starfsemi 18. ágúst 1960. Fjórða barnið, Garðar, fæddist 11. nóvem- ber 1970. Ég var svo sannarlega heppin þegar ég kynntist Guðmundi en þau Erla og Dolli tóku afskaplega vel á móti mér. Hún hugsaði vel um sína fjölskyldu og þau Dolli voru einstaklega samrýnd hjón. Erla var fagurkeri og naut þess að fegra umhverfi sitt og heimili þeirra hjóna ber henni fagurt vitni. Hún var glæsileg kona og ávallt fallega klædd og vel tilhöfð og fannst skemmtilegt að fara í versl- anir og finna sér eitthvað fallegt. Hún var mikil hannyrðakona sem saumaði og prjónaði glæsiflíkur á börn sín eins og tíðkaðist á þeim tíma. Þau Dolli ferðuðust heilmikið og er mér ákaflega minnisstæð vel heppnuð ferð okkar Guðmundar með þeim hjónum til San Franc- isco, það var þeirra fyrsta og eina ferð til Bandaríkjanna. Einnig var skemmtilegt þegar börnin hennar og við tengdabörnin komum henni á óvart á 80 ára afmælinu með því að mæta til Brighton á Englandi þar sem hún hélt upp á afmælið hjá Margréti dóttur sinni sem þar býr. Ekki átti hún von á okkur og við- brögðin voru eftir því en mikið þótti henni vænt um þetta framtak okkar. Þau fóru annars oftast til sólríkra landa og nutu lífsins vel í sól og hita. Erla var listhneigð mjög og sótti oft tónleika og var með áskriftar- kort í leikhús til margra ára. Heimahagarnir á Akureyri áttu alltaf sinn sérstaka stað í hjarta hennar og fóru þau hjón oft á hennar heimaslóðir. Með þessum orðum kveð ég elskulega tengdamóður mína og við eigum eftir að sakna hennar meira en orð fá lýst. Lilja Sigurðardóttir. Erla Guðrún Þórðardóttir ✝ Erlendur Sig-tryggsson fæddist á Akranesi 5. ágúst 1947. Hann lést 15. júlí 2019. Foreldrar hans voru Snæborg Þor- steinsdóttir, f. 17. október 1926, d. 4. september 1988, og Sigtryggur Norð- fjörð Jónatansson, f. 19. janúar 1917, d. 28. mars 1988. Systkini hans eru Þorsteinn, f. 15. mars 1945; Helga, f. 5. júlí 1946, eiginmaður hennar er Kjartan Heiðar Margeirsson; Jónatan, f. 8. nóvember 1948, hans eru Jónas, Hrönn, Gabríel Úlfur og Hrafnhildur Erla. 2) Elsa Rún, f. 20. maí 1985, sam- býlismaður hennar er Reynir Magnús Jóelsson. Þau eiga eina dóttur, Ronju Björk. Fyrir á Reynir Magnús soninn Jóel Helga. Erlendur ólst upp á Akranesi til ellefu ára aldurs. Móðir Er- lends og systkina hans veikist ung og fór Erlendur í sveit á Hreimsstöðum í Norðurárdal og var þar til rúmlega tvítugs þar sem hann vann við bústörf og á bæjum allt um kring. Hann var þrígiftur. Bjó lengi vel á Laugar- bakka og vann þar á verkstæði. Frá Laugarbakka flutti hann í Stykkishólm ásamt frænda sín- um og vini. Síðar flutti hann rétt út fyrir Stykkishólm, í Léttuhlíð, þar sem hann bjó til dauðadags. Erlendur verður jarðsunginn frá Akraneskirkju í dag, 30. júlí 2019, klukkan 13. eiginkona hans er Sjöfn Hinriksdóttir; Elísabet, f. 15. ágúst 1950, sambýlis- maður hennar er Þórarinn Sighvats- son; Jakob, f. 7. september 1951, eiginkona hans Svanhildur Adda Jónsdóttir; Sigrún Rósa, f. 6. júlí 1953, eiginmaður Reyn- ald Smári Gunnarsson; Sig- tryggur Snævar, f. 28. júlí 1956, eiginkona hans er Helga Bald- vina Ásgrímsdóttir. Börn Erlends eru: 1) Þorsteinn Snævar, f. 5. mars 1969. Börn Elsku pabbi minn. Ég bíð ennþá eftir að vera vakin upp af þessari martröð. Ég trúi ekki að ég tali aldrei við þig aftur. Það er ofboðs- lega erfitt að meðtaka það og það á eftir að taka mig langan tíma. Við töluðum svo mikið saman, a.m.k. tvisvar í viku og stundum oftar. Ég er búin að ætla að hringja í þig og þá rekst maður á vegg raunveru- leikans: þú ert ekki hérna lengur. Það var svo gott að tala við þig, þú dæmdir aldrei nokkurn mann, þú myndaðir alltaf þínar eigin skoð- anir. Stóðst við bakið á manni eins og klettur þegar maður þurfti á því að halda. Þú talaðir alltaf hreint út, sem var nú misvel séð en ég er þakklát fyrir að hafa erft það frá þér. Hausinn á mér hefur reikað í hringi síðustu tvær vikurnar og varð mér mikið hugsað til veiðitúr- anna sem við fórum nokkuð oft í þegar ég var lítil. Þegar þú bjóst í Laugarbóli var þér alveg sama þó að öll efri hæðin væri undirlögð af dóti og drasli frá mér bara ef ég lét verkfæraherbergið þitt vera. Ferðalögin í Stykkishólm og Ólafs- vík þar sem við sungum með Creedence Clearwater hástöfum á leiðinni, allar þessar minningar. Ég veit að þér líður vel núna, þú saknaðir mömmu þinnar ótrúlega mikið alla tíð. Ég veit að þú passar upp á ferfætlingana mína og ömmur mínar og alla hina þangað til ég hitti þig aftur. Litla afa- stelpan þín saknar afa síns og það er ofboðslega erfitt en hún huggaði mig um daginn og sagði „þetta er allt í lagi mamma, afi er hjá Þrumu og Birnu“, sem er alveg rétt. Við söknum þín mjög mikið og það er svo erfitt að átta sig á að geta ekki hringt í þig og heyrt röddina. Ég veit að þú vakir yfir okkur þangað til við sjáumst aftur. Elska þig til tunglsins og til baka Hann pabbi gaf mér orð svo yndisleg og ástríkur hann fallegt bros mér sýndi, hann leiddi mig og valdi besta veg hans vitund aldrei köllun sinni týndi. Að muna eftir blíðu höndum hans og hlýjunni ef úti fer að rökkva það er mér eins og kerti kærleikans hið kyrra ljós sem ekkert nær að slökkva. Mér finnst sem tíminn standi oft í stað því stundir sem ég man frá liðnum árum þær láta hjartans orku eignast það sem aðeins verður sagt með fögrum tárum. Ég finn það sækir að mér hugsun hlý og himnesk blóm fá skjól í sálar beði ef sjást í draumi augun enn á ný sem ávallt fylltu hjarta mitt af gleði. Þín dóttir, Elsa Rún. Erlendur Sigtryggsson hafði hann lag á að bjóða upp á hagnýt verkefni í nánum tengslum við íslenskt atvinnulíf. Þessi verkefni höfðu svo áhrif á frekara nám og starfsferil okkar beggja. Þorsteinn Ingi var sérstaklega frjór og skapandi. Sem leiðbein- andi var hann bæði velviljaður og hvetjandi, horfði á stóru myndina en festist ekki í smáatriðum. Hann var líka rausnarlegur leið- beinandi sem leyfði nemendum að njóta heiðursins af verkum sínum. Þessir eiginleikar hafa jafnframt nýst honum vel sem vísindamanni og farsælum stjórnanda hjá Ný- sköpunarmiðstöð Íslands. Sam- skipti og samstarf sem við höfum átt við Þorstein á síðari árum hafa ávallt verið gjöful og ánægjuleg. Við erum lánsöm að hafa kynnst Þorsteini og notið leið- sagnar hans. Við vissum alltaf að við áttum stað í hjarta hans eins og hann í okkar. Þorsteinn var að- eins 65 ára að aldri og sorglegt fráfall hans ótímabært. Við vottum Bergþóru, börnum hans og barnabörnum, fjölskyldu og vinum samúð okkar. Guðrún Sævarsdóttir, Þórður Magnússon. Kveðja frá Verkfræðinga- félagi Íslands. Með Þorsteini Inga Sigfússyni er genginn traustur samstarfs- félagi Verkfræðingafélags Ís- lands. Hann sýndi félaginu ætíð mikinn velvilja og lagði því lið. Þorsteinn hafði skilning á hlut- verki félagsins í að standa vörð um gæði náms í tæknigreinum og í að efla og miðla þekkingu á sviði vís- inda og tækni. Fyrr á þessu ári hlaut Þor- steinn gullmerki Verkfræðinga- félags Íslands. Í viðurkenningar- skjal er ritað: „Segja má að Þorsteinn sé eðlisfræðingur með verkfræðihjarta.“ Má það til sanns vegar færa. Í ávarpi sínu við at- höfnina þakkaði Þorsteinn þessa lýsingu og taldi hana eiga vel við. Hann skildi mikilvægi þess að tengja saman fræðasamfélagið og atvinnulífið og tók þannig þátt í stofnun margra sprotafyrirtækja á grundvelli rannsókna og þróun- ar á sviðum eðlisfræði og verk- fræði. Framlag Þorsteins til vísinda og samstarfs í að miðla tækni- þekkingu var mikilsvert. Hann vann að því að vekja athygli ungra verkfræðinga og raunvísindafólks á viðfangsefnum tengdum stór- iðju, og kom að því að mennta meistara- og doktorsnema í málm- eðlisfræði og málmverkfræði við Háskóla Íslands og nokkrar aðrar háskólastofnanir erlendis. Til varð þekkingargrunnur íslenskra eðlis- fræðinga og verkfræðinga sem gagnast stóriðjunni, orkufyrir- tækjum og fleirum. Þegar Alþingi stofnaði Nýsköp- unarmiðstöð Íslands (NMÍ) með lögum 2007 var Þorsteini falið að stýra hinni nýju stofnun. Eitt af athyglisverðustu verkefnum NMÍ hefur verið að koma á fót Nýsköp- unarsmiðjum, Fab Lab, um allt land og nýsköpunarsetrum í kjöl- far bankahrunsins. Komið var á formlegu samstarfi Verkfræð- ingafélagsins og Nýsköpunarmið- stöðvar til að bregðast við breytt- um aðstæðum á vinnumarkaði verkfræðinga og tæknifræðinga. Á persónulegum nótum langar mig að minnast samstarfs okkar Þorsteins í Vísinda- og tækniráði og á vegum Samtaka iðnaðarins. Það samstarf var farsælt og einkar ánægjulegt. Eiginmaður minn átti einnig áralangt samstarf við Þorstein hjá Verkfræðistofnun Háskólans og nú síðast um beislun og notkun grænnar orku fyrir fjarskiptastöðvar í óbyggðum. Hugmynda- og lausnabanki Þor- steins var óþrjótandi lind. Þorsteinn var einstakur fræði- maður og frumkvöðull og hlotnað- ist honum margvíslegur heiður fyrir. Við minnumst Þorsteins með hlýju og vottum fjölskyldu og aðstandendum innilega samúð. F.h. Verkfræðingafélags Ís- lands, Svana Helen Björnsdóttir, formaður. Þorsteinn Ingi Sigfússon  Fleiri minningargreinar um Þorstein Inga Sigfús- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.