Fréttablaðið - 18.09.2019, Síða 20
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550
5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Mig langaði að opna verslun með öðruvísi fatnað fyrir konur; kvenlegar flíkur
sem undirstrika persónuleika
og stíl, segir Þuríður, innt eftir
því hvað hafi drifið hana af stað
með að opna fataverslun í miðbæ
Reykjavíkur þann 18. september í
fyrrahaust.
„Ég hafði löngun til að bjóða
upp á fatnað sem ekki hefur verið
fáanlegur hér á landi lengi. Það féll
strax vel í kramið hjá kvenþjóð-
inni og margar sem koma í Bóel
upplifa að hér sé kominn vísir af
ELM. Hjá okkur fæst einnig fatn-
aður eftir þýska fatahönnuðinn
Rundholz en hann fékkst áður í
versluninni ER sem var lokað árið
2009,“ upplýsir Þuríður hin kátasta
í glæsilegri verslun sinni.
„Mér finnst ég oftar en ekki vera
að handleika listmuni frekar en
föt enda eru sniðin oftast f lókin
og flíkurnar breytast eftir því hver
mátar þær. Þýski hönnuðurinn og
listamaðurinn Carsten Rundholz
er einstaklega laginn við að gera
flíkur í einni stærð og sem eru
glæsilegar á konum óháð stærð.
Þá eru flíkurnar frá StudioB3 afar
glæstar og töff og á dögunum datt
í hús glæný sending af ómótstæði-
legum haustfatnaði,“ segir Þuríður.
Viðskiptavinahópurinn í Bóel er
breiður og samanstendur af heims-
konum á öllum aldri.
„Minn elsti viðskiptavinur er 90
ára dama en helst koma til okkar
konur á aldrinum 35 til 70 ára. Það
eru konur sem þora og vilja vera
öðruvísi,“ segir Þuríður.
Hefur mikla trú á miðbænum
Þuríður hefur á fyrsta starfsári
Bóel bætt við enn fleiri hönnuðum
í búðina og í mars bættist við
skófatnaður frá danska hönnunar-
fyrirtækinu Lofina.
„Lofina er heillandi skófatn-
aður og gaman að segja frá því að
við höfum selt Dönum sem hér
hafa verið á ferðalagi ófá Lofina-
skópör. Þá höfum við í tvígang
sent Lofina-skó vestur um haf til
Bandaríkjanna eftir að ferðamenn
sáu skó í búðarglugganum og
höfðu samband þegar heim kom
til að fá skóna senda út til sín, sem
er afskaplega skemmtilegt,“ segir
Þuríður.
Síðsumars bættist við austur-
ríska skómerkið Puro í Bóel.
„Puro er einstaklega flott skó-
merki sem hefur hitt í mark hjá
viðskiptavinum okkar. Í næstu
viku er væntanleg ný sending frá
Puro og við fáum líka nokkur pör
af Trippen-skóm í byrjun október.
Þá hafa ítölsku handtöskurnar frá
Mandarina Duck slegið gjörsam-
lega í gegn og var þriðja sendingin
að detta í hús í fyrradag,“ segir
Þuríður, ánægð og þakklát fyrir
viðtökurnar á fyrsta starfsári Bóel.
Hún hefur mikla trú á verslun í
miðbæ Reykjavíkur.
„Ég hef einlæga trú á að versl-
Guðrún Lilja skartar hér afar kvenlegum, svörtum og rómantískum kjól frá þeim virta og vin-
sæla þýska hönnuði og listamanni Carsten Rundholz. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Gullfallegar leður bumbags frá Mandarina Duck hafa slegið í gegn hjá íslenskum nútímakonum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Guðrún Lilja hér einkar töff í jakka og buxum frá meistara Rundholz sem er einstaklega laginn
við að gera flíkur í einni stærð en sem eru glæsilegar á konum óháð stærð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
unarrekstur eigi eftir að byggjast
upp aftur í miðbænum og nú þegar
eru margir kröftugir hönnuðir að
poppa upp, ásamt fullt af spenn-
andi listagalleríum, skartgripa-
búðum og síðast en ekki síst öll
dásamlegu kaffi- og veitingahúsin.
Það er enda skemmtileg og hress-
andi upplifun að ganga um götur
gamla miðbæjarins sem hefur
fengið á sig ferska mynd og þá er
Mér finnst ég oftar
en ekki handleika
listmuni frekar en föt
enda eru sniðin oftast
flókin og flíkurnar
breytast eftir því hver
mátar þær.
kjörið tækifæri að koma við í Bóel
og kaupa uppáhaldsflíkina sína
með 20 prósenta afmælis afslætti,“
segir Þuríður í sannkölluðu
afmælisskapi.
Bóel er á Skólavörðustíg 22. Heima-
síða Bóel, boel.is, verður opnuð nú
á afmælisárinu og hægt fylgjast
með á Facebook undir boel.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R
1
8
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
C
B
-D
D
7
0
2
3
C
B
-D
C
3
4
2
3
C
B
-D
A
F
8
2
3
C
B
-D
9
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
1
7
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K