Morgunblaðið - 07.08.2019, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 07.08.2019, Blaðsíða 24
24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2019  Handknattleiksdeild ÍBV hefur sam- ið við bosníska markmanninn Petar Jokanovic. Jokanovic er 28 ára gamall landsliðsmarkmaður sem lék síðast með Red Boys Differdange í Lúx- emborg. ÍBV endaði í fimmta sæti úr- valsdeildarinnar á síðustu leiktíð og féll úr leik í undanúrslitum Íslands- mótsins eftir samanlagt 3:2-tap gegn Haukum. ÍBV hefur leik í úrvalsdeild- inni, Olísdeildinni, á næstu leiktíð þann 8. september þegar liðið fær Stjörnuna í heimsókn til Eyja.  Frakkinn Laurent Koscielny, fyr- irliði Arsenal á síðustu leiktíð, hefur verið seldur til Bordeaux í Frakklandi. Koscielny fór sjálfur fram á sölu og neitaði að fara með Arsenal í æf- ingaferð í sumar. Þessi 33 ára mið- vörður lék með Arsenal í níu ár.  Enski knattspyrnumaðurinn Wayne Rooney mun frá næstu áramótum verða leikmaður enska B-deild- arfélagsins Derby. Hann mun jafn- framt verða hluti af þjálfarateymi fé- lagsins. Rooney samdi við Derby til átján mánaða en þessi fyrrverandi landsliðsfyrirliði og leik- maður Manchester Unit- ed kemur til Derby frá DC United í Banda- ríkjunum þar sem hann hefur skorað 23 mörk í 43 leikj- um. Rooney, sem er 33 ára, ætlar sér að gerast knatt- spyrnustjóri í framtíðinni. Eitt ogannað KÖRFUBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Íslenska karlalandsliðið í körfuknatt- leik á langa og erfiða leið fyrir hönd- um ætli liðið sér að halda ævintýrinu gangandi og komast inn á EM, Euro- basket, í þriðja sinn í röð. Ísland mætir Portúgal ytra í kvöld í fyrsta leik sínum í forkeppni fyrir und- ankeppni EM 2021. Eins og fram hefur komið hér í blaðinu er Ísland í riðli með Portúgal og Sviss og þarf að vinna riðilinn til að komast áfram. Fyrsti leikurinn í riðlinum er afstaðinn en um helgina höfðu Svisslendingar betur þegar Sviss og Portúgal mættust í Sviss: 77:72. EM á fjögurra ára fresti Ísland komst inn á EM í Berlín 2015 og EM í Helsinki 2017. Fyr- irkomulaginu hefur nú verið breytt og fer EM fram á fjögurra ára fresti rétt eins og HM og Ólympíuleikarnir. Körfuknattleikurinn er sterkur utan Evrópu. Þar af leiðandi komast ein- ungis allra bestu Evrópuþjóðirnar inn á HM. Af þeim sökum er alger- lega óraunhæft að ætla að Ísland geti komist á HM í náinni framtíð. Eftir breytingarnar á fyr- irkomulagi EM er næsta lokakeppni EM árið 2021. Takist Íslandi ekki að komast þangað þá er næsta stórmót þar á eftir, sem mögulegt væri að komast inn á, ekki fyrr en 2025. Þá verður Martin Hermannsson 31 árs og Tryggvi Snær Hlinason 28 ára svo einhver dæmi séu tínd til. Leið Íslands að EM 2021 er orðin erfið vegna þess að í undankeppninni bíða Serbar, Finnar og Georgíumenn. Tap og sigur gegn Portúgal Síðasta vetur mætti Ísland liði Portúgals tvívegis. Ísland tapaði í Portúgal 80:77 með fremur laskað lið. Martin skoraði 20 stig í leiknum, Tryggvi 15 og leikstjórnandinn Hörður Axel Vilhjálmsson 14. Ísland vann öruggan sigur í Laugardalshöll í febrúar 91:67 en þá gat Ísland nán- ast teflt fram sínu sterkasta liði. Jón Arnór Stefánsson skoraði 17 stig í sínum síðasta landsleik og Haukur Helgi Pálsson 15 stig. Úrslitin í Laugardalshöllinni gefa líklega ekki sérstaklega góða mynd af því sem koma skal í kvöld. Sveifl- urnar á milli útileikja og heimaleikja hafa verið talsverðar hjá íslenska landsliðinu á umliðnum árum. Ís- lenska liðið er hærra skrifað en það portúgalska en ekki er á vísan að róa eins og sést á úrslitunum í Portúgal fyrir ellefu mánuðum. Haukur og Kristófer ekki með Ísland teflir ekki fram sínu sterk- asta liði í þessari törn. Munar þar mest um Hauk Helga sem verið hef- ur liðinu mikilvægur í mörg ár. Haukur átti auk þess mjög gott tíma- bil síðasta vetur með Nanterre. Þar var hann í stóru hlutverki í liði sem fór langt bæði í Evrópukeppni og í keppninni um franska meistaratit- ilinn. Þess vegna er súrt að geta ekki nýtt hans krafta. Ofan á það bætist að Kristófer Acox er ekki leikfær. Kristófer er einn þeirra sem þarf að láta til sín taka í ljósi þeirra kynslóðaskipta sem orðið hafa. Auk þess eigum við ekki marga leikmenn sem geta spilað hans stöðu og barist um fráköstin við hlið miðherjans. Þá má einnig geta þess að Kári Jónsson er frá vegna meiðsla en hann átti frábæra rispu gegn Portú- gal ytra í fyrra þegar hann gerði fjór- ar þriggja stiga körfur í þriðja leik- hluta. Hlynur og Pavel hjálpa til Vegna fjarveru Kristófers var bók- staflega lagst á fráfarandi fyrirliða liðsins, Hlyn Bæringsson, að gefa kost á sér. Eftir nokkur símtöl frá nokkrum einstaklingum lét Hlynur til leiðast en hann hafði sagt skilið við landsliðið eins og Jón Arnór í febr- úar. Hjálpar það liðinu verulega í baráttunni um fráköstin. Þá er vert að nefna að Pavel Er- molinskij gefur kost á sér og það ætti að hjálpa liðinu í vörninni. Hlutverk Pavels í vörninni í landsleikjum hefur verið vanmetið en hann getur varist hávöxnum mönnum betur en margir aðrir í hópnum. Þá getur Jón Axel Guðmundsson leikið með þar sem háskólarnir eru ekki komnir af stað í Bandaríkj- unum. Þar hefur hann heldur betur vakið athygli og landsliðið þarf á því að halda að hann skili sínu á meðan hans nýtur við. Áhugavert verður að sjá hvert hlutverk nýliðans, Franks Arons Booker, verður. Hann á að vera ágæt skytta og lék í B-deildinni í Frakk- landi síðasta vetur. Hann var í frem- ur sterku liði í NCAA þegar hann lék í háskólaboltanum. Faðir hans, Frank Booker, var mjög vinsæll leik- maður hérlendis á sínum tíma og muna eflaust margir lesendur eftir honum. Lagt af stað í erfiðan leið- angur í kvöld  Landsliðið mætir Portúgal ytra  Löng leið að lokakeppni EM 2021 Morgunblaðið/Árni Sæberg Reyndur Pavel lék síðast með landsliðinu í sigri á Tékkum í febrúar 2018. Íslandsmeistarar Breiðabliks mæta ísraelsku meisturnum ASA frá Tel Aviv í fyrsta leik sínum í undanriðli Meistaradeildar kvenna í fótbolta í Sarajevo í Bosníu í dag. Liðin eru í riðli með heimakonum í Sarajevo og norðurmakedónsku meisturunum í Dragon en sigurlið riðilsins kemst í 32 liða úrslit keppninnar. Fyrirfram er talið líklegast að baráttan um sigurinn í riðlinum standi á milli Breiðabliks og Sa- rajevo sem mætast í lokaumferð- inni 13. ágúst. Einn leikmanna ASA hefur leikið á Íslandi. Ísraelska lands- liðskonan Shay Sade lék með Þór/KA hluta tímabilsins 2007, þá aðeins sautján ára gömul. ASA tapaði aðeins einum af 24 leikjum sínum í ísraelsku deild- inni síðasta vetur og vann titilinn eftir einvígi við Maccabi Kiryat Gat en liðin voru í algjörum sér- flokki. ASA lék síðast í Meistaradeild- inni 2015 og vann þá Jeunesse Junglinster frá Lúxemborg 5:1 en tapaði 1:2 fyrir Ferencváros frá Ungverjalandi og 0:7 gegn Twente frá Hollandi. Lið frá Íslandi og Ísrael hafa aðeins einu sinni áður mæst í Meistaradeild kvenna. Valur vann Maccabi Holon auðveldlega, 9:0, í undanriðli í Slóvakíu árið 2008 þar sem þrír núverandi leikmenn Vals, Margrét Lára Viðarsdóttir, Dóra María Lárusdóttir og Mál- fríður Erna Sigurðardóttir, voru allar á meðal markaskorara. vs@mbl.is Blikar byrja gegn ísra- elsku meisturunum Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason Bosnía Blikakonur spila fyrsta leik- inn í Sarajevo í dag gegn ASA.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.