Fréttablaðið - 18.09.2019, Side 4

Fréttablaðið - 18.09.2019, Side 4
www.apotekarinn.is - lægra verð Nýtt Strefen 16,2 mg/ml munnholsúði, lausn inniheldur flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga úr einkennum bráðra hálssærinda hjá fullorðnum. Einn skammtur (3 úðaskammtar) aftast í hálsinn á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, upp að hámarki 5 skammtar á 24 klst. tímabili. Ráðlagt er að nota lyfið að hámarki í þrjá daga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. ERT ÞÚ MEÐ HÁLSBÓLGU? Bólgueyðandi og verkjastillandi munnúði við særindum í hálsi Strefen-sprey-Apotekarinn-5x10.indd 1 03/10/2018 14:55 1 „Ég vild i að ég hefð i get að grip ið syst ur okk ar sem var hrint af svöl un um“ Baráttukonan Þórdís Elva Þorvaldsdóttir boðar til mótmæla gegn niðurfellingu nauðgunarmála. 2 Kona féll fram af svölum í Breið holti Kona féll fram af svölum í Hóla hverfi í Breið­ holti. Vitni sögðu í sam tali við Frétta blaðið að karl maður hefði hent henni fram af þeim niður á steyptar tröppur. 3 Vitni segir einka skila boð af­hjúpa brota þolann Vitni í máli Árna Gils fullyrðir að brotaþolinn í málinu, sem kveður Árna hafa stungið sig í höfuðið með hnífi, sé að ljúga. 4 „For dæma laust virðingar­leysi við störf þingsins“ Snörp orða skipti urðu í þing sal þar sem skipu lags hæfi leikar for seta Al­ þingis voru gagn rýndir. 5 Óttast um líf sonar síns: „Hann er búinn að fá loka dóminn“ Inga Lóa Birgisdóttir óttast um líf sonar síns sem glímt hefur við fíknivanda og kallar eftir hjálp. LÖGREGLUMÁL Konan sem talið er að hafi verið hrint fram af svölum í Hólahverfi í Breiðholti liggur alvar- lega slösuð á sjúkrahúsi en er ekki í lífshættu. Hún féll fram af svölum á annarri hæð hússins en samkvæmt vitnum var henni hrint af svölunum niður á steyptar tröppur. Maðurinn, sem grunaður er um að hafa átt þátt í falli konunnar, var handtekinn á vettvangi og hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fram til 15. október. Maðurinn, sem er á fertugsaldri, er að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæð- inu, talinn hafa rofið í verulegum atriðum skilyrði skilorðsbundins dóms. – bdj, vá Sá grunaði braut skilorð DÓMSMÁL Þingfesting í máli Andr- ésar Kristins Konráðssonar, sem ákærður er fyrir skattalagabrot, tók óvænta stefnu þegar til frjálslegra skoðanaskipta kom milli sækjanda, verjanda og dómara um stöðu rann- sókna- og ákærumeðferða skatta- lagabrota. Við upphaf þinghalds lét sækj- andi málsins þess getið að nýlegur úrskurður ríkisskattstjóra gæti haft áhrif á fjárhæðir í ákæru, ákærða til hagsbóta og til þess gæti komið að gefa þyrfti út aðra ákæru. Gestur Jónsson, verjandi Andrés- ar, sagði ljóst að gerður yrði ágrein- ingur um þennan nýja úrskurð. „Hann verður til meðferðar hjá yfirskattanefnd í 12 mánuði og á sama tíma er málið til meðferðar fyrir dómstólum,“ sagði Gestur og lét fylgja þá skoðun sína að það væri allt komið í vitleysu í meðferð þessara skattamála. Vísaði Gestur þar til nýlegra dóma sem fallið hafa gegn Íslandi í Mannréttindadóm- stól Evrópu um brot gegn ákvæði Mannréttindasáttmálans um bann við endurtekinni refsingu fyrir sama brot. Dómarinn, Guðjón St. Mar- teinsson, lét þess getið að það fari orðið allir fram á frávísun í þessum málum. Farið hefði verið fram á frá- vísun í fjórum slíkum málum í vik- unni og fimm mál sem biðu þingfest- ingar lyktuðu af frávísunarkröfum. Gestur upplýsti að enn eitt málið væri komið til efnismeðferðar hjá MDE og fullyrti að ríkislögmanni hefði nýverið borist bréf frá MDE þar sem því væri beint til stjórn- valda að reyna að ná sáttum í máli Braga Kristjánssonar. Lýsti Gestur því viðhorfi að stjórnvöld yrðu að fara að bregðast við með einhverri línu í þessum málum. Dómarinn tók að nokkru undir áhyggjur verjandans af stöðunni. „Ég hef engan hitt, hvorki verjanda, sækjanda, né dómara sem telur að þetta sé í lagi,“ sagði Guðjón. Sigríður Árnadóttir, sem sótti þing fyrir ákæruvaldið, sagðist þá hafa heimildir fyrir því að tíðinda væri að vænta frá stjórnvöldum alveg á allra næstu dögum og vísaði til nefndar sem skipuð var skömmu eftir að þriðji áfellisdómurinn kom frá MDE í vor. Dómarinn sagði slík tíðindi hafa verið f lutt fyrir löngu og vísaði til nefndar sem skilaði skýrslu árið 2013 þar sem allir helstu emb- ættismenn málaf lokksins sam- mæltust um að breytingar væru óumflýjanlegar og þyldu ekki bið. Meðal þeirra sem skrifuðu undir þá skýrslu var Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri. Fyrirspurn til dómsmálaráðu- neytisins um starf þeirrar nefndar sem skipuð var í vor hafði ekki verið svarað þegar Fréttablaðið fór í prentun. Aðspurður segist Ragnar H. Hall, lögmaður Braga Kristjánssonar, bundinn trúnaði um stöðu máls Braga hjá MDE, samkvæmt reglum hjá dómstólnum sem gilda meðan þess er freistað að ná sáttum. adalheidur@frettabladid.is Lýstu áhyggjum af meðferð skattamála við þingfestingu Jafnt sækjendur, verjendur og dómarar telja meðferð skattlagabrota ekki í lagi nú þegar þrír dómar hafa fallið hjá Mannréttindadómstól Evrópu. Fjórða málið er komið til efnismeðferðar í Strassborg. Þetta kom fram við þingfestingu máls í Héraðsdómi Reykjavíkur á föstudaginn. Sækjandi, verjandi og dómari ræddu skattamálin vítt og breitt við þingsetningu í héraðsdómi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Snúið að ná sáttum við Braga Bragi Kristjánsson var sakfelldur fyrir meiriháttar skattalagabrot, fyrst í héraði árið 2016 eftir að málinu hafði ítrekað verið frestað að beiðni ákærða meðan beðið var niðurstöðu mála sem voru til meðferðar hjá MDE. Málið var að lokum flutt og dæmt þrátt fyrir að niðurstaða væri ekki komin ytra. Dómurinn var svo staðfestur af fullskipuðum sjö manna dómi í Hæstarétti í september 2017. Dómur Hæstaréttar féll nokkrum mánuðum eftir að MDE kvað upp dóm í máli Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Tryggva Jónssonar. Taldi Hæstiréttur málin ekki sambærileg og sakfelldi Braga. Með vísan til þess að fjölskipaður Hæstiréttur sakfelldi Braga kann ríkislögmanni reynast örðugt að ná sáttum við hann í Strassborg. Ég hef engan hitt, hvorki verjanda, sækjanda né dómara sem telur að þetta sé í lagi. Guðjón St. Mar­ teinsson, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur  1 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð Allar nýjustu fréttir og blað dagsins eru fáanleg á www.frettabladid.is 1 8 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :2 3 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 C B -D 8 8 0 2 3 C B -D 7 4 4 2 3 C B -D 6 0 8 2 3 C B -D 4 C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 1 7 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.