Fréttablaðið - 18.09.2019, Síða 14

Fréttablaðið - 18.09.2019, Síða 14
Eignarhaldsfélagið Eldhrímnir, sem er í eigu hjónanna Ingi­mundar Sveinssonar arki­ tekts og Sigríðar Arnbjarnardótt­ ur, ásamt þremur börnum þeirra, hagnaðist um liðlega 3,4 milljarða króna á síðasta ári vegna sölu á hlut sínum í fyrirtækinu The Icelandic Milk and Skyr Corporation, betur þekktu sem Siggi’s Skyr. Þetta má lesa út úr nýbirtum árs­ reikningi Eldhrímnis. Félag Ingi­ mundar og fjölskyldu, sem lagði The Icelandic Milk and Skyr Corpora­ tion fyrst til fjármuni við stofnun þess 2006, var á meðal helstu hlut­ hafa fyrirtækisins þegar það var selt til franska mjólkurrisans Lact­ alis fyrir að lágmarki 370 milljónir Bandaríkjadala í ársbyrjun 2018. Það jafngildir um 40 milljörðum króna miðað við þáverandi gengi. The Icelandic Milk and Skyr Corporation, sem var stofnað sem kunnugt er af Sigurði Kjartani Hilmarssyni, var í um 75 prósenta eigu Sigurðar, ættingja hans, vina og annarra sem þeim tengjast. Þá átti svissneski mjólkurframleiðandinn Emmi Group, eini fagfjárfestirinn í hluthafahópnum, um 22 prósenta hlut og nam hagnaður félagsins við söluna til Lactalis, eins og upplýst var um í Markaðinum fyrr á þessu ári, samtals um 80,9 milljónum dala. Fram kemur í ársreikningi Eld­ hrímnis að hagnaður félagsins hafi numið samtals 3,5 milljörðum 2018 en þar munaði langsamlega mest um söluhagnað hlutabréfaeignar að fjárhæð rúmlega 3,39 milljarðar. Heildareignir í lok síðasta árs námu 3,92 milljörðum og eigið fé var um 3,78 milljarðar. Eignir Eldhrímnis samanstóðu einkum af verðbréf­ um, eða fyrir um þrjá milljarða, og þá nam bókfært virði eignarhluta í ýmsum félögum, meðal annars Flor ealis, Hval hf. og Matorku, sam­ tals um 700 milljónum. Sonur Ingimundar, Sveinn, var á meðal fyrstu samstarfsmanna Sigurðar þegar hann stofnaði fyrir­ tækið í New York og hannaði meðal annars umbúðirnar um skyrið. Var Sveinn jafnframt í hópi stærstu hluthafa skyrfyrirtækisins. – hae Seldi í Siggi’s Skyr með 3,4 milljarða hagnaði 370 milljónir dala var skyrfyrir- tækið selt fyrir að lágmarki í ársbyrjun 2018. MARKAÐURINN ÚTGÁFUFÉLAG Torg., Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000 Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 550 5051 Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is Gamalgróið fjölskyldufyrirtæki með verslun og heildverslun á besta stað í Reykjavík er til sölu. Afkoma er góð með um 80 milljóna kr. ársveltu og ágætan hagnað. Mikill eigin innflutningur sem gefur töluverða möguleika á veltuaukningu bæði í verslun, heildverslun og verktöku. Tilvalið fyrirtæki fyrir hugmyndaríkt fólk eða samhenta fjölskyldu. Fyrirtæki með mikla möguleika Gamalgróið fjölskyldufyrirtæki með verslun og heildverslun á besta stað í Reykjavík er til sölu. Afkoma er góð með um 80 milljóna kr. ársveltu og ágætan hagnað. Mikill eigin innflutningur sem gefur töluverða möguleika á veltuaukningu bæði í verslun, heildverslun og verktöku. Tilvalið fyrirtæki fyrir hugmyndaríkt fólk eða samhenta fjölskyldu. Fyrirtæki með mikla möguleika Fyrirtæki með mikla möguleika Gamalgróin og vel þekkt raftækjaverslun á besta stað í Reykjavík er til sölu. Mikill eigin innflutningur á ýmis konar rafmagnsvörum sem gefur töluverða möguleika á veltuaukningu bæði í verslun og heildverslun. Tilvalið fyrirtæki fyrir hugmyndaríkt fólk eða samhenta fjölskyldu. Gamalgróið fjölskyldufyrirtæki með verslun og heildverslun á besta stað í Reykjavík er til sölu. Afkoma er góð með um 80 milljóna kr. ársveltu og ágætan hagnað. Mikill eigin innflutningur sem gefur töluverða möguleika á veltuaukningu bæði í verslun, heildv rslun og verktök . Tilvalið fyrirtæki fyrir hugmyndaríkt fólk eða samhenta fjölskyldu. Fyrirtæki með mikla möguleika Kvika banki, í samstarfi við bresku viðskiptafélagana Mark Holyoake, sem var stærsti hluthafi Iceland Seafood og stjórnarmaður á árunum 2010 til 2019, og Lee Camfield, fyrrverandi framkvæmdastjóri rekstrar hjá Ice­ land Seafood, vinna nú að stofnun framtakssjóðs sem mun einkum fjárfesta í evrópskum fyrirtækjum í sjávarútvegi. Sjóðurinn hefur að undanförnu, samkvæmt heimildum Markaðar­ ins, verið kynntur íslenskum fag­ fjárfestum – lífeyrissjóðum, verð­ bréfasjóðum og einkafjárfestum – og eru væntingar um að hægt verði að ljúka fyrstu umferð söfn­ unar áskriftarloforða frá fjárfestum á næstu vikum. Lagt er upp með að heildarstærð framtakssjóðsins, sem heitir Bluevest Capital, við stofnun verði um 40 milljónir evra, jafnvirði 5,5 milljarða króna, með möguleika á að stækka hann í allt að 100 millj­ ónir evra innan tólf mánaða. Áætlanir gera ráð fyrir að Kvika banki komi að fjármögnun fram­ takssjóðsins sem minnihlutaeig­ andi en bankinn verður hins vegar ekki rekstraraðili hans. Gunnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri dótturfélags Kviku í Bretlandi, sem leiðir verkefnið fyrir hönd bank­ ans, mun taka sæti í fjárfestingar­ ráði sjóðsins ásamt meðal annars Holyoake og Camfield en þeir hættu störfum sem stjórnarmaður og framkvæmdastjóri hjá Iceland Seafood í byrjun þessa árs. – hae Kvika og fjárfestar vinna að stofnun allt að 14 milljarða sjávarútvegssjóðs 100 milljónir evra er áætlað að stærð sjóðsins geti orðið innan tólf mánaða. Almenna leigufélagið, næststærsta leigufélag landsins, hefur hætt við áform, sem stefnt hefur verið að síðustu miss­ eri, um skráningu félagsins á Aðal­ markað í Kauphöllinni. Þetta var á meðal þess kom fram á fundi með sjóðfélögum Almenna leigufélags­ ins eignarhaldssjóðs (ALE), sem er eigandi leigufélagsins og er í stýringu hjá Kviku banka, í síðustu viku, sam­ kvæmt heimildum Markaðarins. Þá verður sett á fót sérstakt fimm manna fjárfestingarráð, skipað full­ trúum sumra af stærstu hluthöfum ALE sjóðsins, en hann var áður í stýr­ ingu hjá GAMMA Capital Manage­ ment, sem mun í kjölfarið einnig tilnefna tvo nýja fulltrúa í stjórn leigufélagsins. Stofnanafjárfestar í hluthafa­ hópnum hafa komið sér saman um að Markús Hörður Árnason, for­ stöðumaður fjárfestinga hjá TM, og Óðinn Árnason, sjóðsstjóri hjá Stefni, taki sæti í fjárfestingarráðinu og þá mun að auki Einar Sigurðs­ son, fjárfestir og sonur Guðbjargar Matthíasdóttur, meirihlutaeiganda Ísfélags Vestmannaeyja, setjast í ráðið, samkvæmt heimildum Mark­ aðarins. Í röðum einkafjárfesta á hins vegar enn eftir að ákveða hvaða tveir fulltrúar til viðbótar verða skipaðir í fjárfestingarráðið en gert er ráð fyrir að sú niðurstaða muni liggja fyrir á næstu dögum. Aðkoma sjóðfélaga, að sögn þeirra sem þekkja vel til stöðu mála, kemur til vegna vaxandi undiröldu margra úr röðum þeirra með rekstur sjóðs­ ins, einkum hvað varðar rekstrar­ kostnað. Hlutverk fjárfestingar­ ráðsins verður í upphafi að leggja mat á stöðu leigufélagsins, sem skilaði aðeins um þrettán milljóna hagnaði á fyrri árshelmingi, og taka ákvarðanir um næstu skref. Þar er meðal annars til skoðunar að sjóðn­ um verði slitið áður en líftími hans rennur út, sem er um mitt næsta ár, og að hluthafarnir eignist þá sjálfir hlutabréf í Almenna leigufélaginu og taki við rekstri fyrirtækisins. Til að koma til móts við meðal annars gagnrýni sjóðfélaga um mik­ inn rekstrarkostnað var samþykkt á fyrrnefndum fundi í liðinni viku að lækka verulega þá þóknun sem sjóð­ urinn hafði innheimt fyrir stýringu eigna. Þannig var ákveðið að hún myndi lækka um 75 prósent – úr því að nema 0,4 prósentum af heildar­ eignum í 0,1 prósent – eða sem jafn­ gildir liðlega 150 milljónum króna á ársgrundvelli en heildareignir leigufélagsins voru um 48 milljarðar króna í lok júní á þessu ári. Verði rekstri fagfjárfestasjóðs Almenna leigufélagsins slitið og félagið færist beint í eigu hluthafa er óvíst um á hvaða gengi sú tilfærsla yrði gerð. Þrátt fyrir að búið sé að falla frá áformum um skráningu leigufélagsins á aðalmarkað útiloka ekki sumir stofnanafjárfestar á meðal sjóðfélaga þann möguleika, þótt hann sé engu að síður talinn ólík­ legur, að félagið kunni að verða skráð á First North markaðinn í Kauphöll­ inni á seinni hluta næsta árs. Heimavellir, stærsta leigufélag landsins, var sem kunnugt er skráð á Aðalmarkað í fyrra. Aðeins um níu mánuðum síðar var tillaga stærstu hluthafa um afskráningu leigu­ félagsins samþykkt af meira en 80 prósentum hluthafa á aðalfundi. Kauphöllin hafnaði hins vegar sem kunnugt er beiðni Heimavalla um að taka bréf félagsins úr viðskiptum á Aðalmarkaði. Afar lítil velta hefur einkennt viðskipti með bréf Heima­ valla og hefur hlutabréfaverð félags­ ins lækkað um 15 prósent frá skrán­ ingu. Hagnaður Almenna leigufélags­ ins, sem á samtals um 1.200 íbúðir, á fyrstu sex mánuðum ársins dróst verulega saman á milli ára og nam tæplega 13 milljónum borið saman við rúmlega 400 milljónir á sama tíma 2018. Þar munaði mestu um að matsbreyting fjárfestingaeigna var aðeins jákvæð um 62 milljónir borið saman við 770 milljónir árið áður. Vaxtaberandi skuldir félagsins námu 30,6 milljörðum og eigið fé var tæplega 13 milljarðar. hordur@frettabladid.is Hætt við skráningu og fjárfestingarráð skipað Ekkert verður af skráningu Almenna leigufélagsins á Aðalmarkað. Sjóðfélagar fá aðkomu með skipan fimm manna fjárfestingarráðs. Þóknun lækkuð um 75 prósent og til skoðunar að slíta sjóðnum og færa félagið beint til hluthafa. Eignasafn Almenna leigufélagsins telur samtals rúmlega 1.200 íbúðir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 48 milljarðar voru eignir Almenna um mitt þetta ár. 1 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 MARKAÐURINN 1 8 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :2 3 F B 0 4 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 C B -E 2 6 0 2 3 C B -E 1 2 4 2 3 C B -D F E 8 2 3 C B -D E A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 0 s _ 1 7 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.