Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2019, Side 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2019, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.8. 2019 LÍFSSTÍLL Hvað heillar þig við tísku?Tíska er svo lifandi og persónuleg.Það eru auðvitað ákveðnar stefnur: eins og allir sem horfðu á The Devil Wears Prada lærðu er ekki til neitt sem heitir „bara blá peysa“. Allur fatnaður er hannaður út frá straumum sem eru í gangi í samfélaginu. En hverju þú ákveður að klæðast og hvernig þú setur það saman getur verið frábær leið til að tjá persónuleika þinn. Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó þegar kemur að fatakaupum? Kauptu það sem þú fílar og passaðu að skoða úr hvernig efni flíkin er. Efnið segir til um hvernig flíkin kem- ur til með að haga sér. Góð efni endast oft á tíðum betur og þér líður yfirleitt betur í flíkinni ef hún er unnin úr vönduðum efn- um. Ódýr föt geta í raun verið dýr- ari ef endingin er stutt og því getur verið betra að fjárfesta í gæðum. Flík sem þú sérð fyrir þér að þú getir klæðst við ólík tilefni er líka gott að eiga í fataskápnum. Hvað hefurðu helst í huga þegar þú velur föt? Að þetta sé flík sem ég get hugsað mér að eiga lengi. Hvernig mynd- irðu lýsa þínum fatastíl? Kjólar, sólgler- augu, húfur og strigaskór eru lýs- andi fyrir minn stíl. Ég keypti mér þó gallabuxur síðasta sumar en þá var ég ekki búin að eiga buxur í mörg ár. Ég er alltaf í kjól! 90% af fataskápnum mín- um eru svört. Ég hef í gegnum tíðina fengið mörg kom- ment á það að klæð- ast svörtu og var skömmuð á Valsleik um daginn og spurð hvort ég væri að fara í jarð- arför. Ég er samt farin að kaupa ögn meiri liti en þá aðallega hlébarða- munstur og antíkbleikt. Ég elska samt liti í öllu öðru samhengi en að klæðast þeim. En hver veit, stíllinn getur breyst eins og tískan. Áttu þér einhverja tísku- fyrirmynd? Ég á í rauninni ekki neina eina tískufyrirmynd en hef gaman af að skoða hverju aðrir klæðast og öll verðum við fyrir innblæstri hvert frá öðru. En uppáhaldshönnuð? Já nokkra. Sumir þeirra gefa mér tískuinnblástur, aðrir inn- blástur í hönnuninni minni og öðrum finnst mér bara gaman að fylgjast með. Iris Apfel, Henrik Vibskov, Meadham Kirchhoff, Andrea Magnúsdóttir, Coco Chanel, Alexander McQueen og Ganni eru meðal þeirra sem ég fylgist með. Hver er þín uppáhaldsárstíð varðandi tísku og hvers vegna? Haustið er án efa mín uppá- haldsárstíð því ég elska „layers“ og prjónaflíkur. Ég er lærður fatahönnuður úr Listaháskóla Íslands og fór til Borås í skipti- nám. Borås er sænskur textílbær og þar kynntist ég prjóni enn betur. Ást mína á prjóni hef ég þó sennilega fengið með móðurmjólk- inni en það eru eintómir prjónasnillingar í fjöl- skyldunni og lærði ég því snemma að prjóna. Haustið er líka nýtt upphaf, alveg eins og þegar maður byrjaði á ný í skólanum eftir gott sumar í nýjum fötum. Ég allavega elska að bæta einhverju nýju fallegu í skápinn með haustinu. Hvað er nauðsynlegt í snyrtitöskuna? Ætla að byrja á því að viðurkenna að snyrtitask- an mín er aðeins of stór. Áður en ég fór í Listahá- skólann vann ég sem förð- unarfræðingur og elska snyrtivörur. Ég elska merkið Hourglass og finnst mjög gaman að bæta í Hour- glass-safnið þegar ég fer í Sephora erlendis. Ambient lig- hting-pallettan þeirra er dásam- leg og Ambient-púðrið í litnum Ethereal light verður að vera til. Sensai er annað af mínum uppá- haldsmerkjum. Ég nota Sensai- dagkremið með spf 25. Það gefur góðan raka, er með miklum ljóma og verndar húðina. Hylj- arinn frá þeim er besti hyljari sem ég hef prófað og ég hef prófað þá nokkra. Brúnkugel- ið þeirra er líka í snyrtitöskunni minni. Einnig CC-kremið frá Es- tee Lauder, Essie- naglalakk í litnum Lady- like og yfirlakk frá þeim, Marc Jacobs-maskari, Mac-augnblýantur í litn- um Prunella og Mac-paintpot. Ég elska húðvörurnar frá Chanel og á alltaf allavega eitt krem frá þeim. Síðan er nauðsynlegt að eiga fallegan highlighter en ég er núna að nota Becca. Já, það má segja að þetta séu helstu nauð- synjar! Áttu þér uppáhaldsflík? Ég á alveg nokkrar uppáhaldsflíkur. Gam- all svartur Andreu-kjóll sem virkar við öll tilefni og mér finnst ég alltaf fín í en hann er hægt að dressa upp og nið- ur eftir tilefni. Geysis- lopapeysan mín er síð- an möst í útilegurnar, loðhárband sem strák- arnir mínir gáfu mér í jólagjöf fyrir nokkrum árum, dragsítt svart poncho sem ég fann í rauðakrossbúð fyrir mörgum árum og Marc Jacobs-sólgleraugun mín. Sólgleraugu eru ekki beint flík en ég elska fylgihluti. Hvað er á óskalistanum þessa stundina? Það eru aðeins of margir hlutir á óskalistanum. Mig langar í nýja húfu fyrir veturinn, sá hálsmen hjá Hlín Reykdal eftir By Lovisa jewellery sem mig langar mikið í, nýjan hlé- barðakjól, Geysisullarsokka, Andreukjól og hálsmen, nýja Nikeskó og North face- eða 66-úlpu fyrir veturinn. Linda Jóhannsdóttir hönnuður er ávallt flott til fara. Morgunblaðið/Árni Sæberg Haustið uppáhaldsárstíðin Linda Jóhannsdóttir hönnuður rekur eigin hönnunarmerki, Pastelpaper. Linda, sem hefur skemmtilegan stíl, velur gæðafatnað og lífgar upp á einfaldar samsetningar með vönduðum fylgihlutum. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Fiskifléttuháls- menið eftir By Lovisa jewellery er á óskalistanum. Marc Jacobs-sólgleraugun standa alltaf fyrir sínu. Iris Apfel er ein sú flottasta. Fallegir bleikir ullarsokkar úr Geysi. Ambient-púðrið í litnum Ethereal light verður að vera til í snyrtitöskunni.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.