Morgunblaðið - 30.07.2019, Side 26

Morgunblaðið - 30.07.2019, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 2019 Pepsi Max-deild karla HK – Stjarnan .......................................... 1:1 Víkingur R. – Breiðablik.......................... 3:2 Staðan: KR 14 10 3 1 29:14 33 Breiðablik 14 7 2 5 25:18 23 ÍA 14 6 4 4 20:16 22 Stjarnan 14 5 6 3 22:19 21 Valur 14 6 2 6 25:21 20 Fylkir 14 5 4 5 23:25 19 FH 14 5 4 5 18:21 19 HK 14 5 3 6 18:17 18 Grindavík 14 3 8 3 10:11 17 Víkingur R. 14 3 7 4 21:23 16 KA 14 5 1 8 19:22 16 ÍBV 14 1 2 11 11:34 5 Rússland Rubin Kazan – Akhmat Grozní.............. 1:0  Viðar Örn Kjartansson kom inn á í hálf- leik og skoraði sigurmark Rubin Kazan.  Efstu lið: Zenit 9, Rostov 7, Rubin Kazan 7, Krasnodar 6, Ural 6, CSKA Moskva 6, Arsenal Tula 4, Lokomotiv Moskva 4. Búlgaría Levski Sofia – Botev Plodiv ................... 3:1  Hólmar Örn Eyjólfsson er frá vegna meiðsla hjá Levski Sofia. Svíþjóð Helsingborg – Örebro............................. 1:4  Daníel Hafsteinsson kom inn á sem vara- maður á 76. mínútu í sínum fyrsta leik með Helsingborg. Staðan: Malmö 18 10 7 1 29:12 37 AIK 18 11 4 3 24:11 37 Djurgården 17 10 5 2 28:12 35 Hammarby 17 9 4 4 40:25 31 Gautaborg 17 8 6 3 24:14 30 Häcken 17 9 3 5 24:14 30 Norrköping 18 7 7 4 26:19 28 Elfsborg 17 5 6 6 22:29 21 Örebro 17 6 2 9 24:27 20 Östersund 17 4 8 5 16:23 20 Sirius 17 5 3 9 19:26 18 Helsingborg 17 4 5 8 16:26 17 Falkenberg 17 3 5 9 16:33 14 Kalmar 17 2 7 8 12:21 13 Sundsvall 18 2 5 11 18:28 11 Eskilstuna 17 2 5 10 14:32 11 KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin: Jáverkvöllur: Selfoss – HK/Víkingur . 19.15 Samsung-völlur: Stjarnan – Valur...... 19.15 1. deild kvenna, Inkasso-deildin: Kaplakriki: FH – Tindastóll ..................... 18 Kópavogsvöllur: Augnablik – ÍR ........ 19.15 Varmárv.: Afturelding – Grindavík .... 19.15 Norðurálsvöllur: ÍA – Fjölnir.............. 19.15 1. deild karla, Inkasso-deildin: Leiknisvöllur: Leiknir R. – Grótta...... 19.15 Nettóvöllur: Keflavík – Njarðvík........ 19.15 Eimskipsvöllur: Þróttur R. – Haukar 19.15 Þórsvöllur: Þór – Víkingur Ó............... 19.15 Í KVÖLD! Í FOSSVOGI Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Víkingar eru komnir úr fallsæti eftir afar sterkan karaktersigur gegn Breiðabliki í úrvalsdeild karla í knatt- spyrnu, Pepsi Max-deildinni, í 14. umferð deildarinnar á Víkingsvelli í Fossvoginum í gær. Nikolaj Hansen kom Víkingum yf- ir stax á 13. mínútu og staðan 1:0 í hálfleik. Thomas Mikkelsen jafnaði metin fyrir Blika á 54. mínútu áður en Guðmundur Andri Tryggvason kom Víkingum aftur yfir, mínútu síðar. Viktor Karl Einarsson jafnaði metin á nýjan leik fyrir Blika á 56. mínútu og það var svo Guðmundur Andri Tryggvason sem skoraði sigurmark leiksins á 63. mínútu. Víkingar hafa oft spilað betur en þeir gerðu í gær en þeim gæti eflaust ekki verið meira sama. Þeir nýttu færin sín vel, eitthvað sem hefur vantað hjá liðinu í sumar, og Guð- mundur Andri Tryggvason bætti upp fyrir slaka varnarvinnu sína með tveimur frábærum mörkum. Þá var Sölvi Geir Ottesen magnaður fyrir Víkinga en spilaði meiddur á nára í leiknum en það virtist ekki há honum neitt sérstaklega mikið. Miðjumenn liðsins skildu hins vegar mikið pláss eftir á miðsvæðinu og þeir verða halda stöðu betur því þeir Kári Árna- son og Sölvi Geir geta ekki étið alla bolta, þótt góðir séu. Blikar byrjuðu leikinn af miklum krafti og hefðu með réttu átt að vera komnir yfir eftir tíu mínútna leik. Eins og svo oft áður réðu þeir illa við mótlætið og um leið og liðið lenti und- ir fóru þeir inn í skelina. Þeir byrjuðu hins vegar seinni hálfleikinn gríðar- lega sterkt, jöfnuðu metin, en fengu strax mark í andlitið. Þá voru Blik- arnir oft og tíðum klaufar því það var mikið pláss á milli varnar og miðju hjá Víkingum sem leikmenn Kópavogsliðsins nýttu sér hreinlega illa. Þá fékk liðið á sig tvö mjög svo klaufaleg mörk sem er einfaldlega hægt að skrifa á reynsluleysi hægri bakvarðar liðsins, Karls Friðleifs Gunnarssonar, sem steinsofnaði á verðinum í báðum mörkunum sem Guðmundur Andri skoraði. Víkingar eru komnir úr fallsæti eftir slaka frammistöðu. Ef Arnar Gunnlaugsson fær yngri leikmenn liðsins til þess að sinna varnarvinn- unni betur geta Víkingar auðveldlega blandað sér í efri hluta deildarinnar. Enn og aftur klikka Blikarnir á stóra prófinu og þetta er orðið eins konar „dejavu“ að skrifa um tapleiki hjá þeim þegar þeir þurfa að vinna. Leik- menn liðsins bera ábyrgð á tapinu í gær og það er lítið við þjálfara liðsins að sakast í þetta skiptið. Víkingar lögðu karakters- lausa Blika í markaleik  Víkingar beðið lengi eftir sigri  Breiðablik vann síðast deildarleik 22. júní Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Hástökk Nikolaj Hansen og Víkingarnir flugu hærra en Alexander Helgi Sigurðarson og aðrir Blikar í gærkvöldi. 1:0 Nikolaj Hansen 13. 1:1 Thomas Mikkelsen 54. 2:1 Guðmundur A. Tryggvason 55. 2:2 Viktor Karl Einarsson 56. 3:2 Guðmundur A. Tryggvason 63. I Gul spjöldSölvi Geir Ottesen, Francisco Marmolejo, Atli Hrafn Andrason (Víkingi), Höskuldur Gunnlaugsson Thomas Mikkelsen, Guðjón Pétur Lýðsson, Damir Muminovic (Breiða- bliki). Dómari: Matt Donohue, 6. Áhorfendur: 1.311. VÍKINGUR R. – BREIÐABLIK 3:2 MM Guðmundur A. Tryggvason (Víkingi) Sölvi Geir Ottesen (Víkingi) M Ágúst Eðvald Hlynsson (Víkingi) Nikolaj Hansen (Víkingi) Davíð Örn Atlason (Víkingi) Viktor Karl Einarsson (Breiðabliki) Guðjón Pétur Lýðsson (Breiðabliki) Höskuldur Gunnlaugsson (Breið.) Davíð Ingvarsson (Breiðabliki) Valur freistar þess í kvöld að halda hnífjöfnu kapphlaup- inu áfram á toppi Pepsi Max-deildar kvenna í knatt- spyrnu þegar liðið sækir Stjörnuna heim í 12. umferð- inni. Valur endurheimtir toppsætið með sigri, með betri markatölu en Breiðablik, en einu stigin sem liðin hafa tapað í sumar er í jafnteflisleik þeirra. Stjarnan rétti vel úr kútnum í síðustu umferð með stórsigri á HK/Víkingi, 5:2, eftir að hafa þar áður ekki skorað síðan í maí. Liðið er í fimmta sæti deildarinnar, þó aðeins þremur stigum frá fallsæti. Valur vann einnig öruggan sigur í síðustu umferð, 3:0 gegn KR, þar sem Hlín Eiríksdóttir skoraði tvö mörk. Hún er markahæst í deildinni með 11 mörk eins og Blikarnir Agla María Albertsdóttir og Berg- lind Björg Þorvaldsdóttir. Á sama tíma í kvöld mætast svo Selfoss og botnlið HK/Víkings, en Sel- fyssingar geta styrkt stöðu sína í fjórða sætinu enn frekar með sigri. Á meðan freistar HK/Víkingur þess að jafna KR og Keflavík að stigum í æsi- spennandi fallbaráttu deildarinnar. yrkill@mbl.is Heldur kapphlaupið áfram? Hlín Eiríksdóttir Kvennalið Fylkis í knattspyrnu hefur styrkt raðir sínar fyrir lokaátökin í Pepsi Max-deildinni í sumar og hefur bætt við sig tveimur leikmönnum. Í gær var gengið frá félagaskiptum Rutar Kristjáns- dóttur til Fylkis á ný og snýr hún þar með aftur til upp- eldisfélagsins sem hún yfirgaf fyrir þremur árum. Rut kemur frá ÍBV og kom þar við sögu í fimm leikjum fyrri hluta sumars. Það var hennar þriðja tímabil í Eyjum þar sem hún hefur ávallt verið í stóru hlutverki. Hún fagnaði meðal annars bikarmeistaratitli með ÍBV árið 2017. Fylkir hefur sömuleiðis fengið til sín Ísabellu Önnu Húbertsdóttur og kemur hún að láni frá Val. Ísabella hefur verið í láni hjá Fjölni og skoraði þrjú mörk í sjö leikjum í fyrra og var búin að spila 10 leiki í 1. deildinni í ár. Fylkir er sem stendur í sjötta sæti deildarinnar með 13 stig, stigi fyrir of- an ÍBV og þremur stigum frá fallsæti, og mætir einmitt ÍBV á morgun. Fylkiskonur styrkja sig frekar Rut Kristjánsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.