Morgunblaðið - 07.08.2019, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 07.08.2019, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Fullyrt hefurverið aðstríðið í Jemen, sem nú hefur geisað í á fimmta ár, sé mestu hörmungar sem mannkynið stendur frammi fyrir. Ekki er endilega auðvelt að fullyrða um slíkt þegar stríðið í Sýrlandi, sem geisað hefur enn lengur, fellt mikinn fjölda manna og hrakið milljónir frá heimilum sínum, keppir um þennan vafasama heiður. Þó er líklegt að þetta sé rétt, enda lifa um 20 millj- ónir Jemena við matarskort og eru í stórkostlegri hættu, auk þess sem milljónir hafa þurft að flýja heimili sín. Umhugsunarvert er að í báðum þessum stríðshrjáðu löndum er það sama ríkið sem ber ábyrgð á að ýta undir og viðhalda stríðsrekstrinum. Ír- an kom harðstjóra Sýrlands til aðstoðar þegar útlit var fyrir að hann missti völdin í borg- arastyrjöldinni og beitti Íran bæði eigin herliði, herliði und- irsáta sinna í Hezbollah, her- gögnum og fjárhagslegum stuðningi. Harðstjórinn í Sýr- landi er sjíta-múslimi líkt og klerkarnir í Íran og hefur stjórnað í krafti hervalds þó að mikill meirihluti íbúanna séu súnníar. Sama er upp á teningnum í Jemen, þar sem minnihluti sjíta-múslima með stuðningi klerkastjórnarinnar í Íran heldur uppi hernaði gegn meirihluta súnnía. Þessi bar- átta er hluti af valdabaráttu klerkastjórnarinnar í Íran í Mið-Austurlöndum og við- leitni hennar til að auka áhrif sín á svæðinu á kostnað súnnía, en mikill meirihluti múslima eru súnníar. Baráttan í Jem- en hefur af hálfu Írana meðal annars snúist um að ná tökum á sundinu inn í Rauðahafið, á milli Arab- íuskagans og Afríku, en þegar horft er til þess hvernig Íranar ganga fram gagnvart olíu- skipum þar sem þeir hafa að- stöðu til, hinum megin við Ar- abíuskagann, í Hormuz-sundi, sést að ástæða er fyrir fleiri en Jemena að hafa áhyggjur af útþenslustefnu Írana. Mikið hefur verið reynt til að koma á friði í Jemen en þar hefur jafnvel reynst afar erfitt að koma matvælum til svelt- andi fólks, eða læknisaðstoð til særðra og sjúkra, hvað þá að ná fram markmiðinu um frið. Þó hafa menn um hríð eygt von um frið, en nú er útlitið í þeim efnum aftur farið að versna. Umræður um klerkastjórn- ina í Íran og samninga við hana eru iðulega á villigötum. Fólk vill gjarnan trúa því að stjórnvöld í Íran séu, líkt og stjórnvöld víðast hvar, frið- elskandi og tilbúin að láta gott af sér leiða ef færi gefst. Því miður er fátt sem bendir til að svo sé. Stjórnvöld í Íran hafa sýnt að þau eru reiðubúin að leggja í gríðarlegan kostnað til að halda uppi hernaði erlendis þó að ófremdarástand sé heima fyrir. Á meðan þau hegða sér með þeim hætti er engin ástæða til að nálgast þau á neinn annan hátt en af fullri festu. Klerkastjórnin í Íran heldur uppi ófriði og hörmungum víða um Mið-Austurlönd} Vonbrigði í Jemen Fátt sameinarÍslendinga meira en viljinn til að vernda það sem íslenskt er, ekki síst íslenska nátt- úru. Íslendingar vilja að geng- ið sé vel um náttúruna og henni raskað sem minnst, enda íslensk náttúrufegurð engu öðru lík. En um leið og landsmenn vilja njóta fegurðar náttúr- unnar vilja þeir og þurfa þeir að njóta hennar á annan hátt. Þeir þurfa að nýta hana. Með því er meðal annars átt við að þeir þurfa að nýta orku vatns- fallanna og orkuna sem býr í iðrum jarðar. Nýting þessarar umhverfisvænu orku hefur skapað Íslendingum mikla sérstöðu meðal þjóða heims og verið til fyrirmyndar. Í fréttaskýringu í Morgunblaðinu í gær var rætt við orkumálastjóra sem hafði uppi varnaðarorð um að rammaáætlun hallaðist „of mikið á náttúruverndarhliðina og lítið tillit [sé] tekið til sam- félagslegra og efnahagslegra þátta.“ Rammaáætlun var ætlað að tryggja jafnvægi á milli verndarsjónarmiða og nýting- arsjónarmiða. Það er rétt hjá orkumálastjóra að Íslend- ingar þurfa á því að halda að nýta áfram þær auðlindir sem þeir eiga og þegar hann talar með þessum hætti er sjálfsagt að stjórnvöld og aðrir leggi við hlustir og velti fyrir sér hvort jafnvægis hafi verið gætt. Vernd og nýting geta farið saman og verða að gera það} Náttúruauðlindir Íslands V ofa leikur nú ljósum logum um hinn vestræna heim – vofa ein- angrunarstefnunnar. Í kreppunni miklu árið 1930 reyndu margar þjóðir að bregðast við atvinnuleysi með því að einangra sig efna- hagslega og pólitískt. Stjórnmálamenn skiptu heiminum í okkur og hina. Hinir voru óvin- irnir. Sjálfstæði fólst í því að vera sjálfum sér nógur um allt, engum öðrum háður. Tor- tryggnin leiddi smám saman til algjörrar firr- ingar. Sumt gott fólk sannfærðist um að ákveðnir hópar væru óæskilegir og sætu á svikráðum. Jafnvel þeir, sem hvorki hötuðu né fordæmdu þá ofsóttu, töldu vissara að þegja þunnu hljóði meðan ofstækið jókst stig af stigi. Eftir hörmungar heimsstyrjaldarinnar náði skynsemin um hríð yfirhöndinni á Vest- urlöndum. Samvinna þjóða jókst á ýmsum sviðum. Ís- lendingar báru gæfu til þess að taka þátt í fjölþjóðlegum stofnunum sem unnu að því að allir sætu við sama borð, notuðu sömu reglur og hefðu sama rétt. Stundum náði þjóðin samstöðu um aðild, um önnur framfaraskref urðu deilur. Oftast snerust sósíalistar og arftakar þeirra á móti aðild, ekki síst vegna samstöðu með Sovétríkjunum sem þá voru óskalandið. Þeir eru enn á móti af gömlum vana. Alþjóðahyggja fyrstu kommúnistanna týndist hér á landi. Framsóknarmenn gátu líka verið þversum, en oftast sáu einhverjir í þeirra röðum út fyrir asklokið. Halldór Laxness segir í Sjálfstæðu fólki frá Bjarti bónda sem býr í ríki sínu í Sumarhúsum, afskekktu koti upp til fjalla. Allt hans líf gekk út á að verða öðrum óháður. Vilhjálmur Bjarnason, sem hefur orðið undir í alþjóðahyggjunni í sínum flokki, rifjaði um daginn upp lífsskoðun Bjarts: „Maður er þó ævinlega sjálfstæður heima í koti sínu. Hvort maður lifir eða drepst, þá kemur það aungvum við utan manni sjálf- um. Og einmitt í því álít ég að sjálfstæðið sé fólgið.“ Í bókinni lendir Bjartur í hverju áfallinu á fætur öðru. Hann neitar að viðurkenna að heimurinn hafi breyst og að bóndabýlið sé ekki sjálfstætt ríki. Staðreyndir skipta engu máli, heimurinn er eins og Bjartur sjálfur ákvað á sínum tíma. Á endanum missir hann allt og alla. En er alltaf sjálfstæður. Í bókinni var Bjartur fáskiptinn, en við heyrum í Sumarhúsabændum samtímans á hverjum degi. Þeir tala í símatímum útvarpsstöðva, skammast á samfélagsmiðlum, rausa á börum og skrifa í Morgunblaðið. Sífellt vara þeir okkur við hættunum af öllu útlendu og lýsa hamingjunni sem fylgir því að sigla einn sinn sjó, búa sjálfstæður í koti sínu. Hættan fylgir þó ekki bara Bjarti sjálfum, drykkju- systkinum hans og sálufélögum. Hinir sem þegja og láta ruglið yfir sig ganga bera líka mikla ábyrgð. Leiðum þess vegna þvæluna ekki hjá okkur heldur mótmælum þeim sem vilja stela framtíðinni. Og umfram allt: Frjálslyndir allra flokka, sameinist! Benedikt Jóhannesson Pistill Í kotinu er sjálfstæðið fólgið Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Donald Trump Bandaríkja-forseti og eiginkona hans,Melania Trump, munudagana 31. ágúst til 3. september sækja Pólland og Dan- mörku heim. Munu forsetahjónin m.a. taka þátt í minningarathöfn sem haldin verður í Póllandi 1. september nk. þegar þess verður minnst að 80 ár eru þá liðin frá upphafi síðari heimsstyrjaldar. Þá munu forseta- hjónin einnig þekkjast heimboð Mar- grétar Þórhildar Danadrottningar og er von á Trump-hjónunum til Danmerkur 2. september. Greint er frá þessu á heimasíðu Hvíta hússins. „Heimsókn forsetans og for- setafrúarinnar mun undirstrika gömul tengsl Bandaríkjanna, Pól- lands og Danmerkur og vilja okkar til að standa andspænis þeim fjöl- mörgu sameiginlegu áskorunum í ör- yggismálum á svæðinu,“ segir í til- kynningu frá Hvíta húsinu, en þetta verður í fjórða skipti sem starfandi forseti Bandaríkjanna sækir Dan- mörku heim. Seinast gerðist það árið 2009 þegar Barack Obama kom þangað, en áður höfðu þeir George W. Bush, árið 2005, og Bill Clinton, árið 1997, sótt Dani heim. Konungsveldið mikilvægt Danska vefritið Altinget er með- al þeirra dönsku miðla sem fjalla um komu Trumps til Danmerkur. Þar er því haldið fram að heimsóknin snúist í raun meira um Grænland en Dan- mörku. En auk þess að hitta Mette Frederiksen, forsætisráðherra Dan- merkur, mun Bandaríkjaforseti eiga fund með Kim Kielsen, formanni grænlensku landsstjórnarinnar, og Aksel V. Johannesen, lögmanni Fær- eyja. „Það er engin tilviljun að for- maðurinn og lögmaðurinn munu hitta „leiðtoga hins frjálsa heims“. Þetta er skýrt merki þess að norð- urslóðir séu nú ofarlega á lista Bandaríkjanna og að danska kon- ungsveldið leiki þar mikilvægt hlut- verk,“ segir í umfjöllun Altinget. Málefni norðurslóða voru ekki ofarlega á blaði þegar Donald Trump tók við embætti forseta Bandaríkj- anna snemma árs 2017. Það virðist þó hafa breyst og vakti t.a.m. ræða Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á ráðherrafundi Norðurskautsráðsins í Finnlandi í maí sl. talsverða athygli. Þar sagði hann að Bandaríkjamenn myndu láta meira til sín taka á norðurslóðum til þess að stemma stigu við „ágengri hegðun“ Kínverja og Rússa á svæð- inu. Varaði Pompeo við því að norð- urslóðir væru nú orðnar að vettvangi „alþjóðlegs valds og samkeppni“ vegna þeirra gríðarmiklu nátt- úruauðlinda sem þar væri að finna, einkum í formi olíu og jarðgass, steinefna og fiskistofna. Hagsmunir Grænlands Grænlenski fréttamiðillinn Ser- mitsiaq hefur eftir þingkonunum Aaja Chemnitz Larsen, hjá jafnaðar- mannaflokknum Siumut, og Aki- Matilda Høegh-Dam, hjá sósíal- istaflokknum Inuit Ataqatigiit, að beina þurfi kastljósinu að hags- munum Grænlands þegar málefni norðurslóða verða rædd við Banda- ríkjaforseta. „Ef Bandaríkjamenn vilja eitt- hvað frá Grænlandi og styrkja stöðu sína á norðurslóðum er einn- ig mikilvægt að þeir tryggi að Grænland græði eitthvað á þessu líka,“ segir Aaja Chem- nitz Larsen m.a. í umfjöllun Sermitsiaq um Danmerkurför Donalds Trump. Hittir fulltrúa Græn- lands og Færeyja Þúsundir hafa nú boðað komu sína á mótmæli sem haldin verða vegna komu Bandaríkjaforseta til Kaupmannahafnar og eru tug- ir þúsunda sagðir „áhugasamir“ um þátttöku, en mótmæli þessi eru auglýst á Facebook. Um þau segir einfaldlega: „Þessi mót- mæli eru haldin gegn Donald Trump og rasisma.“ Nánari upp- lýsingar um mótmælin verða auglýst síðar, að því er fram kemur í auglýsingu um viðburð- inn. Þegar Trump kom til Bretlands í opinbera heimsókn mátti m.a. sjá stóra blöðru í líki for- setans sveima yfir mót- mælendum í Lund- únum. Mikill fjöldi fólks hefur nú skorað á eiganda blöðrunnar að mæta með hana á boðuð mótmæli í Kaupmanna- höfn. Búast má við mótmælum SÝNA ÁHUGA Á ÞÁTTTÖKU AFP Forsetahjónin Donald Trump og eiginkona hans Melania sjást hér stíga út úr flugvél embættisins, en þau eru væntanleg til Póllands og Danmerkur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.