Morgunblaðið - 07.08.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2019
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
., '*-�-��,�rKu�,
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
Iðnaðareiningar
í miklu úrvali
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
„Hlýindin nú í sumar eru óvenjuleg
suðvestanlands, en annars ekki.
Hlýtt var um nær allt land 1939.
Sumarið nú er frekar í ætt við
norðaustanáttarsumur fyrri tíma –
en þó áberandi hlýrra – líka í
„kuldanum“ norðaustanlands.“
Þetta segir Trausti Jónsson veð-
urfræðingur aðspurður hvort sum-
arið 2019 líktist annáluðum góð-
viðrissumrum fyrri ára, eins og t.d.
sumrinu 1939.
Hvernig hefur veðrið komið út
frá sumardeginum fyrsta 25. apríl?
„Svarið er einfalt – fyrstu 14 vik-
ur sumars eru þær hlýjustu á
mælitímabilinu í Reykjavík, með-
alhiti var 10,5 stig, næsthæstur var
hann 10,3 stig 1941. Þá bar sum-
ardaginn fyrsta upp á 24. apríl –
þannig að árin keppa nokkurn veg-
inn á jafnréttisgrundvelli hvað
þetta varðar,“ segir Trausti.
„Kaldastar voru vikurnar 14 árið
1979. Meðalhitinn þá var 5,9 stig,
langt fyrir neðan næstlægsta gildið
(6,3 stig, 1887),“ upplýsir Trausti á
bloggi sínu Hungurdiskum á
mbl.is, þar sem hann fjallar um
veðrið frá ýmsum hliðum.
Sigurður Þór Guðjónsson veð-
ursagnfræðingur bendi á þá stað-
reynd í Moggabloggi sínu (Nim-
busi) að nýliðinn júlímánuður, með
sín 13,4 stig í meðalhita, sé ekki
aðeins hlýjasti júlímánuður í borg-
inni heldur hlýjasti sumarmánuður
í 149 ára sögu mælinga. Næstir
koma júlímánuðir 1991 og 2010,
13,0 stig.
„Huglægt og persónubundið“
„Það skal rifjað upp að apríl var
einnig sá hlýjasti sem mælst hefur
í Reykjavík og júní var sá fimmti
sólríkasti og vel hlýr og maí var
einnig í hlýrra lagi og fremur sól-
ríkur. Þetta hefur ekki farið fram
hjá fólki og víða heyrir maður
menn segja að þeir hafi ekki lifað
annað eins gæðasumar. Slíkt mat
er kannski líka huglægt og per-
sónubundið fyrir hvern og einn en
veðurstaðreyndirnar vitna ótvírætt
um óvenjulega gósentíð frá því í
vor í Reykjavik. Sumarið er hins
vegar ekki búið,“ skrifar Sigurður
Þór Guðjónsson.
Hlýjasta sumarið í sögu mælinga
Hlýindin nú í sumar eru óvenjuleg
suðvestanlands en ekki annars staðar
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Sumarstemning Ferðamenn hafa fyllt götur höfuðborgarinnar í blíðviðrinu.
Um þúsund manns munu koma að stórtónleikum Ed Sheeran
sem haldnir verða á Laugardalsvelli 10. og 11. ágúst en fjöl-
margir vinna nú að því að gera völlinn tilbúinn fyrir tón-
leikana. Nú er unnið að því að setja upp 650 fermetra svið sem
búist er við að verði komið upp í kvöld en vinna að uppsetn-
ingu þess byrjaði í fyrradag. Þetta segir Ísleifur B. Þórhalls-
son, framkvæmdastjóri Senu Live, sem sér um framkvæmd
tónleikanna.
Segir hann að um 50 fermetrar séu á milli lengstu punkta
sviðsins og að það vegi tvö tonn.
„Þetta er svið sem er notað fyrir 60 til 70 þúsund manna
tónleika úti,“ segir Ísleifur í samtali við Morgunblaðið. „Við
erum bara dolfallin sjálf yfir því hvað þetta er stórt og mikið
umfang á þessu öllu saman,“ segir hann.
„Maður horfir hérna yfir völlinn og það er her manns hérna
úti um allt að vinna og smíða,“ segir Ísleifur sem segir er-
lenda aðila á vegum Ed Sheeran vera að flykkjast til landsins
til að undirbúa tónleikana. Hann segir að samtals komi um
150 erlendir aðilar að tónleikunum en býst við að um þúsund
manns verði í vinnu á tónleikadegi. „Þetta er náttúrulega
stærsta stjarna samtímans akkúrat núna þannig að það eru
gerðar miklar kröfur varðandi allt,“ segir hann. Uppselt er á
tónleikana 10. ágúst en Ísleifur segir að miðarnir á auka-
tónleikana 11. ágúst séu að rjúka út.
650 fermetra svið Ed Sheeran tilbúið í kvöld
Morgunblaðið/Arnþór
Eftir því sem haustið nálgast fara
margir íbúar höfuðborgarsvæðisins
að líta til skaflsins í Gunnlaugsskarði
í Esjunni til að sjá hvort hann hafi
lifað af hlýindi sumarsins. Páll Berg-
þórsson, fyrrverandi veðurstofu-
stjóri, hefur í áratugi fylgst grannt
með skaflinum en hann verður 96 ára
í næstu viku. Hann hefur sem áður
fylgst með skaflinum að undanförnu
og segir það vera á mörkunum hvort
skaflinn muni hverfa í ár.
„Hann er orðinn lítill og það er
náttúrulega töluvert eftir af hlýind-
um sumarsins svo ég held að það sé
möguleiki á því að hann hverfi en ég
er ekki alveg viss um það,“ segir Páll
í samtali við Morgunblaðið.
Hann bendir á að hámarkshiti
sumarsins hafi verið um mánaða-
mótin síðustu sem bendi til þess að
helmingur sumarsins sé eftir. Ef svo
er segir Páll að góðar líkur séu á því
að skaflinn hverfi.
Líkur á að skaflinn hverfi
Lítið er eftir af
skaflinum í
Gunnlaugsskarði
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Esjan Líkur eru á að skaflinn lifi ekki af sumarið. Nokkur ár eru síðan skafl-
inn hvarf en töluvert var eftir af honum síðasta haust eins og sjá má á mynd.