Morgunblaðið - 07.08.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2019
NÝ VER
SLUN Í
MÖRKI
NNI 3
OG UND
IRHLÍÐ
2 AKUR
EYRI
ÓTRÚLE
G OPNU
NAR-
TILBOÐ
VEISLA
ALLA V
IKUNA
Mörkin 3 • Reykjavík | Undirhlíð 2 • Akureyri
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Síðustu kvartanir sem Samgöngu-
stofa tók við vegna WOW air voru
nú í lok júlímánaðar afgreiddar.
Þetta staðfestir Þórhildur Elín El-
ínardóttir, upplýsingafulltrúi Sam-
göngustofu, í samtali við Morgun-
blaðið.
Á vef Samgöngustofu má finna
ákvarðanir í málum tengdum rétt-
indum farþega en þar má sjá að á
þessu ári hefur Samgöngustofa af-
greitt yfir 170 kvartanir vegna hins
fallna flugfélags. Voru mörg erind-
anna afgreidd eftir að flugfélagið féll
en margar kvartananna vita að af-
lýsingu eða seinkun á flugi eða tjóni
vegna farangurstafar. Mörg erind-
anna eru vegna flugferða sem voru
farnar á árunum 2018 og 2017 og
nokkur vegna flugferða árið 2016.
Sem dæmi snýr næstyngsta ákvörð-
unin, dagsett 22. júlí 2019, að flugi
WOW air frá Kaupmannahöfn til
Keflavíkur 19.desember 2016. Er
ákvörðun Samgöngustofu í því máli
að vegna seinkunar flugs skuli
WOW air greiða kvartanda 400 evr-
ur í staðlaðar skaðabætur.
Bent á þrotabúið
Þórhildur Elín segir að Sam-
göngustofa hafi tekið við kvörtunum
vegna WOW air fram að þeim tíma-
punkti að flugrekstrarleyfi fyrir-
tækisins var skilað inn. „Eftir það
var ekki tekið við kvörtunum enda
ekki hægt að taka við kvörtunum
nema vegna starfandi flugrekanda.
Það er búið að taka ákvarðanir í öll-
um málum sem komu inn. Kvartend-
ur innsendra erinda voru upplýstir
um niðurstöður ákvarðananna og ef
niðurstaðan féll þeim í vil var þeim
bent á að gera kröfu í þrotabúið.“
Voru því öll umrædd erindi af-
greidd áður en frestur til að lýsa
kröfum í þrotabú WOW air rann út,
sem var um síðastliðna helgi.
„Því eru öll mál frágengin sem
varða WOW air og okkur ber sam-
kvæmt loftferðalögum skylda til að
taka ákvörðun um,“ segir Þórhildur.
Eins og áður segir rann frestur til
að lýsa kröfum í þrotabú WOW air
út um síðastliðna helgi og verður
kröfuskrá félagsins lögð fram á
föstudag, viku fyrir skiptafund fé-
lagsins.
Búið að afgreiða WOW-kvartanir
Kvörtun vegna flugs frá 2016 nýlega
afgreidd Yfir 170 erindi vegna WOW
Morgunblaðið/Hari
WOW Öll erindi tengd hinu fallna flugfélagi hafa yfirgefið Samgöngustofu.
Búið var að landa yfir 42 þúsund
tonnum af makríl í gær í júlí og
það sem af var ágúst, samkvæmt
aflaupplýsingum á vef Fiskistofu.
Á sama tímabili í fyrra var búið að
landa rúmlega 28 þúsund tonnum.
Þessar tölur eru birtar með fyr-
irvara um mögulegar breytingar.
Sex skip frá Færeyjum, Græn-
landi, Íslandi og Noregi könnuðu
ástand og útbreiðslu makríls, síld-
ar, kolmunna og fleiri uppsjávar-
tegunda ásamt ástandi vistkerfis-
ins í Norður-Atlantshafi í júní sl. Í
frétt norsku hafrannsóknastofnun-
arinnar í gær kom m.a. fram að
mikið af makríl hafi fengist norð-
arlega og á norðvesturhluta út-
breiðslusvæðisins samanborið við
fyrri ár. Makríllinn var kominn al-
veg norður á 78°N, vestan við Lon-
gyearbyen á Svalbarða. Nyrst á
könnunarsvæðunum fékkst metafli
af makríl. Meðalþyngd makrílsins
var frá 214 grömmum syðst upp í
609 grömm nyrst sem staðfestir að
stærsti makríllinn gengur lengst
til norðurs. Lítið fékkst af makríl
með Noregsströndum og austar-
lega í Norskahafi og vestast í Bar-
entshafi. Norsk vorgotssíld sást nú
norðarlega í Norskahafi en þar
hafði hún ekki sést lengi.
Færeyska Havstofan sagði m.a.
í ágripi af skýrslu um leiðangurinn
að meira hafi fundist af makríl nú
en í fyrra. Þá fannst síld norðan
við Færeyjar og í áttina til Íslands
en nokkuð minna austan við Fær-
eyjar. Minna veiddist af síld en í
fyrra en bergmálsmælingar gáfu
svipaða niðurstöðu og 2018.
Stærsta síldin var í norðvestur-
hluta könnunarsvæðisins, þ.e. ná-
lægt miðlínunni við Ísland.
gudni@mbl.is
Meira er af makríl
Makríll langt norður í höfum Síld breiðist út við Noreg
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Makríll Vel hefur veiðst að und-
anförnu og meiru landað en í fyrra.
Umhverfisstofnun er ekki kunnugt
um það að nokkur hafi verið sektaður
vegna ólöglegrar gistingar í tjöldum,
húsbílum, hjólhýsum eða fellihýsum.
Þetta kemur fram í skriflegu svari
frá Davíð Örvari Hanssyni, sérfræð-
ingi hjá Umhverfisstofnun, við fyr-
irspurn Morgunblaðsins. Þrátt fyrir
það er nokkuð um að fólk á faralds-
fæti gisti utan merktra tjaldsvæða.
Einar Guðmann, ljósmyndari sem
ferðast mikið um landið vegna vinnu
sinnar, sagði í viðtali við Morgun-
blaðið sem birtist síðastliðinn laug-
ardag að lögin væru gloppótt og þau
þyrfti að rýmka.
„Miðað við hvað náttúruverndar-
lögin hafa staðið sig illa í að veita þær
refsingar sem þeim var eflaust ætlað
og hvað þetta hefur reynst götótt
kerfi þá hef ég ekki mikla trú á því að
þessi lög myndu standast dóm ef ætti
að sekta menn fyrir slíkt,“ sagði Ein-
ar.
Í lögum um náttúruvernd er refsi-
ákvæði sem gerir ráð fyrir að hægt
sé að beita brotlega aðila sektum eða
fangelsi eftir alvarleika brota.
Þurfa að kynna sér staðhætti
Samkvæmt 22. grein laga um nátt-
úruvernd (nr. 60/2013) er almennt
óheimilt að gista í tjaldvagni, felli-
hýsi, hjólhýsi húsbílum eða öðrum
sambærilegum
búnaði nema með
leyfi rétthafa
lands eða á skipu-
lögðu tjaldsvæði.
Við alfaraleið í
byggð er heimilt,
að ákveðnum skil-
yrðum uppfyllt-
um, að tjalda
hefðbundnum
viðlegutjöldum til
einnar nætur á
óræktuðu landi.
Spurður hvernig ferðamaður geti
vitað hvort staðurinn sem hann hefur
hug á að gista á sé á eignarlandi segir
Davíð:
„Almennt verða ferðalangar að
kynna sér staðhætti á þeim stöðum
sem ferðast er um. Lög um náttúru-
vernd ganga mjög langt í að tak-
marka heimild til að tjalda og gilda
þær reglur almennt. Hvað varðar
sérreglur um heimildir til að tjalda
þá gilda þær aðallega á friðlýstum
svæðum sem eru oftast merkt sem
slík.“ Ferðamenn geti ekki sann-
reynt eignarhald fólks á jörðum eða
legu jarða nema með íhlutun, til
dæmis af hálfu lögreglu.
Ekkert kort hefur verið gefið út
sem sýnir hvar hægt sé að gista án
þess að greitt sé. ragnhildur@mbl.is
Aldrei sektað fyrir
ólöglega gistingu
Refsiheimild er til staðar í lögunum
en henni hefur ekki verið beitt
Tjaldað Víðar
gert en leyft er.
Sýning stendur þessa dagana yfir á útilistaverkum í Breiðholti, en sýningin ber heitið Úthverfi og er hluti sýninga-
raðar sem nefnist Hjólið og sniðin er að þörfum hjólreiðafólks. Eitt verkanna er staðsett nærri Mjódd og reka veg-
farendur vafalítið upp stór augu þegar þeir sjá hálft reiðhjól grafið í jörðu.
Sýningin Úthverfi stendur sem hæst í Breiðholti
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hálfgrafið reiðhjól vekur athygli