Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2019, Síða 10
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.8. 2019
F
ram að þessu höfum við ekki haft
tækjabúnað til að kanna nákvæm-
lega hversu langt kríurnar fara,
hvaða leiðir þær fara og hversu oft
þær stoppa á leiðinni, ef þær stoppa
þá yfirleitt, hvað þær eru lengi á leiðinni og
hversu hátt þær fljúga, svo dæmi sé tekið,“
segir dr. Freydís Vigfúsdóttir, sérfræðingur
við Háskóla Íslands og einn umsjónarmanna
alþjóðlegrar rannsóknar á farhegðun kríunn-
ar, en tækin sem nýtt eru til rannsóknarinnar
eru nýkomin á markað.
„Eftir því sem við vitum best erum við fyrst
til að setja þessi nýju tæki út til að kanna þetta
langa árlega far kríunnar. Þetta eru GPS-ritar
sem taka staðsetningu á klukkutíma fresti með
GPS-nákvæmninni. Fram að þessu hefur þetta
far verið kannað með svokölluðum ljósrita,
sem er með um það bil 200 kílómetra ná-
kvæmni og mælir hvorki hæð né hraða. Þetta
er því mikil framför og vonandi fáum við fyrir
vikið nákvæmari og betri svör við spurningum
okkar um hegðun tegundarinnar. Það yrði
mjög mikilvægt fyrir verndarlíffræði kríunnar
og álíka tegunda,“ segir Freydís.
„Fylla á tankinn“ úti á reginhafi
Hún segir vísbendingar úr téðum ljósritum
benda til þess að kríurnar nýti ákveðin æti-
svæði úti á reginhafi, til dæmis suður af Græn-
landi og austur af Nýfundnalandi, síðla sumars
eða snemma á haustin til að nema staðar og
„fylla á tankinn“ áður en þær halda för sinni
áfram. Þá verði spennandi að sjá hvort þær
komi við á fleiri stöðum, en vísbendingar eru
um það; sem dæmi hafa hefðbundin fugla-
merki af kríum endurheimst og kríur sést á
fartíma við Afríkustrendur og strönd Brasilíu.
„Við vitum afskaplega lítið um þetta í dag, til
dæmis hvort fuglarnir eru að lenda á strönd-
um þar sem lítið er um fólk, hvað þá rann-
sóknafólk,“ segir Freydís.
Rannsóknin er unnin í samstarfi Háskóla Ís-
lands, háskólans í Exeter á Englandi og Wash-
ington-háskóla í Seattle í Bandaríkjunum, en
auk Freydísar og kollega hennar í hinum há-
skólunum hafa nemendur þeirra tekið virkan
þátt í verkefninu.
Merkingarnar fóru fram fyrr í sumar í landi
æðarbýlisins Norðurkots á Suðurnesjum, rétt
við Sandgerði, en bændurnir, Sigríður Hanna
Sigurðardóttir og Páll Þórðarson, voru svo al-
mennileg að leyfa vísindafólkinu að athafna sig
þar og veittu ómetanlega aðstoð.
Freydís segir merkingarnar hafa gengið
vonum framar. „Þetta heppnaðist ljómandi vel
og hópurinn vann sem ein manneskja. Aðferð-
in sem við beitum til að setja tækin á fuglana
gekk ótrúlega vel. Við notum það sem við köll-
um lærabelti, en bandarísk samstarfskona
mín, dr. Sara Maxwell, hefur beitt þeirri að-
ferð við að merkja sílaþernur og skyldar teg-
undir með góðum árangri í Bandaríkjunum.“
Að sögn Freydísar bendir ekkert til þess að
Dr. Freydís Vigfúsdóttir sækir hér kríu úr
hreiðurgildru á meðan samstarfskonur
hennar mæla hreiður og egg kríunnar.
Með henni á myndinni eru Jo Morten
doktorsnemi og dr. Lucy Hawkes dósent
og samstarfskona frá Exeter Háskóla.
Krían er ókrýndur heimsmeistari í ferðalögum; ferðast allra
dýra lengst á jörðinni, allt að 80 þúsund kílómetra á ári, ef
marka má vísbendingar. Vísindamenn vita þetta þó ekki fyrir
víst og höfuðmarkmið alþjóðlegrar rannsóknar, sem hleypt var
af stokkunum í fyrra, er að kanna þetta mikla far á kríunni.
Myndir: Kristinn Ingvarsson kri@hi.is
Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Í Norðurkoti er verndað æðavarp og fólk beðið um að fara varlega enda verpa þar þúsundir kría og
aðrar tegundir. Aðgangur að æðarvarpinu er lokaður enda fer þar fram dúntekja snemmsumars.
Kortleggja ferðir kríunnar
Hreiðurgildra fellur yfir kríu. Gildrurnar eru afar fljótvirkar og meinlausar fyrir fuglana enda velferð
fuglanna ávallt í forgangi. Slíkur búnaður er notaður með sérstöku leyfi og aðeins af vísindafólki.