Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2019, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2019, Blaðsíða 13
því hvort þeir fuglar nýti sér þessi sömu fæðu- svæði, sem gefur um leið ómetanlegar upplýs- ingar sem nýtast til verndar og sjálfbærrar nýtingu sjávar. Freydís hefur stundað kríurannsóknir í meira en áratug og segir þær afar spennandi. „Út frá vísindalegum sjónarhóli er krían af- skaplega áhugaverð vegna þess að spurning- arnar sem vakna þegar horft er á lífsferil fugls eins og kríu eru svo margþættar. Það eru til dæmis grunnvísindaspurningar, eins og hvernig er mögulegt fyrir svona lítinn fugl að fara yfir svona langan veg? Hvaða sér- stöku tækni beitir krían? Er hún að nýta sér einhverja sérstaka háloftavinda eða annað slíkt? Er eitthvað sérstakt í líkamsbyggingu og lífeðlisfræði kríunnar sem gerir henni kleift að fara alla þessa leið? Og svo fram- vegis. Það er líka ótvíræður kostur við kríuna að hún er mjög fljót að gefa okkur vísbend- ingar um það sem er að gerast í hafinu í kringum okkur. Það skiptir svo miklu máli að fá upplýsingar hratt og skilmerkilega um strandsvæði sjávarins.“ Staðan heldur að skána Krían hefur verið friðuð tegund á Íslandi frá árinu 1882. Hrun í sandsílastofninum, sem mjög lélegur í meira en áratug og sam- kvæmt válista Náttúrufræðistofnunarinnar frá árinu 2018 er krían nú metin í nokkurri hættu. „Þegar stórt er spurt,“ dæsir Freydís þegar spurt er hvernig stofninum reiði af. „Mér þætti afskaplega gaman að hafa svarið við því og hef í nokkur ár reynt að afla rannsókna- styrkja til að geta skoðað það betur. Það er erfitt að segja til um þetta með einhverri ná- kvæmni þegar engar slíkar rannsóknir eru í gangi á landinu í heild.“ Hún segir kríurnar hafa verið viku seinna í álegu á suðvesturhluta landsins í ár en í fyrra, bæði á Seltjarnarnesi og eins suður með sjó. Best sé þó að spyrja að leikslokum hvað þetta varðar enda skipti höfuðmáli að upp komi eitthvert æti meðan þær eru með ungana. „Það virtist ganga mun betur núna á Suðvesturlandi en í fyrra og fleiri ungar komust á legg; þannig að þetta virðist ekki hafa verið eins bagalegt og undanfarin ár. Ungavöxtur var víða nokkur þrátt fyrir að álegan hafi byrjað seint; það heyrir maður í fréttum og sér á myndum á samfélags- miðlum. Það eru í það minnsta ungar í ár, sem var alls ekki raunin mörg árin sem ég var við mælingar víða á Vestur- og Norðvesturlandi. Þá drápust þeir hreinlega áður en þeir komust á legg. Eigum við því ekki að segja að staðan virðist víða hafa verið heldur skárri en undanfarin ár, svo ég reyni nú að svara spurningunni. Það eru góðar fréttir og vonandi heldur sú þróun áfram. Við höfum þó engar vísbendingar um að þessu sjófuglakrepputímabili, sem við höfum búið við um langa hríð, sé lokið og því er nauðsyn- legt að fylgjast áfram með og sinna rann- sóknum og vöktun á þessu sviði.“ Dr. Freydís Vigfúsdóttir sleppir kríu með GPS-tæki að loknum mælingum og merkingum. Dr. Freydís Vigfúsdóttir sýnir réttu handbrögðin við að sleppa kríu að mælingum loknum. Jo Morten doktorsnemi, Nicole Parr doktorsnemi, dr. Lucy Hawkes, Sólveig barnabarn hjónanna í Norðurkoti, sem er sérleg aðstoðarkona og upprennandi vísindakona, dr. Freydís og dr. Sara Maxwell. ’Út frá vísindalegum sjón-arhóli er krían afskaplegaáhugaverð vegna þess að spurningarnar sem vakna þegar horft er á lífsferil fugls eins og kríu eru svo margþættar. meðal annars má trúlega rekja til lofts- lagsbreytinga, hefur haft neikvæð áhrif á afkomu kríunnar á Íslandi á umliðnum árum. Varpárangur kríunnar hefur verið 18.8. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.