Morgunblaðið - 31.07.2019, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 31.07.2019, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2019 15FRÉTTIR Hlutabréfaverð í Café Coffee Day (CCD), einni stærstu kaffihúsakeðju Indlands, féll um fjórðung í kjölfar frétta af hvarfi stofnanda fyrir- tækisins, VG Siddartha. Hann er tal- inn hafa fallið í ána Nethravathi á mánudagskvöldið. CCD rekur yfir 1.700 útsölustaði vítt og breitt um Indland og hefur vaxið mjög frá þeim tíma þegar það var stofnað árið 1996 í Bangalore. Svo virðist sem Siddartha hafi varpað sér í ána af Ullal-brúnni. Nethravathi er talin í hópi helgra áa Indlands. Samkvæmt indverska við- skiptamiðlinum The Economic Times mun Siddhartha hafa tjáð fólki sínu að hann hygðist fara frá borginni Bengaluruu til Sakleshpur. Á leiðinni hafi hann hins vegar skipað bílstjóra sínum að halda til Mangaluru. Á leið- inni þangað hafi hann látið stöðva bíl- inn þar sem þeir voru staddir á Ullal- brúnni sem þverar Nethravathi. Hafi hann þá stigið út úr bílnum og beðið bílstjórann að bíða sín við brúar- sporðinn. Þegar hann ekki skilaði sér hafi bílstjórinn reynt að hafa sam- band við hann í gegnum síma en ekk- ert gengið. Slökkt hafði verið á sím- anum. Skildi hann eftir bréf? Bréf sem farið hefur um netheima síðasta sólarhringinn, og talið er ritað af Siddhartha, stílar hann á stjórn og starfsfólk Café Coffee Day. Í því kemur fram að honum hafi ekki tek- ist að byggja upp arðbært viðskipta- módel þrátt fyrir tilraunir þar um. Í bréfinu er einnig vísað til gríðarlegs þrýstings frá lánardrottnum og „mik- ils áreitis“ af hálfu háttsettra starfs- manna skattayfirvalda sem hafi vald- ið fyrirtækinu miklum lausafjárvanda. Í bréfinu segir hann einnig að það hafi ekki verið ásetn- ingur sinn að afvegaleiða eða svindla á nokkrum manni með viðskiptum sínum. CCD hefur mótað kaffimenn- inguna á Indlandi allt frá stofnun fyrirtækisins, ekki síst meðal ungs fólks sem leitast við að upplifa lífsstíl fólks á Vesturlöndum. Einkunnarorð fyrirtækisins: „Það getur margt gerst yfir bolla af kaffi,“ eru tvíræð en vísa einnig til vaxandi eftirspurnar meðal fólks á Indlandi eftir að geta sest niður á opinberum stöðum til skrafs og ráðagerða. Árið 2010 leiddi sjóðastýringar- fyrirtækið KKR & Co 200 milljóna dollara fjárfestingu í Coffee Day En- terprises, móðurfélagi CCD. Fyrir- tækið var svo skráð á markað í kaup- höllinni í Bombay í október 2015. Fyrirtækið hefur mætt sífellt harðari samkeppni á síðustu árum, m.a. frá Starbucks og Costa Coffe sem er í eigu Coca-Cola. Þannig mun CCD aðeins hafa skilað sex milljóna dollara hagnaði fyrir skatta á síðast- liðnu ári, þrátt fyrir gríðarleg umsvif. Siddhartha og fjölskylda hans eiga um 53% hlut í CCD. Þau höfðu hins vegar á undanförnum mánuðum lagt stærstan hluta eignar sinnar í fyrir- tækinu fram sem veð gegn lántökum sem miðuðu að því að endur- fjármagna umsvif þeirra. Skatturinn lætur sverfa til stáls Árið 2017 gerðu skattayfirvöld á Indlandi húsleit á nokkrum starfs- stöðvum í eigu Siddhartha og sögðust í kjölfarið hafa aflað gagna sem sýndu fram á skattamisferli. Hann neitaði alla tíð sök. Slagurinn við yf- irvöld náði hins vegar hámarki þegar þau reyndu að koma í veg fyrir að hann seldi 21% hlut sinn í upplýs- ingatæknifyrirtækinu Mindtree. Að lokum náði hann þó að knýja í gegn sölu til Larsen & Toubro í mars síð- astliðnum. Segir Financial Times að verðmiðinn hafi verið 473 milljónir dollara. AFP VG Siddartha hafði ekki átt sjö dagana sæla þegar kom að rekstri CCD. Þá höfðu skattayfirvöld á Indlandi einnig sótt að honum frá árinu 2017. „Kaffikóngur“ Indlands talinn af Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Flest bendir til þess að VG Siddartha, stofnandi Café Coffee Day, stærstu kaffi- húsakeðju Indlands, hafi látið sig falla í ána Nethra- vathi á mánudagskvöld. Talsverð óvissa er uppi um framtíð fyrirtækisins. SJÓNVARPSÞJÓNUSTA Streymisveitan Netflix hefur undan- farin misseri fjárfest fyrir hundruð milljóna Bandaríkjadala í framleiðslu kvikmynda. Með þessu ætlar Netflix að komast inn á markað sem fram til þessa hefur nær eingöngu verið í höndum stórra framleiðenda í Holly- wood. Streymisveitan hefur nú ákveðið fjárveitingu upp á ríflega 520 millj- ónir Bandaríkjadala til framleiðslu þriggja kvikmynda. Myndunum er m.a. ætlað að tryggja að áskrifendur veitunnar haldi ekki á önnur mið í leit að afþreyingu. Þetta herma heimildir Wall Street Journal. Meðal leikara sem fengnir hafa verið að framleiðslu myndanna eru stórleikarar á borð við Dwayne John- son, Ryan Reynolds og Robert De Niro. Hægt verður að nálgast mynd- irnar á veitunni á næstu misserum. Ráðgert er að heildarfjárfesting Netflix í nýju efni, þáttum og kvik- myndum muni nema um 15 millj- örðum Bandaríkjadala á þessu ári. Þannig bindur fyrirtækið vonir við að hægt verði að fylla safn veitunnar af fersku efni, en samkeppni á markaði streymisveitna hefur verið að harðna síðustu mánuði. Eins og áður hefur komið fram olli uppgjör streymisveitunnar fyrir ann- an ársfjórðung þessa árs talsverðum vonbrigðum. Þar kom m.a. fram að hægt hefði verulega á fjölgun áskrif- enda auk þess sem einkaréttur á þáttum, sem hingað til hafa talist til grunnstoða fyrirtækisins, er útrunn- inn eða við það að renna út. Í kjölfar uppgjörsins lækkaði gengi hlutabréfa Netflix um 10%. Með framleiðslu nýs efnis vonast fyrirtækið þó til að hægt verði að snúa þróuninni við. Netflix fjárfestir fyrir háar fjárhæðir AFP Streymisveitan hefur átt undir högg að sækja undanfarin misseri. BREXIT Gengi breska pundsins hefur tekið talsverða dýfu undanfarna daga. Frá upphafi júlímánaðar hefur gengi pundsins gagnvart íslensku krónunni fallið um ríflega 7%. Mið- gengi pundsins stendur nú í 146,92 krónum. Gengi pundsins gagnvart dollara hefur einnig lækkað talsvert og stóð í 1,2168 dollurum í gær. Það hefur ekki verið lægra frá því í mars 2017. Lægst hefur pundið farið í 1,1814 í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Brexit í október 2016. Hafði gengi pundsins þá ekki mælst lægra gagnvart dollar í 33 ár. Miklar breytingar á gengi punds- ins má rekja til óttans við að Bretar yfirgefi Evrópusambandið án út- göngusamnings í haust. Gengi breska pundsins heldur áfram að lækka AFP Boris Johnson stefnir hraðbyri að samningslausu Brexit í haust. VILTU TAKAVIÐ GREIÐSLUMÁNETINU? KORTA býður uppá fjölbreytta þjónustu sem hentar bæði minni og stærri fyrirtækjum. Kannaðu málið. Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, 558 8000 / korta@korta.is / korta.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.