Fréttablaðið - 18.09.2019, Side 18

Fréttablaðið - 18.09.2019, Side 18
víkurflugvallar sé sjálf bær, það er að hann standi undir sér sjálfur. „Við rekum f lugleiðsöguþjónustu sem fær stærstan hluta tekna sinna á grundvelli milliríkjasamnings um flug yfir Norður-Atlantshafið. Þessi rekstur er mikilvægur fyrir Isavia- samstæðuna en þar er innbyggð mikil sveif lujöfnun þegar kemur að afkomu.“ Innanlandsflugið ósjálfbært En hvað með innanlandsf lugið? „Í innanlandsfluginu eigum ekki innviðina, það er mannvirkin, heldur erum við að reka kerfið samkvæmt þjónustusamningi við samgönguráðuneytið. Allar ákvarð- anir um innanlandsflugvellina, svo sem þjónustustig, fjármagn og for- gangsröðun fjármuna, eru teknar af ríkinu. Við sinnum eingöngu skilgreindri þjónustu samkvæmt samningnum. Það hefur stundum verið umræða um hvernig við forgangsröðum verkefnum í innanlandsf luginu. Það er ekki rétt að kenna Isavia um fyrirkomulag fjármögnunar eða þjónustu á innanlandsf lug- völlunum. Ákvarðanir um slíkt eru einfaldlega ekki á okkar forræði.“ Sveinbjörn segir að Isavia fái fjármuni til reksturs í innanlands- fluginu en þjónustan kalli á ýmsa innri þjónustu. Isavia sé með ýmis stoðsvið sem sinna innanlands- f lugvallakerfinu en á árum áður hafi ekki verið rukkað sérstaklega fyrir það. „Í dag höldum við slíkum kostnaði til haga því mér finnst mikilvægt að við köllum fram raunverulegan kostnað við rekstur kerfisins. Við verðum að geta svarað því hvað kostar að reka innanlands- flugvallakerfi á Íslandi. Við lendum stundum í því að fólk telur mig eða stjórnendur Isavia á móti innanlandsf luginu eða á móti landsbyggðinni. Það er alls ekki þannig. Innanlandskerfið er almenningssamgöngukerfi og sem slíkt eðlilegt að það sé fjármagnað af íslenska ríkinu. Arðsemi af svona samgöngukerfi er ekki eingöngu mæld í krónum og aurum. Þá skiptir miklu máli að vita hvað kostar að reka kerfið svo taka megi réttar ákvarðanir öllum til hagsbóta. Þegar þú ert með f lugvelli ertu með innviði, f lugbrautir, húsnæði og alls konar rekstrarkostnað. Það kostar að reka flugvelli. Við segjum Keflavíkurflugvöll vera sjálfbæran, því við erum þar að fá inn tekjur frá viðskiptavinum sem duga fyrir rekstrinum. Við setjum skilyrði um að hann standi undir sér og hann er fjármagnaður með þeim hætti. Þarna ertu kominn með eignir sem bera eitthvert virði og skila arð- semi. En þegar þú horfir á eignirnar í innanlandskerfinu, sem eru þessar f lugbrautir og það sem því tengist, þá eru þetta eignir sem munu ekki skila neinni fjárhagslegri arðsemi eða afkomu,“ segir Sveinbjörn. Til tals hefur komið að Isavia taki við innanlandsflugvöllum Reykja- víkur, Akureyrar og Egilsstaða. Sveinbjörn segir að ef Isavia eigi að taka við þessum þremur innan- landsflugvöllunum þá verði meðal annars að svara því hver eigi að ákvarða þjónustustig flugvallanna. „Ef stjórn Isavia á að bera fjárhags- lega ábyrgð á þá ekki stjórnin að hafa rými til að draga úr þjónustu ef kostnaðurinn er að fara fram úr hófi? Það er þó ekki Isavia að taka þessa ákvörðun en við höfum lagt mikla áherslu á að upplýsa um áhrifin af henni. Ef af þessu yrði þá hefði það bein áhrif á möguleika félagsins til áframhaldandi upp- byggingar á Kef lavíkurf lugvelli. Það hefði á endanum bein áhrif á fjölda f lugtenginga til og frá f lug- vellinum og þar með neikvæð áhrif á hagvöxt á Íslandi.“ Er núningur við ráðuneytið vegna þessa? „Nei það er ekki núningur. Við eigum gott samtal við öll ráðu- neyti en við höfum áhyggjur af af leiðingum þessara breytinga ef af þeim yrði. Það er mikilvægt að minna á að fjármálaráðuneytið fer með eigandavaldið og gefur út eigandastefnu fyrir félagið. Hún er mjög skýr. Samkvæmt henni er ekki ætlast til að lagðar séu ófjármagn- aðar ríkisbyrðar á félagið.“ Risavaxin verkefni fram undan Isavia hefur kynnt viðamiklar áætl- anir um uppbyggingu Keflavíkur- f lugvallar á næstu árum. Sérstök þróunaráætlun sem gefin var út haustið 2015 byggði á ákveðnum farþegaforsendum sem bjuggu til þörf á uppbyggingu f lugvallarins. Nú, þegar virðist hafa hægt á fjölg- un ferðamanna um Keflavíkurflug- völl, er eðlilegt að spyrja hvort upp- byggingunni verði haldið áfram. Sveinbjörn segir að þær farþega- forsendur sem þróunaráætlunin frá haustinu 2015 gerði ráð fyrir standi óbreyttar. „Þrátt fyrir að WOW sé farið út af markaðinum þá er far- þegaspáin 2019 enn þá ívið hærri Við lendum stund- um í því að fólk telur mig eða stjórnendur Isavia á móti innanlands- fluginu eða á móti lands- byggðinni. Það er alls ekki þannig. Sveinbjörn Indriðason var ráðinn forstjóri Isavia í sumar. Hann tók ekki við á auðveldum tíma því miklir sviptivindar hafa verið í íslenskum flugrekstri á þessu ári. Flugfélagið WOW var komið í þrot og út af stóðu kröfur Isavia á hendur félaginu upp á tvo milljarða. Fráfarandi forstjóri hafði hætt. Sveinbjörn, sem áður var framkvæmdastjóri fjármálasviðs og aðstoðarforstjóri, stóð skyndilega í gagnrýnu kastljósi íslenskra fjöl- miðla. Blaðamaður hitti forstjórann á aðalskrifstofu Isavia í f lugturninum við Reykjavíkurflugvöll til að ræða stöðu félagsins og framtíðarverk- efni þess. En fyrst aðeins um hann sjálfan. Sveinbjörn er 47 ára gamall, fæddur og uppalinn Borgnesingur. Hann bjó þar allt fram að þeim tíma er hann fór í framhaldsnám. Að sögn var hann reyndar alltaf á tals- verðum flækingi á sumrin. „Ég fór snemma í sveitastörf og sem ungl- ingur vann ég í vegavinnu á sumrin. Þar ílentist ég alveg í gegnum allt háskólanámið. Það voru góðir tímar og ég naut þeirra starfa,“ segir hann. Eftir útskrift frá Menntaskól- anum á Akureyri árið 1992 fór Sveinbjörn í hagfræði í Háskóla Íslands þar sem hann útskrifaðist árið 1998. „Þá stóð til að fara til frekara náms en mér bauðst spenn- andi starf í gjaldeyrismiðlun Fjár- festingarbanka atvinnulífsins sem var þá á nýstofnaður,“ segir hann. En hugurinn leitaði alltaf í átt að fyrirtækjarekstri. Og þegar starfs- tækifæri bauðst við áhættustýringu hjá Icelandair tók hann því. Þar var hann á árunum 1999 til 2005. Sveinbjörn varð síðan fram- kvæmdastjóri f jármálasviðs FL Group frá árinu 2005 til 2008 þegar hann sagði upp í ársbyrjun. „Haustið 2007 var ég kominn á þann stað að ég var hættur að ná utan um hvernig markaðurinn virk- aði,“ segir Sveinbjörn. „Ég er ekki að segja að ég hafi séð hrunið fyrir. En það var komin sterk vantrú í mig á að hlutirnir væru hreinlega að ganga upp. Mér fannst það hvorki sann- gjarnt gagnvart FL Group né sjálfum mér að halda áfram því að ég fann mig ekki lengur í þessu umhverfi.“ Eftir að hann hætti hjá FL Group tók hann sér tveggja ára hlé. Það hægði síðan skiljanlega á vinnu- markaði í hruninu. Tímann nýtti hann með sonum sínum og til að sinna hugðarefnum sínum. „Þessi tími með strákunum var ómetan- legur og styrkti tengsl okkar,“ segir hann. Sveinbjörn býr í dag með tveimur unglingssonum sínum í Kópavogi og segir samband þeirra sterkt. Ár ið 2011 varð Sveinbjör n rekstrar- og fjármálastjóri nýsköp- unar- og hugbúnaðarfyrirtækisins Clara þar sem hann dvaldi í tvö ár. Félagið þróaði gervigreind til texta- greiningar. Verkefninu lauk með sölu félagsins til bandarísks aðila. Hann varð framkvæmdastjóri fjármálasviðs Isavia árið 2013 þar til nú í júní að hann var ráðinn for- stjóri þessa stóra fyrirtækis eftir að fyrri forstjóri lét óvænt af störfum. Þá blasti við, eftir gjaldþrot WOW air, að skuld þess við Isavia nam um 2,1 milljarði króna. Þessi saga hefur verið rakin í smá- atriðum í fjölmiðlum. Lærdómurinn af WOW air Hver er stóri lærdómurinn af falli WOW air fyrir Isavia og Keflavíkur- f lugvöll? „Þegar ég horfi til baka og á þær ákvarðanir sem voru teknar, frá því að WOW byrjaði að hiksta þar til það varð gjaldþrota, er ég alger- lega á því að við höfum tekið réttar ákvarðanir á þeim tíma. Hið sorg- lega við málið er að rekstur WOW var kominn þokkalega fyrir vind á lokametrunum. Þau voru búin að losa sig við breiðþoturnar, skera niður mikinn kostnað og félagið var komið í mun viðráðanlegri stærð. Samkvæmt mínum upplýsingum var rekstrarmódel WOW farið að virka betur, en þungur baggi sem fylgdi efnahagsreikningnum felldi félagið á endanum. Stóri lærdómurinn er að Isavia þarf að horfa með gagnrýnni augum á það sem er borið á borð fyrir okkur. Í dag leggjum við mun meiri áherslu á að greina áhættu okkar viðskiptavina og förum betur yfir ársreikninga þeirra,“ segir hann. Sveinbjörn segir einnig mikil- vægt að Isavia dragi lærdóm af samskiptunum við fjölmiðla og að gagnsæi í rekstrinum sé nauðsyn- legt. „Við eigum að koma fram og segja hlutina eins og þeir eru. Þessi gamla feimni við fjölmiðla á ekki erindi inn í nútímann,“ segir hann ákveðinn. Isavia: Eitt félag um flugleið- sögu og flugvallarekstur Hið opinbera hlutafélag Isavia er þjónustufyrirtæki í f lugvallastarf- semi og f lugleiðsögu og leggur grunn að flugsamgöngum Íslands. Félagið rekur öf lugt net f lugvalla á Íslandi og f lugleiðsöguþjónustu á einu stærsta f lugstjórnarsvæði heims. Hjá Isavia og dótturfélögum vinnur stór hópur starfsmanna sem telur um 1.300 manns. Félagið er í dag að fullu í eigu ríkisins en er rekið á eigin ábyrgð. Fjármála- og efnahagsráðherra fer með hluthafavaldið. Að mati Sveinbjörns var hluta- félagavæðing Isavia skynsamleg. „Það er gild ástæða fyrir því að flugvellir þróast úr því að vera rík- isreknir yfir í það að fara í einhvers konar eignarhald eða hlutafélaga- form. Það er óháð því hver eigand- inn er. Það skiptir ekki máli, eða það á að minnsta kosti ekki að skipta máli, hvort sem það er íslenska ríkið, einkafjárfestir eða fyrirtæki á markaði. Ástæðan fyrir því að flug- vellir eru reknir undir hlutafélaga- formi er að það gerir þeim kleift að taka ákvarðanir á viðskiptalegum forsendum og þannig starfa á sam- keppnismarkaði án afskipta ríkis- ins. Oft eru f lugvellir sem ekki eru reknir undir hlutafélagaforminu og heyra beint undir ríkisrekstur reknir með halla vegna smæðar, eins og tilfellið er með innanlands- flugvellina á Íslandi.“ Að sögn Sveinbjörns var Isavia tvístígandi í hlutverki hlutafélags- ins á fyrstu árum sínum. „Það var mín upplifun og ég tel að við séum þar svolítið enn.“ Hann segir að rekstur Kef la- Að sögn Sveinbjörns varði Isavia um milljarði króna til landkynningar og markaðssetningar flugvallarins fyrir erlend flugfélög og flugþjónustu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Davíð Stefánsson david@frettabladid.is Vill mýkja ásýnd Isavia Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, segir að tengja þurfi betur saman þarfir viðskiptavina og framtíðarþróun Keflavíkurflugvallar. Fagfjárfesta þurfi að Isavia með sérþekkingu á rekstri flugvalla. 1 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R6 MARKAÐURINN 1 8 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :2 3 F B 0 4 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 C B -F 1 3 0 2 3 C B -E F F 4 2 3 C B -E E B 8 2 3 C B -E D 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 0 s _ 1 7 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.