Morgunblaðið - 07.08.2019, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 07.08.2019, Qupperneq 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2019 ✝ Sigurður Sæv-ar Ketilsson fæddist 28. maí 1944 á Siglufirði. Hann lést á Land- spítalanum við Hringbraut 29. júlí 2019. Foreldrar: Ketill Ólafsson, f. 18. ágúst 1917, d. 25. maí 2001, og Ás- björg Una Björns- dóttir, f. 19. maí 1919, d. 4. sept- ember 1972. Systkin: Ólafur Þór, f. 14. apríl 1942, d. 28. febr- úar 1973, Björn Zopanías, f. 20. október 1945, d. 11. júní 2004, og Jónína Ragnheiður, f. 14. apríl 1955. Sigurður kvæntist Guðrúnu Hjálmarsdóttur, f. 15. janúar 1949, hinn 20. febrúar 1971 og eignuðust þau sjö börn: Guð- munda Dagmar, f. 23. júlí 1969, drengur, fæddur andvana 20. febrúar 1974, Hrafnhildur, f. 2. júní 1976, Ásbjörg Ólöf, f. 16. janúar 1978, Katla, f. 11. janúar 1979, Sigrún f. 18. júlí 1984, og Sigurður Sævar, f. 2. október 1986. Tengdasynir þeirra eru Árni, Eiríkur, Kristján, Magnús Viðar og Helgi. Barnabörnin eru þrettán talsins. Sigurður ólst upp í Reykjavík og hóf búskap sinn þar með eiginkonu sinni. Árið 1972 fluttust þau til Hafnarfjarðar og bjuggu þar til ársins 2018. Bjuggu þau í Garðabæ þar til hann lést. Sigurður fór ungur til sjós og vann við ýmis störf. Hann vann að uppbyggingu álversins í Straumsvík og var fastur starfs- maður þar frá 1969 til 1983 þeg- ar þau hjónin stofnuðu verk- takafyrirtæki sem vann að sérhæfðum verkefnum fyrir ál- verið. Lauk hann þar starfsævi sinni. Útför Sigurðar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 7. ágúst 2019, klukkan 11. Elsku besti pabbi minn, í dag kveð ég þig með sorg í hjarta. Þegar ég sit hér og hugsa hvað mig langar að skrifa þá er mér efst í huga þakklæti, þakklæti fyrir að hafa átt þig að, fyrir stuðninginn í öllu sem ég tók mér fyrir hendur og fyrir alla hjálpina sem þú veittir mér og minni fjölskyldu. Þú hefur ávallt verið fyrir- mynd mín í gegnum lífið og það er óhætt að segja að menn ger- ast ekki flottari en þú. Þið mamma hafið alltaf veitt okkur systkinunum óendanlega ást og umhyggju, þolinmæði, til- litssemi, umburðarlyndi og kraft. Þið óluð upp í okkur þrautseigju og hjálpsemi, kennd- uð okkur að láta fjölskylduna alltaf ganga fyrir og vera sam- kvæm okkur sjálfum. Finnst það mjög óraunveru- legt að þú sért farinn yfir móð- una miklu og einhvern veginn finnst mér þú enn vera hjá okk- ur. Ég sakna þín óendanlega mikið og lífið verður ekki eins án þín en ég veit í hjarta mínu að við hittumst aftur. Ég mun ávallt ylja mér við minningar um þig og halda minningu þinni á lofti elsku pabbi minn. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Þín Hrafnhildur. Elsku fallegi pabbi minn er dáinn. Get ekki lýst því hvað það er sárt að segja þessa setningu. Ef ég hugsa um þig pabbi minn þá hugsa ég stórt hjarta, alltaf glaður, alltaf hjálpsamur, góður afi, algjör nagli, töffari og fyrst og fremst besti pabbi í heimi. Alltaf tilbúinn að hjálpa mér í hverju sem er. Þú elskaðir fjöl- skyldu þína mest af öllu og held ég að þér hafi alltaf liðið best þegar við vorum öll saman enda pössuðum við upp á að vera hjá þér öll til síðasta dags. Vil bara þakka þér pabbi fyrir mig, þið mamma kennduð mér allt sem ég kann og veit ég að þú verður alltaf yfir mér í næsta verkefni mínu. Minningarnar eru of margar til að telja þær allar. Ég mun halda minningu þinni á lofti við börnin mín og alla sem þú þekktir. Takk fyrir mig pabbi. Ég elska þig. Þín Ásbjörg. Minn hjartans kæri tengda- faðir, Sigurður Sævar, hefur kvatt þennan heim eftir harða baráttu við illvígan sjúkdóm sem eirði engu en hann gaf ekkert eftir og hélt í vonina fram á það síðasta. Það er sárt að hugsa til þess að við sem eftir stöndum fáum ekki lengur að njóta sam- vista með honum þar sem Sig- urður og Guðrún kona hans lit- uðu okkar líf af miklum kærleik og óteljandi samverustundum. Ég kynntist Sigga fyrir um níu árum þegar við dóttir hans Hrafnhildur hittumst og minnist þess vel hversu hlýjar móttökur ég fékk frá þeim hjónum og allri fjölskyldunni á þeim tíma. Fljót- lega fannst mér sem ég hefði þekkt hann lengi, hann minnti mig svo á föður minn sem lést fyrir rúmlega tuttugu árum, líkir karakterar á svo margan hátt. Þannig, að mörgu leyti, sá ég pabba minn í honum. Það var gott að leita til Sigga með margt hvort sem það var eitthvað sem tengdist bílum eða öðru sem þyrfti lagfæringar því Siggi gat leiðbeint mér með margt sem ég ekki vissi. Hann var handlaginn og úrræðagóður og því var oft leitað til hans ef þyrfti lausn á einhverju og það lagað. Á milli þess spjölluðum við oft mikið saman um heimsins mál, gátum hneykslast og glaðst yfir þeim hver sem þau voru. Siggi og Guðrún áttu sex börn, þau Dagmar, Hrafnhildi, Ásbjörgu, Kötlu, Sigrúnu, Sig- urð og þrettán barnabörn sem voru honum allt og sást það sannarlega í verki, t.d. voru mörg fríin tekin saman, ýmsir viðburðir búnir til fyrir fjöl- skylduna og farið í sumarhúsa- ferðir. Barnabörnin alltaf spennt að kíkja til afa og ömmu í heim- sókn, kíkja aðeins á verkfærin hans afa jafnvel, farið í leiki, grillað saman og margt fleira til að njóta saman. Ég dáðist alltaf að hve mikill samgangur og sterk tengsl ein- kenndu fjölskylduna og sást það svo sannarlega enn meira þegar Guðrún og börnin stóðu þétt saman við hlið hans í baráttunni við veikindin, dag og nótt fram á síðustu stundu. Ég er þakklátur fyrir að vera hluti af þessari samheldni. Síðustu ár Sigga voru við- burðarík, hann ferðaðist erlend- is, brúðkaupið okkar Hrafnhild- ar, í útilegu og hringferð um landið með okkur fjölskyldunni svo eitthvað sé nefnt. Hann hafði verið mjög heilsuhraustur og maður hugsar hvað lífið getur breyst snöggt þar sem sjúkdóm- urinn hræðilegi lagðist yfir hann á mjög stuttum tíma. Elsku Guðrún, Dagmar, Hrafnhildur, Ásbjörg, Katla, Sigrún og Sigurður, minningin um yndislega Sigga lifir og ykkar styrkleiki er sam- heldnin. „Sorgin er langur gangur í skógi til- finningana en þar er minningin fjár- sjóður sem glæðir von og trú.“ Við þig Siggi vil ég segja hversu óskaplega mikið mér þótti vænt um þig og hvað þú varst alltaf til staðar fyrir mig og okkur öll. Ég á eftir að sakna þín og allra yndislegu stundanna sem við áttum saman en í minn- ingu þinni höldum við áfram að vera samheldin stórfjölskylda eins og þitt líf einkenndist af. Takk fyrir að hjálpa mér með allt sem ég leitaði til þín með og nú verð ég að finna lausnirnar sjálfur á því sem ég hefði annars leitað til þín með. Sofðu rótt elsku tengdapabbi. Þinn tengdasonur, Eiríkur. Það er skrýtin tilfinning að skrifa þessi orð. Að barátta með þá hörku að vopni sem þú bjóst yfir skuli hafa endað á þennan veg er erfitt að trúa. Þegar ég hugsa til baka og lít yfir það sem þú skilur eftir þig hér hjá okkur sem þig þekktum átta ég mig þó á að þú tapaðir engri baráttu. Með kærleika og hjálpsemi í því umfangi sem þú hafðir að geyma getur maður bara staðið uppi sem sigurvegari. Ég er afar þakklátur fyrir þær stundir sem við áttum sam- an í öll þau skipti sem þið Gunna komuð í heimsókn til okkar fjöl- skyldunnar í Danmörku og ef ég lít lengra til baka er ansi margt sem kemur upp í hugann. Kaffibollaspjall í vinnubílnum, ferðalög innanlands sem utan eða almennt brask og brall. Góð- ir tímar! Ég kveð að sinni, elsku tengdapabbi og vinur. Hvíl í friði. Helgi Stefánsson. Hafnarfjörður tók miklum breytingum þegar álverið í Straumsvík tók til starfa. Norð- urbærinn reis með fjölda fjöl- býlishúsa og sparisjóður bæjar- búa óx sem aldrei fyrr. Við Siggi fylgdum uppbyggingunni, unn- um saman í kersmiðju álversins árið 1970 og fluttum með fjöl- skyldur okkar í norðurbæinn. Á milli okkar hafði skapast traust- ur og góður vinskapur. Siggi var hörkuduglegur, vann í Straums- vík fram á síðustu ár bæði hjá ál- verinu en lengst af sem verktaki. Hann og Gunna höfðu á tím- anum stofnað fyrirtæki sem öll fjölskyldan vann að en rekstur- inn byggðist á þjónustu við ál- verið. Þegar fjölskyldur okkar stækkuðu keyptum við báðir hús við Hverfisgötu og bjuggum þar hlið við hlið þar til þau fluttu á Smyrlahraunið. Siggi var mikill fjölskyldumaður. Í frítímanum reisti hann meðal annars fjöl- skyldunni sumarbústað að Syðri- Reykjum í Bláskógabyggð. Þar vildu þau hafa myndarlega sund- laug enda nóg af vatni og smíð- aði Siggi laugina úr trefjum í garðinum á Hverfisgötunni og flutti hana austur krökkunum til mikillar gleði. Í bústaðnum átt- um við saman margar góðar og skemmtilegar stundir. Veiði- mennskan var Sigga hugleikin og þegar gæsatímabilið stóð sem hæst var haldið til veiða og gist í bústaðnum. Þegar tækifæri gafst til var spilað bridge en við ásamt fleiri góðum félögum mynduðum keppnislið í bridge fyrir álverið með Ragnar heitinn Halldórsson, þáverandi forstjóra ISAL, í brúnni. Þá var farið út á land að keppa, konurnar teknar með og var Siggi hrókur alls fagnaðar í þeim ferðum. Síðustu mánuðir hafa verið vini mínum erfiðir en þar stóðu þau Gunna saman sem fyrr og nutu stuðn- ings frá hvort öðru sem og allri fjölskyldunni sem lagði allt af mörkum til að gera honum dag- ana léttari. Margs er að minnast og þökkum við Vala og stelp- urnar okkar fyrir allar góðu minningarnar sem við eigum frá samvistum okkar. Elsku Gunna, Dagmar, Hrafnhildur, Ásbjörg, Katla, Sigrún, Siggi og fjölskyld- ur, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð vegna fráfalls Sigga. Góður drengur er geng- inn. Friðbjörn Björnsson (Böddi). Sigurður Sævar Ketilsson  Fleiri minningargreinar um Sigurð Sævar Ket- ilsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Okkar yndislega GUNNHILDUR VALA HANNESDÓTTIR læknir, lést föstudaginn 26. júlí. Útförin verður frá Dómkirkjunni 7. ágúst klukkan 15. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Líf, styrktarfélag kvennadeildar Landspítala. Arnar Jan Jónsson Ragnheiður Elín Þorgerður Anna Elín J. Oddsdóttir Hannes Þorsteinsson Sigrún Harðardóttir Valgerður Anna Hannesd. Agnes Nína Hannesdóttir Oddur Krummi Magnússon Jan Ólafsson Sveinbjörg Guðmundsdóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug, við andlát og útför elskulegrar móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓNU M. HELGADÓTTUR, Þrúðvangi 24, Hellu. Þórhallur Jón Svavarsson Agnes Ólöf Thorarensen barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæra MÁLFRÍÐUR B. JÓNSDÓTTIR, Fríða, áður Grensásvegi 52 og Hæðargarði 56, sem lést þriðjudaginn 16. júlí, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 9. ágúst klukkan 13. Ásgeir Sigurðsson Richard Jacobson Jóhann Jacobson Ingunn Steina Ericsdóttir Ásgeir Jóel Jacobson Þrúður Briem Svavarsdóttir Richarð Ingi Jóhannsson Youkiki Hyodo Sigríður D. Jóhannsdóttir Ólafur Á. Ásgeirsson Fríða Tinna Jóhannsdóttir Björn Þór Ingason og langömmubörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN GUÐMUNDUR HALLDÓRSSON, Hraunbæ 176, lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn 31. júlí. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju fimmtudaginn 8. ágúst klukkan 13. Sigrún R. Eymundsdóttir Halldór Jónsson Ómar Jónsson Guðrún B. Magnúsdóttir J. Helena Jónsdóttir Guðmundur Símonarson Björgvin S. Jónsson Rakel Þórisdóttir Þóra Guðrún Karlsdóttir Páll Júlíus Gunnarsson Örvar Karlsson Aðalheiður Rut Önundardóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BENEDIKT HERMANNSSON húsgagnasmíðameistari, dvalarheimilinu Lögmannshlíð, lést á heimili sínu laugardaginn 20. júlí. Útför fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 9. ágúst klukkan 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á dvalarheimilið Lögmannshlíð. Lóa Sigurjónsdóttir Sævar Benediktsson Ólöf Kristín Ólafsdóttir Hermann Benediktsson Þórunn Ósk Kristjánsdóttir Rannveig Benediktsdóttir Ómar Garðarsson barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, UNA ÁSGEIRSDÓTTIR, Espigerði 4, Reykjavík, lést mánudaginn 29. júlí. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 14. ágúst klukkan 13. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess. María Marta Einarsdóttir Kristín Einarsdóttir Jón Ásgeir Einarsson Sólveig Gyða Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkæri maðurinn minn, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og bróðir, PÁLL MAGNÚS PÁLSSON bóndi á Hvassafelli, Eyjafjöllum, lést miðvikudaginn 31. júlí. Útför hans fer fram í Selfosskirkju föstudaginn 9. ágúst klukkan 14. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Von, félag til styrktar skjólstæðingum gjörgæsludeildar LSH í Fossvogi. Heiða Björg Scheving Hrund Scheving Haraldur Pétursson Eygló Scheving Guðmundur Már Einarsson Guðlaug, Bergur, Elín, Rútur, Sigurjón, Jón Þormar fjölskyldur og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.