Morgunblaðið - 30.07.2019, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 2019
Reykjavik Raincoats
LAUGAVEGUR 62, 101 RVK
www.reykjavikraincoats.com
Sími: 5711177 - info@reykjavikraincoats.com
Ú T S A L A
Ú T S A L A
Ú T S A L A
10-40%
AFSLÁTTUR
Í VERSLUN OKKAR
Bjarki Sigurðsson, HFA, tryggði sér
sigur í karlaflokki á Íslandsmótinu í
fjallabruni sem fram fór í Kjarnaskógi
á Akureyri um helgina. Bjarki kom í
mark á tímanum 1:44,486 mínútum en
nafni hans Bjarki Jóhannsson, HFA,
hafnaði í öðru sæti og Gestur Jóns-
son, BFH, í þriðja sæti. Í kvennaflokki
vann Emilia Niewada, HFA, öruggan
sigur en hún kom fyrst í mark á tím-
anum 1:57,032 mínútum. Gunnhildur
Ingibjörg Georgsdóttir, BFH, kom
önnur í mark og Sara Ómarsdóttir,
HFA, hafnaði í þriðja sæti.
Daníel Hafsteinsson spilaði sinn
fyrsta leik með sænska liðinu Hels-
ingborg þegar liðið tapaði á heimavelli
fyrir Örebro í gærkvöld, 4:1. Daníel var
keyptur frá KA á dögunum og spilaði
síðasta stundarfjórðunginn, en skað-
inn var þá þegar orðinn fyrir Hels-
ingborg sem er með 17 stig eftir 17
leiki í úrvalsdeildinni.
KR-ingar staðfestu í gær komu
framherjans Kristjáns Flóka Finn-
bogasonar til félagsins,
en félagaskipti hans frá
Start í Noregi voru frá-
gengin fyrr í mán-
uðinum. Kristján Flóki
er nú samnings-
bundinn í Vest-
urbænum út
tímabilið 2023
en þarf að bíða
í viku eftir sín-
um fyrsta leik
þegar KR tekur
á móti Grindavík
þriðjudaginn 6.
ágúst.
Eitt
ogannað
Stjörnumenn, sem ekki hafa komist
almennilega í gang í sumar. Stjarnan
er búin að gera þrjú jafntefli í röð og
aðeins einu sinni í sumar unnið tvo
leiki í röð. Það vantar stöðuleika og ef
ekki hefði verið fyrir tvær mjög góð-
ar markvörslur Haraldar Björns-
sonar í seinni hálfleik, hefði getað
farið verr. Stjörnumenn verða að ná
stöðugri úrslitum, ætli liðið sér að
spila í Evrópukeppni næsta sumar.
Nái HK-ingar að halda sínu striki,
ætti liðið að halda sæti sínu í efstu
deild. HK hefur vaxið gríðarlega í
sumar og lært fljótt á deildina. Það
segir allt sem segja þarf að það komi
ekki lengur á óvart að HK nái úrslit-
um gegn einu af sterkustu liðum
deildarinnar.
Góð úrslit HK-inga koma
ekki lengur á óvart
HK og Stjarnan skiptu með sér stigunum Vantar stöðugleika í Stjörnuna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jafntefli Heiðar Ægisson, Stjörnunni, og Valgeir Valgeirsson, HK, skiptu með sér stigunum í Kórnum.
Í KÓRNUM
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
HK og Stjarnan skildu jöfn, 1:1, er
liðin mættust í Pepsi Max-deild karla
í fótbolta í Kórnum í gærkvöldi. Heilt
yfir eru úrslitin sanngjörn, þótt HK-
ingar hafi verið sáttari þegar þeir
gengu af velli. Stigið er gott fyrir
HK, sem er enn í fallbaráttu, þrátt
fyrir gott gengi að undanförnu. Það
er ekki sjálfgefið að fá stig á móti
sterku liði Stjörnunnar þegar þú ert í
baráttu í neðri hlutanum. HK verður
það hins vegar ekki mikið lengur með
þessu áframhaldi. HK hefur aðeins
tapað einum af síðustu sex og unnið
mjög sterka andstæðinga í leiðinni.
Haraldur bjargaði Stjörnunni
HK náði ekki þeim hæðum sem lið-
ið náði gegn FH í síðustu umferð.
Stjörnumenn voru mikið sterkari
fyrsta rúma hálftímann. Það var al-
gjörlega verðskuldað þegar Stjarnan
komst yfir á 23. mínútu með marki
Baldurs Sigurðssonar. Stjarnan var
líklegri til að bæta við mörkum, en
nánast upp úr engu jafnaði Atli Arn-
arson skömmu fyrir hlé. Markið
færði HK-ingum mikið sjálfstraust
og kraft og þegar upp var staðið hefði
HK alveg getað náð í þrjú stig, eins
og Stjarnan. Það hafði töluverð áhrif
á leik HK að Björn Berg Bryde var
ekki með. Hægri bakvörðurinn Birk-
ir Valur Jónsson lék í miðverðinum
og Valgeir Valgeirsson spilaði í
hægri bakvarðarstöðunni. Valgeir
átti erfitt uppdráttar í fyrri hálfleik
og var sóknarleikur HK ekki eins
sterkur með hann aftar á vellinum.
Stjörnumenn sóttu mikið að Valgeiri
framan af og varð markið þeirra til
eftir sókn upp vinstri kantinn. HK
fann leið til að koma sér aftur inn í
leikinn og ná í stig, sem gæti reynst
mikilvægt.
Úrslitin eru dæmigerð fyrir
0:1 Baldur Sigurðsson 23.
1:1 Atli Arnarson 39.
I Gul spjöldRúnar Páll Sigmundsson,
Heiðar Ægisson, Guðmundur Steinn
Hafsteinsson (Stjörnunni).
Dómari: Guðmundur Ársæll Guð-
mundsson, 8.
Áhorfendur: 890.
HK – STJARNAN 1:1
M
Ásgeir Börkur Ásgeirsson (HK)
Hörður Árnason (HK)
Leifur Andri Leifsson (HK)
Ásgeir Marteinsson (HK)
Atli Arnarson (HK)
Birkir Valur Jónsson (HK)
Haraldur Björnsson (Stjörnunni)
Baldur Sigurðsson (Stjörnunni)
Hilmar Á. Halldórsson (Stjörn.)
Heiðar Ægisson (Stjörnunni)
Martin Rauschenberg (Stjörnunni)
Keppnisferli bandaríska kylfingsins Toms Watsons er
lokið. Watson var á meðal keppenda á Breska öld-
ungamótinu sem er eitt risamótanna fyrir kylfinga 50
ára og eldri. Tilkynnti hann að mótið væri hans síðasta á
keppnisferlinum en Watson lét staðar numið í keppnum
við yngri menn þegar hann lék á Masters í síðasta skipti
árið 2016.
Tom Watson vann á risamótunum átta sinnum á ferl-
inum og er sá sjötti sigursælasti frá upphafi á þeim lista.
Á The Open vann hann fimm sinnum. Var hann grátlega
nálægt því að jafna met Harrys Vardon sem vann sex
sinnum á mótinu þegar Watson hafnaði í 2. sæti eftir bráðabana á The
Open árið 2009. Var Watson þá tæplega sextugur og framganga hans á
mótinu með ólíkindum. Íþróttafréttamenn vestan hafs töldu margir hverjir
að hefði Watson tekist að sigra hefði það verið mesta íþróttaafrek allra
tíma. Watson vann á Masters tvívegis og á Opna bandaríska meist-
aramótinu einu sinni. sport@mbl.is
Watson lætur staðar numið
Tom Watson
Valdís Þóra Jónsdóttir var aðeins
einu höggi frá því að komast í
bráðabana um sæti á Opna breska
meistaramótinu í golfi, en hún lék á
lokaúrtökumóti í gær. Valdís lék á
tveimur höggum undir pari, en þær
níu sem léku höggi betur fóru í
bráðabana um þrjú síðustu sætin
inn á mótið sem er um helgina.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir
reyndi einnig fyrir sér á
lokaúrtökumótinu, en lék á þremur
höggum yfir pari og var sex högg-
um frá risamótinu. yrkill@mbl.is
Valdís nálægt
Opna breska
Ljósmynd/LET
Atvinnukylfingur Valdís Þóra Jóns-
dóttir hefur átt stórgott tímabil í ár.