Morgunblaðið - 30.07.2019, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 30.07.2019, Qupperneq 24
24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 2019 V E R T Heilsutvenna uppfyllir daglega vítamín- og steinefnaþörf Íslendinga í tveimur perlum. - því að sumt virkar betur saman Stundum þarf tvo til Bandaríska hlaupakonan Dalilah Mu- hammad sló í fyrrakvöld heimsmetið í 400 m grindahlaupi á bandaríska meistaramótinu í frjálsíþróttum. Mu- hammad hljóp á 52,20 sekúndum og bætti þar með heimsmet hinnar rúss- nesku Juliu Petsjonkinu frá árinu 2003 um 14/100 úr sekúndu. Muham- mad sem er 29 ára gömul er ólympíu- meistari í greininni frá leikunum í Ríó árið 2016.  Bandaríski kylfingurinn Brooks Koepka tryggði sér í fyrrakvöld jafn- virði 580 milljóna króna þegar hann fagnaði öruggum sigri á World Golf Championship í Memphis í Bandaríkj- unum. Koepka lék samtals 16 höggum undir pari og var þremur höggum á undan næsta manni, Webb Simpson. Rory McIlroy var fyrstur eftir þrjá hringi af fjórum en gaf eftir og endaði í fjórða sæti á 11 höggum undir pari.  Hin suðurkóreska Ko Jin-young er komin aftur í efsta sæti heimslistans í golfi eftir að hafa fagnað sigri á Evian- meistaramótinu í Frakklandi í fyrra- kvöld. Ko hefur þar með unnið á tveim- ur risamótum á þessu ári en hún vann ANA Inspiration í apríl. Alls hefur hún unnið á þremur mótum í LPGA- mótaröðinni en hún hefur verið í hópi 30 efstu á öllum mótum sínum á þessu tímabili og þrisvar endað í 2. sæti. Eitt ogannað SKÝRSLA Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Laun knattspyrnumanna á Íslandi hafa hækkað talsvert á undan- förnum þremur árum. Jafnframt hefur aukist mjög að leikmenn skrifi undir sérstaka viðaukasamninga við sín félög og þá er ánægja með frammistöðu lækna og sjúkraþjálf- ara liðanna í ár minni en árið 2016. Þetta eru meðal helstu niðurstaða í ítarlegri könnun Leikmanna- samtaka Íslands á kjörum og vinnu- umhverfi leikmanna í efstu deild karla í knattspyrnu á Íslandi. Leikmannasamtökin tóku þátt í alþjóðlegri könnun á vinnuumhverfi knattspyrnumanna í efstu deildum, á vegum FIFpro, alþjóðasamtaka atvinnuknattspyrnumanna, árið 2016. Leikmannasamtökin höfðu síð- an frumkvæði að því að gera könn- unina fyrir árið 2019, til að fá víð- tækari sýn á stöðuna í dag, eins og segir í greinargerð með skýrslunni sem Morgunblaðið hefur fengið til skoðunar. Þar kemur fram að 147 leikmenn frá átta félögum hafi tekið þátt í könnuninni árið 2016. Víkingur R. og Stjarnan hafi hafnað beiðni Leik- mannasamtaka Íslands um að þeirra leikmenn tækju þátt, sömuleiðis þjálfari Þróttar, og ekki hefði tekist að láta leikmenn Víkings í Ólafsvík taka hana. Þátt tóku því leikmenn frá FH, KR, Fjölni, Val, Breiðabliki, ÍA, ÍBV og Fylki, 18 til 19 frá hverju liði. Árið 2019 tók samtals þátt 191 leikmaður frá öllum tólf félögum deildarinnar í ár. Fjöldinn var hins vegar afar mismunandi, aðeins þrír leikmenn ÍBV voru með, 11 frá Fylki og 11 frá KA. Á bilinu 13-20 frá Breiðabliki, FH, Grindavík, HK, KR, Stjörnunni og Víkingi R. og flestir voru 23 frá Val og 22 frá ÍA. Tíu fá meira en 970 þúsund Laun leikmanna hafa hækkað talsvert frá árinu 2016. Af 191 leik- manni sem svaraði könnuninni í ár eru 30 prósent, eða 57 leikmenn, með laun á bilinu 242 til 485 þúsund krónur á mánuði, 28 leikmenn (15 prósent) eru með 485 til 970 þúsund á mánuði, fimm leikmenn eru með 970 til 1.820 þúsund á mánuði, Tveir leikmenn eru með 1,8 til 3,6 milljónir á mánuði og þrír leikmenn kváðust vera með meira en 3,6 milljónir á mánuði í laun. Til samanburðar var enginn með meira en 1,8 milljónir í laun á mán- uði árið 2016 og 13 leikmenn fengu 485 til 970 þúsund krónur í mán- aðarlaun. LÍ fagna þessari þróun og segja þetta sýna að hægt sé að vera at- vinnumaður í knattspyrnu á Íslandi. Engin trygging ef viðauka- samningur er brotinn Árið 2016 voru sjö prósent leik- manna með viðaukasamning en 43 prósent árið 2019. LÍ lýsa yfir áhyggjum af þessari gríðarlegu aukningu þar sem leikmenn hafi enga tryggingu sé viðaukasamn- ingur brotinn. Honum þurfi ekki að skila til KSÍ og brot á honum verði því að fara í gegnum almenna dóm- stóla. LÍ ráðleggja engum leikmanni að skrifa undir viðaukasamning en fram kemur að 55 prósent leik- manna vissu ekki að KSÍ myndi ekk- ert aðhafast þótt hann væri brotinn.  54 prósent leikmanna í ár eru með verktakasamning við sitt félag en 29 prósent launþegasamning. Aðrir vissu ekki hvernig samning þeir væru með og LÍ lýsir yfir áhyggjum yfir því að leikmenn hafi ekki kynnt sér eigin samninga nægi- lega vel fyrir undirskrift. Árið 2016 voru tæp 60 prósent leikmanna með launþegasamning og rúm 40 prósent með verktakasamning. Tafir á greiðslum algengar Í ár hafa rúm 32 prósent leik- manna upplifað tafir á launa- greiðslum frá félögum. Það er lækk- un úr 36 prósentum árið 2016 en LÍ segir algjörlega óviðunandi að leik- menn fái ekki laun og bónusa á rétt- um tíma og félögin þurfi að skoða sinn gang.  Í ár eru 45 prósent leikmanna með tveggja ára samning og 39 pró- sent með þriggja ára samning. Með- allengd samninga árið 2016 var 28 mánuðir. Læknar og sjúkraþjálfarar Ánægja með lækna og sjúkra- þjálfara félaganna virðist hafa minnkað. Árið 2016 voru 79 prósent leikmanna deildarinnar ánægð með þeirra störf en 21 prósent óánægt. Í ár var könnunin ítarlegri og nið- urstaðan sú að um 60 prósent væru ánægð eða mjög ánægð, um 17 pró- sent óánægð eða mjög óánægð en hinsvegar voru um 22,5 prósent hlutlaus í þessum efnum.  Miðað við þátttöku í könnuninni hafa erlendir leikmenn síður tekið þátt í henni en þeir íslensku. Af svarendum árið 2016 voru 20 pró- sent erlendir leikmenn en þó voru þeir þá um 25 prósent leikmanna deildarinnar. Í könnuninni 2019 voru 12 prósent þátttakenda erlendir leikmenn, enda þótt erlendir leik- menn hafi í byrjun móts verið um 20 prósent leikmanna. Niðurstaða hennar um að þeim hafi fækkað er rétt en ekki í þeim hlutföllum sem könnunin gefur til kynna. Þvingaðir til að skrifa undir Í ár kveðst 21 leikmaður hafa ver- ið þvingaður til að skrifa undir nýjan samning við félag, rúm 10 prósent leikmanna. Sambærileg tala árið 2016 var þrjú prósent. LÍ segja í nið- urstöðu sinni að samkvæmt þessu leggi félög aukna pressu á leikmenn að skrifa undir nýja samninga og beri því við að annars spili þeir ekki.  Fimm leikmenn kváðust hafa orðið þess varir að liðsfélagar þeirra hefðu verið þvingaðir til að æfa einir árið 2019 og einn leikmaður kvaðst hafa verið látinn æfa einn þegar hann neitaði að gera starfsloka- samning við félagið. Engin dæmi um þetta komu fram í könnuninni árið 2016. Tekið er fram í skýrslunni að ekki sé hægt að fullyrða að um atvik á Íslandi sé að ræða en slík vinnu- brögð eru fordæmd, fyrirfinnist þau. Frí leikmanna styttast Sumarfrí leikmanna hafa styst umtalsvert á þremur árum. Árið 2016 fengu 15 prósent leikmanna minna en tíu daga frí en árið 2019 hefur sú tala hækkað um helming, eða í 30 prósent. „Undirbúnings- tímabilið á Íslandi er örugglega það lengsta í heimi og því ótrúlegt að leikmenn fái ekki lengra frí. Lág- mark ætti að vera að leikmenn fái 30-40 daga í frí,“ segir í niðurstöðum skýrslunnar. Sjö prósent leikmanna deildar- innar segjast ekki fá frí neinn dag vikunnar og það er óbreytt hlutfall frá 2016. Aðrir segjast fá minnst einn frídag í viku. LÍ hvetja viðkom- andi félög til að taka þetta til sín og passa upp á að leikmenn þeirra fái frí.  Árið 2016 svöruðu fjögur pró- sent leikmanna því játandi að við þá hefði verið rætt um að hagræða úr- slitum leikja og prósentan er sú sama árið 2019.  Um 97 prósent leikmanna eiga afrit af leikmannasamningi sínum við félagið og það hlutfall er óbreytt á milli ára. Þrír með meira en 3,6 milljón- ir á mánuði?  Laun knattspyrnumanna á Íslandi hafa hækkað nokkuð á þremur árum Morgunblaðið/Hari Könnun ÍA og Valur áttu flesta leikmenn í hópi þeirra sem tóku þátt í könn- un Leikmannasamtaka Íslands fyrir tímabilið 2019. Það tók Viðar Örn Kjartansson ekki langan tíma að stimpla sig inn með sínu nýja liði Rubin Kazan í rúss- nesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Eftir að hafa spilað sinn fyrsta leik í síðustu viku reyndist Viðar hetjan í öðr- um leiknum í gær og tryggði 1:0-sigur á Akhmat Grozní. Viðar Örn kom af bekknum í hálfleik og skoraði sig- urmarkið á 73. mínútu. Hann fékk þá stungusendingu inn fyrir vörnina, lék á markvörðinn og skoraði sitt fyrsta mark, en Rubin er með sjö stig eftir þrjá leiki. Viðar Örn, sem er í láni frá Rostov í sömu deild, lék átta leiki þar í fyrra en náði ekki að skora. Hann var í kjölfarið lánaður til Hammarby í Svíþjóð og skoraði þar sjö mörk í 15 leikjum. Viðar Örn hefur nú skorað deildarmörk í sex lönd- um; Íslandi, Noregi, Kína, Svíþjóð, Ísrael og nú Rússlandi. yrkill@mbl.is Viðar skoraði í sjötta landinu Viðar Örn Kjartansson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.