Morgunblaðið - 07.08.2019, Side 8

Morgunblaðið - 07.08.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2019 Góð heyrn glæðir samskipti ReSound LiNX Quattro eru framúrskarandi heyrnartæki Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Erum flutt í Hlíðasmára 19 Fagleg þjónusta hjá löggiltum heyrnarfræðingi Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna. Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru sérlega sparneytin. Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum. Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður. Fréttir berast skelfilega oft á árium mannskæðar skotárásir á fjölmennum stöðum í Bandaríkj- unum, í skólum, kirkjum, versl- unarmiðstöðvum eða útitónleikum.    Af þessuverða eðli- lega miklar umræður og fá þær oft á sig pólitískan blæ. En það sér- kennilega er að fréttaumfjöll- unin og póli- tískar deilur virðast eingöngu bundnar við flokkaða atburði, enda yrði að öðrum kosti að fjalla um hið sama margoft á dag.    Örfá atvik fá beina útsendinguhelstu stöðva og iðulega einn- ig helstu miðla t.d. í Evrópu. Þeim fylgir gjarnan ávarp forseta til þjóðarinnar og heimsókn hans á svæðið. Og svo fylgir hefðbundin umræða um sökudólga, þessa á staðnum en ekki síst í stjórnmálum og þá hvort að almenn byssueign sé ekki skýringin á öllu saman.    En annað af sama toga fær litlaumræðu enda svo hvunndags- legt. Ef grafið er eftir því þá sést að um síðustu helgi urðu 53 skotárásir í Chicago. Sjö lágu í valnum og 46 voru særðir.    Engin frétt á landsvísu, hvað þáá heimsvísu. Enda eru þegar skráðar á þessu ári 1.643 skotárásir í þessari einu borg og eru 278 þeg- ar fallnir og 1.365 særðir. Aldrei ávarp eða heimsókn enda myndi forsetinn ekki gera neitt annað.    Demókratar hafa stjórnað borgog ríki lengi og reglur um byssueign eru harðari en annars staðar vestra! Eftirtektarverð flokkun STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Kostnaður við lýðveldishátíð í tilefni af 75 ára afmæli lýðveldisins á þjóðhátíðardaginn 17. júní sl. var 7.816.000 krónur, en að undirbúningi stóðu forsætisráðuneytið, Reykja- víkurborg og Alþingi. Að því er fram kemur á vef Stjórnarráðsins var leit- að eftir tilboðum í alla verkþætti við undirbúninginn og framkvæmdina. Hátíðardagskráin var sett á Aust- urvelli þar sem Guðni Th. Jóhann- esson, forseti Íslands, lagði blóm- sveig að styttu Jóns Sigurðssonar, Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra flutti ávarp og fjallkonan Aldís Amah Hamilton, flutti ljóð eftir Bubba Morthens. Að lokinni hátíðinni var haldinn þingfundur ungmenna sem sýnt var frá í beinni útsendingu á RÚV. Þar gafst ungu fólki tækifæri til að koma málefnum sem á því brenna á fram- færi við ráðamenn þjóðarinnar. Þá var boðið upp á 75 metra langa lýð- veldisköku og lykilstofnanir í mið- borginni voru með opið hús. Enn eru fyrirhugaðir viðburðir í tilefni af lýðveldisafmælinu. Menn- ingu og vísindum verður gert hátt undir höfði og nefnd eru átaksverk- efni um ritmenningu íslenskra mið- alda, sinfóníutónleika helgaða ís- lenskri tónlst, stuðning við íslenskudeild Manitoba-háskóla í Kanada og átak til að efla og heiðra dansk-íslenskt vísindasamstarf. Lýðveldishátíðin kostaði 7,8 milljónir  Tilboða leitað í alla verkþætti  Fleiri viðburðir fyrirhugaðir í tilefni afmælis Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Afmæli 75 metra afmæliskaka. Alls bárust 12 umsóknir um tvær stöður presta í Fossvogsprestakalli, Reykjavíkurprófastsdæmi vestra. Umsækjendur eru: Aldís Rut Gísladóttir guðfræðingur, séra Anna Eiríksdóttir, séra Ása Laufey Sæ- mundsdóttir, Benjamín Hrafn Böðv- arsson guðfræðingur, Erna Kristín Stefánsdóttir guðfræðingur, séra Eva Björk Valdimarsdóttir, séra Gunnar Jóhannesson, séra Jón Ás- geir Sigurvinsson, séra María Ágústsdóttir, séra Ólafur Jón Magn- ússon, séra Sigurvin Lárus Jónsson og séra Sveinn Alfreðsson. Umsóknir fara til úrvinnslu hjá Biskupsstofu og matsnefnd um hæfni til prestsembættis mun síðan fjalla um þær og velja fimm hæfustu um- sækjendurna að mati nefndarinnar. Kjörnefnd Fossvogsprestakalls mun síðan kjósa á milli þeirra sem mats- nefndin telur hæfasta. Skipað verður í bæði embættin frá 1. október 2019. Fossvogsprestakall varð til fyrr á þessu ári með sameiningu Bústaða- prestakalls og Grensásprestakalls. Einn sóknarprestur mun starfa í kirkjunni, séra Pálmi Matthíasson, og tveir prestar. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Ásdís Bústaðakirkja Önnur af tveimur kirkjum hins nýja Fossvogsprestakalls. Tólf umsóknir um Fossvogsprestakall

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.