Fréttablaðið - 18.09.2019, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 18.09.2019, Blaðsíða 28
Erum við að byggja þetta fjárlaga- frumvarp á raunhæfum forsendum? Verðum við í stöðu til að standa við þau loforð sem hér eru gefin?  Þorsteinn Víglunds- son, þingmaður Viðreisnar Stjórnar- maðurinn 12.09.2019 MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is Miðvikudagur 18. september 2019FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL | PwC | Sími 550 5300 | www.pwc.is PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar, endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem aðstoðar viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn. Reykjavík | Akureyri | Reykjanesbær | Húsavík | Selfoss | Hvolsvöllur | Vestmannaeyjar 2019 Verðmæti Hafðu samband því þinn árangur er mikils virði. Hámarkaðu árangurinn þinn og verðmæti með því að nýta þér fjölbreytta þekkingu og víðtæka reynslu PwC á öllum sviðum rekstrar. Kerfélagið, eigandi Kersins í Grímsnesi, tapaði 40 milljónum á síðasta ári en til samanburðar hagnaðist félagið um 58 milljónir á árinu 2017. Tekjur námu 142 milljónum og jukust um tæp 26 prósent á milli ára. Laun og launatengd gjöld fóru hins vegar úr 0 krónum í 156 milljónir. Óskar Magnús- son, einn af eigendum Kerfélagsins, segir að um einskiptiskostnað hafi verið að ræða. „Þetta ár var undantekning og ekki marktækt dæmi um almennan rekstur Kersins. Við höfum verið að leggja í mikinn kostnað vegna deiliskipu- lagsvinnu og höfum til að mynda þurft að ráða verkfræðinga, arkitekta og skipulagsfræðinga,“ segir Óskar. Auk þess hafi félagið greitt upp- safnaðan launakostnað í einu lagi. „Við sjáum fram á að tekjurnar á þessu ári verði nálægt því sem þær voru í fyrra þrátt fyrir almennan samdrátt í ferðaþjónustunni.“ Gjaldtaka við Kerið hófst 2013 og er aðgangseyrir þar nú 400 krónur. Félagið er í jafnri eigu Óskars, Ásgeir Bolla Kristinssonar, Sigurðar Gísla Pálmasonar og Jóns Pálmasonar. - þfh Kerfélagið tapaði 40 milljónum Óskar Magnússon. Í ágúst nýliðnum fóru 14 pró- sent færri Íslendingar til útlanda en á sama tíma í fyrra. Vafalaust spilar brotthvarf WOW þar stóra rullu en líklega frámuna veður- blíða á landinu ekki síður. Eftirtektarverðast er þó að þrátt fyrir að f lugferðum til Íslands hafi fækkað um þriðjung milli ára, og að í ágúst hafi um 350 þúsund færri farið um Leifsstöð en fyrir ári, þá hafa veltutölur vegna erlendra ferðamanna sáralítið breyst. Að f lugi undanskildu nemur samdrátturinn einungis um 0,2 prósentum. Velta gisti- staða og veitingahúsa er óbreytt milli ára, og nýtingarhlutfall gisti- staða lækkaði einungis lítillega. Á sama tíma hefur talsverð hagræð- ing átt sér stað í ferðaþjónustunni. Launþegum hefur fækkað um 10 prósent, og hefur fækkað í öllum f lokkum ferðaþjónustu. Ef draga á ályktanir af þessum nýbirtu tölum þá virðist sem arð- bærari ferðamenn komi enn til landsins. WOW var auðvitað lág- gjaldaf lugfélag og því var senni- lega um annars konar ferðamenn að ræða en þá sem sætta sig við oft á tíðum himinhá fargjöld Icel- andair. Þeir sem setja slíkt ekki fyrir sig eru einfaldlega líklegri til að borga meira í mat, drykk, verslun og af þreyingu þegar til landsins er komið. Margir hafa kallað eftir því lengi að Ísland setji sér almenni- lega stefnu hvað varðar ferða- þjónustuna. Kannski er þarna uppskriftin komin. Ísland er dýrt land og verður það sennilega alltaf. Við erum einfaldlega ekki samkeppnishæf þegar kemur að verðlagi. Er ekki allt í lagi að gera sér grein fyrir því, og stuðla að ferðaþjónustu sem er kannski minni að umfangi en byggist á efnameiri ferðamönnum? Það á ekki að vera markmið í sjálfu sér að fá marga ferðamenn til landsins. Frekar að þeir sem hingað komi fái fyrsta f lokks upp- lifun af landi og þjóð. Til að svo megi verða þarf að passa átroðn- ing á náttúruperlum, og að sjá til þess að innviðir séu ásættanlegir. Slíkt kostar. Gæði umfram magn ættu að vera kjörorðin. Slík stefna væri bæði efnahag og náttúru til bóta. Gæði en ekki magn  1 8 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :2 3 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 C B -D D 7 0 2 3 C B -D C 3 4 2 3 C B -D A F 8 2 3 C B -D 9 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 0 s _ 1 7 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.