Morgunblaðið - 07.08.2019, Síða 12

Morgunblaðið - 07.08.2019, Síða 12
12 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2019 Stangarhyl 1 | 110 Reykjavík | Sími 570 8600 Smyril Line Seyðisfjörður 470 2808 | info@smyril-line.is | www.smyrilline.is Heimsæktu Færeyjar eða Danmörku með Norrænu Bókaðu núna og tryggðu þér pláss Innifalið: Sigling með Norrænu fram og til baka, flutningur á bíl og gisting í 2m klefa án glugga. Verð miðast gengi DKK 6. ágúst 2019 og getur breyst. DANMÖRK FÆREYJAR Lágannatímabil verð á mann ISK 76.000 Miðannartímabil verð á mann ISK 112.000 Háannatímabil verð á mann ISK 158.000 Lágannatímabil verð á mann ISK38.000 Miðannartímabil verð á mann ISK63.000 Háannatímabil verð á mann ISK93.000 Níu stjórnmálaflokkar, þar af tveir nýir, taka þátt í kosningum til lög- þings Færeyja sem fara fram laugardaginn 31. ágúst. Aksel V. Jo- hannesen, lögmaður Færeyja, boð- aði til kosninganna við setningu lög- þingsins á þjóðhátíðardegi Færeyinga 29. júlí. Johannesen er formaður Jafnaðarflokksins og hefur verið lög- maður, eða forsætisráðherra land- stjórnarinnar, frá síðustu kosning- um til lögþingsins 1. september 2015. Jafnaðarflokkurinn fékk þá mest fylgi, 25,1%, og Þjóðveldisflokkur- inn, undir forystu Høgna Hoydal, kom næstur með 20,7% atkvæðanna. Þeir mynduðu landstjórn eftir kosn- ingarnar með Framsókn, flokki sem klauf sig úr Fólkaflokknum og fékk 6,9% fylgi í kosningunum fyrir fjór- um árum. Sambandsflokkurinn í sókn Johannesen kvaðst vilja að flokk- arnir þrír héldu stjórnarsamstarfinu áfram eftir kosningarnar. „Samfélag okkar hefur færst í nútímalegra horf og íbúum hefur fjölgað meira en við höfðum þorað að vona,“ sagði hann og bætti við að hagvöxtur á síðustu árum hefði stuðlað að mjög litlu at- vinnuleysi. Fólkaflokkurinn (18,8% í síðustu kosningum), Sambandsflokkurinn 18,7%), Miðflokkurinn (5,5%) og Nýtt sjálfstýri (4,0%) eru í stjórnar- andstöðu. Sambandsflokkurinn hef- ur verið í sókn samkvæmt könnun- um og fékk mest fylgi í kosningum til danska þingsins í júní. Hann fékk þá 28,3% atkvæðanna og vann annað af tveimur þingsætum Færeyja af Þjóðveldisflokknum. Jafnaðarflokk- urinn hélt hinu sætinu, með 25,5% fylgi. Tveir nýir flokkar Auk flokkanna sjö sem tóku þátt í kosningunum árið 2015 hafa tveir nýir flokkar boðað framboð. Annar þeirra (Framtakið fyri rættinum at velja cannabis) hefur beitt sér fyrir því að kannabis verði lögleyft í lækn- ingaskyni. Hinn flokkurinn, Fær- eyjaflokkurinn, hefur m.a. boðað aukið frjálsræði í atvinnulífinu og kjörorð hans eru: „Minna skrifræði, lægri skatta og meira frelsi!“ bogi@mbl.is Nýir flokkar í kosningaslag Morgunblaðið/Sigurður Bogi Þinganes Færeyska landstjórnin hefur aðsetur á Þinganesi, elsta hluta Þórshafnar í Færeyjum. Þar var þing Færeyinga haldið til forna.  Þingkosningar í Færeyjum 31. ágúst Júlí síðastliðinn var hlýjasti mán- uðurinn frá því mælingar hófust og útlit er fyrir að 2019 verði á meðal hlýjustu áranna, að sögn loftslags- stofnunar Evrópusambandsins. Hitamet féllu víða á meginlandi Evrópu í mánuðinum, meðal annars í Frakklandi þar sem hann mældist allt að 46 stig á Celsius. Óvenjumikil hlýindi voru einnig á norðurslóðum og nær 200 milljarðar tonna af jök- ulbreiðu Grænlands bráðnuðu í mánuðinum, að sögn veðurstofu Danmerkur. Miðað við meðalhitann í sama mánuði á árunum 1981-2010 jókst hitinn mest í júlí sl. í Alaska, Græn- landi, Síberíu, Mið-Asíu, Íran og á stórum svæðum á Suðurskautsland- inu. Hitinn var einnig vel yfir meðal- tali í Afríku og Ástralíu. „Með áframhaldandi losun gróðurhúsalofttegunda og áhrifum hennar á hitann á jörðinni munu hitametin halda áfram að falla í framtíðinni,“ hefur fréttaveitan AFP eftir Jean-Noel Thepaut, yfirmanni loftslagsstofnunar ESB. Hlýjasti mánuður frá upphafi mælinga Hitinn í júlí sl. miðað við meðalhitann á jörðinni fyrir iðnbyltinguna Júlí var hlýjasti mánuður sögunnar Heimild: Copernicus Climate Change Service 1880 192519101895 19551940 200019851970 2019 1,2 1 0,8 0,6 0,4 0,2 -0.2 0 °C Þýska konan Fiona Kolbinger sigr- aði rúmlega 200 karlmenn og varð fyrst kvenna til að sigra í 4.000 kíló- metra langri hjólreiðakeppni sem haldin er árlega um Evrópulönd (Transcontinental Race á ensku). Keppnin hófst í Burgas í Búlgaríu 27. júlí og Kolbinger kom í mark í Brest í norðvestanverðu Frakklandi tíu dögum, tveimur klukkustundum og 48 mínútum síðar. Næsti kepp- andi var þá um 200 kílómetra frá markinu. „Ég hefði getað verið harðari og sofið minna,“ sagði hún. Kolbinger er 24 ára og starfar við krabbameinsrannsóknir. Þýski hjól- reiðamaðurinn Björn Lenhard óskar henni hér til hamingju með sigurinn. Sigraði í hjólreiðakeppninni fyrst kvenna AFP Breski ráðherrann Michael Gove gagnrýndi í gær leiðtoga Evrópusam- bandsins og sagði þá „virðast neita að semja við Bretland“ um breytingar á samningnum um útgöngu landsins úr sambandinu. „Eins og staðan er núna virðast leiðtogar Evrópusambandsins segja að þeir hafi ekki áhuga, að þeir vilji ekki viðræður,“ sagði Gove, sem gegnir því hlutverki í ríkisstjórn Bretlands að undirbúa mögulega út- göngu án samnings. „Mér finnst þetta vera rangt og sorglegt, þetta þjónar ekki hagsmunum Evrópu.“ Daginn áður höfðu samningamenn ESB hafnað þeirri kröfu bresku stjórnarinnar að fella umdeilt ákvæði um írsku landamærin út úr Brexit- samningi ESB við Theresu May. Leo Varadkar, forsætisráðherra Írlands, áréttaði einnig að ekki væri hægt að semja um breytingar á ákvæðinu um írsku landamærin. Framkvæmda- stjórn ESB kvaðst þó vilja efna til frekari viðræðna „ef Bretar vilja skýra afstöðu sína“. Haft var eftir ein- um samningamanna ESB að svo virt- ist sem breska stjórnin stefndi nú að útgöngu án samnings. Dominic Raab, utanríkisráðherra Bretlands, neitaði því en sagði að stjórnin hygðist reyna af öllu megni að ná fram þeim breyt- ingum sem Bretland þyrfti. Breska þingið hefur hafnað samningnum þrisvar og eins og staðan er núna gengur landið úr ESB 31. október hvort sem nýtt samkomulag næst um útgönguna eða ekki. „Virðast neita að semja“  Gove gagnrýnir leiðtoga Evrópusambandsins fyrir að ljá ekki máls á viðræðum um kröfu bresku ríkisstjórnarinnar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.