Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2019, Page 32
SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2019
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
SINFONIA er einstaklega þægileg dýna með 7
hægindalögum. Lögin eru samsett úr hágæða svampi
og lagi úr náttúrulegu Talalay-latexi sem saman gefa
mýkt og stuðning á réttum svæðum. Sinfonia er með
5 svæðaskiptu pokagormakerfi og stýrist hreyfing
gormanna af mismunandi þunga líkamssvæða. Þannig
veitir dýnan alltaf hárréttan stuðning. Gormakerfið
er mýkra á axlasvæðum og við mjóbak til að halda
réttri sveigju á líkamanum alla nóttina. Steyptar
kantstyrkingar gefa þér um 25% meira svefnrými og
eykur það endingu dýnunnar. Áklæðið utan um dýnuna
er úr 100% bómull og andar einstaklega vel.
Í tilefni 25 ÁRA AFMÆLIS BETRA BAKS höfum við
í náinni samvinnu við sérfræðinga SERTA, stærsta
dýnuframleiðanda veraldar, sérhannað og framleitt
Sinfoniu, einstaka heilsudýnu fyrir viðskiptavini sem
kjósa gæði og gott verð.
S TÆRS T I DÝNU-
FRAMLE IÐAND I
VERALDAR
25 ÁRA AFMÆLISDÝNA BETRA BAKS
Sinfonia
SERTA SINFONIA
ÓTRÚLEGT AFMÆLISVERÐ
STÆRÐ
AFMÆLISVERÐ
STÖK DÝNA
AFMÆLISVERÐ
MEÐ COMFORT
BOTNI OG FÓTUM
120x200 cm 65.900 kr. 103.940 kr.
140x200 cm 72.900 kr. 115.875 kr.
160x200 cm 79.900 kr. 133.375 kr.
180x200 cm 89.900 kr. 152.060 kr.
180x210 cm 95.900 kr. 166.745 kr.
192x203 cm 99.900 kr. 170.745 kr.
OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN
VEFVERSLUN
www.betrabak.is
Eftir að hafa látið lítið fyrir sér fara undanfarin ár og
misseri er hljómsveitin Hjaltalín komin aftur saman og
nær tónleikahald sveitarinnar á þessu ári hápunkti á
tvennum tónleikum í Eldborgarsal Hörpu á föstudag og
laugardag í næstu viku, 6. og 7. september.
Öllu verður tjaldað til á tónleikunum sem verða þeir
stærstu í sögu sveitarinnar, að því er fram kemur á
heimasíðu Hörpu. Auk gamals efnis verða einnig á boð-
stólum lög af nýrri plötu sem er að koma út um þessar
mundir.
„Okkur langar til að halda aðra fallega tónleika í Eld-
borg og vonandi verðum við búin að finna tíma fyrir plöt-
una eða jafnvel gefa hana út þá. Fyrir mig persónulega
er ekkert sem jafnast á við að syngja þessi sönglög með
hljómsveitinni minni. Mér finnst alltaf eitthvað sérstakt
gerast þegar Hjaltalín kemur saman, enda höfum við
gengið í gegnum margt saman,“ segir Högni Egilsson,
söngvari sveitarinnar, á heimasíðu Hörpu.
Hjaltalín hélt síðast tónleika í Eldborg árið 2014 og þá
mun hafa verið „sprenguppselt“.
Sigríður Thorlacius og
Högni Egilsson á tón-
leikum með Hjaltalín.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
„Ekkert jafnast á við
að syngja þessi lög“
Hljómsveitin Hjaltalín er snúin aftur eftir drjúgt hlé og heldur tvenna tónleika
í Eldborgarsal Hörpu á föstudaginn og laugardaginn í næstu viku
„Dagblöðin á Íslandi hafa oft
sætt mikilli gagnrýni fyrir frétta-
flutning, efnisval og stjórn-
málaskrif. Ekki er ólíklegt, að
prentaraverkfallið hafi orðið til
þess að hinn almenni blaðales-
andi geri sér gleggri grein fyrir
því en áður hvað hann missir,
þegar blöðin koma ekki út og
væntanlega ríkir þá almennari
skilningur á nauðsyn þess, að
treysta rekstrargrundvöll dag-
blaðanna.“
Þannig komst leiðarahöf-
undur Morgunblaðsins að orði 2.
september 1969 en þá var nýlok-
ið verkfalli prentara sem hafði
þau áhrif að dagblöð komu ekki
út í rúma viku hérlendis.
„Á undanförnum árum hefur
blaðadauði orðið tíður víða um
lönd og vitað er, að sum dag-
blöðin hér eiga við mikla erf-
iðleika að etja. En einmitt á
sama tíma hefur ríkisvaldið sett
upp stofnun á borð við sjón-
varpið, sem augljóslega tekur
töluverðar tekjur frá blöðunum.
Er í þessu sambandi vert að hafa
í huga, að sjónvarpsstöðvar
hinna Norðurlandanna flytja
ekki auglýsingar. Ríkisstyrkir til
dagblaðanna er ekki rétta leiðin
til þess að tryggja útkomu
þeirra, en það er hægt að
treysta rekstrargrundvöll þeirra
með ýmsum öðrum hætti.“
Nei, þetta var ekki skrifað í
gær, heldur fyrir 50 árum.
GAMLA FRÉTTIN
Staða dag-
blaðanna
Landsmenn söknuðu dagblaðanna sinna í lok ágústmánaðar 1969.
Morgunblaðið/Ásdís
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Jane Kaczmarek
leikkona
Eva Ruza
áhrifavaldur
Jennifer Esposito
leikkona