Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2019, Blaðsíða 29
fyrstu lotuna en Booth snýr taflinu
við með afgerandi hætti í næstu lotu;
fleygir Lee utan í kyrrstæða bifreið
svo stórsér á henni. Ekki kemur til
endanlegs uppgjörs vegna þess að
bardaginn er stöðvaður af yfirmönn-
um þeirra félaga á settinu.
Var frekar drjúgur með sig
Sjálfur hefur Tarantino varið túlkun
sína á Lee. Á blaðamannafundi í
Moskvu, þar sem hann var að kynna
myndina á dögunum, sagði hann:
„Bruce Lee var frekar drjúgur
með sig. Hvernig hann tjáði sig; það
er enginn uppspuni af minni hálfu.
Ég heyrði hann segja hluti af þessu
tagi. Ef fólk segir: En hann sagðist
aldrei geta tekið í lurginn á Muham-
med Ali? Ójú, hann gerði það. Skilj-
iði? Ekki nóg með að hann hafi sagt
það sjálfur heldur gerir eiginkona
hans, Linda Lee, það einnig í fyrstu
endurminningum sínum, sem ég las.
Hún sagði þetta, punktur, basta.“
Þetta er raunar ekki rétt hjá leik-
stjóranum, því þegar menn flettu upp
í bókinni, Bruce Lee: The Man Only I
Knew, kom í ljós að þessi orð eru höfð
eftir ónafngreindum þriðja manni
sem hafði efasemdir um að Muham-
med Ali væri manna hraustastur
vestra um þær mundir. „Þeir sem
hafa séð Lee myndu veðja á að hann
gæti barið Ali til óbóta.“
Einn af lærlingum Bruce Lee, Dan
Inosanto, hefur einnig dregið þessa
afstöðu til efa. Að hans sögn hafði
Lee mikið dálæti á Ali og hefði aldrei
látið sér detta í hug að vanvirða hann
með þessum hætti.
Annars tók Tarantino skýrt fram á
blaðamannafundinum að hann þyrfti
ekki að réttlæta sýn sína gagnvart
nokkrum manni enda þrátt fyrir allt
um skáldverk að ræða.
„Gæti Cliff barið Bruce Lee í
strimla?“ spurði hann svo. „Brad gæti
það ekki, en mögulega gæti Cliff það.
Ef þið spyrjið mig: Hvor myndi vinna
slaginn, Bruce Lee eða Drakúla? Þá
er það sama svarið. Þetta er skálduð
persóna. Ef ég segi að Cliff geti barið
Bruce Lee er svarið já vegna þess að
hann er skálduð persóna. Staðan er
þessi: Cliff er hermaður og hefur
drepið marga menn í seinni heims-
styrjöldinni – með berum hnefum.
Sagði Bruce Lee ekki alltaf að hann
dáðist að vígamönnum? [...] Cliff er
ekki bardagaíþróttamaður, hann er
vígamaður.“
Leikstjórinn lauk máli sínu á því að
fullyrða að Bruce Lee myndi „drepa“
Cliff Booth í bardaga að viðstöddu
fjölmenni í Madison Square Garden
en mættust þeir á hinn bóginn í frum-
skógum Filippseyja myndi dæmið
snúast við.
Út frá þessum orðum má gera því
skóna að Tarantino hafi ekki verið að
gera lítið úr Bruce Lee í téðu atriði,
heldur mikið úr Cliff Booth. Undir-
strika hversu grjótharður hann á að
vera. Hver er harðasti naglinn í
Hollywood 1969? Jú, auðvitað Bruce
Lee. Ergó: Cliff gengur í skrokk á
honum. Ekki svo að skilja að atriðið
verði endilega eitthvað þægilegra
fyrir Shannon Lee og aðdáendur föð-
ur hennar út frá því sjónarhorni.
Raunar var Shannon Lee alls ekki
skemmt yfir téðri greiningu Tarant-
inos. „Hann ætti að loka á sér þverrif-
unni. Það væri langbest,“ sagði hún
við tímaritið Variety eftir að hafa hlýtt
á mál leikstjórans. „Hann gæti líka
beðist afsökunar og sagt: Ég hef í raun
og veru ekki hugmynd um hvernig
Bruce Lee var; skrifaði þetta bara
svona fyrir kvikmyndina og ekki ber
að líta svo á að hann hafi verið svona.“
Rasískur undirtónn?
Þess utan hverfist deilan ekki aðeins
um persónu Bruce Lee heldur heilan
kynstofn en einhverjir telja sig greina
rasískan undirtón í túlkun Tarantinos
á manni sem sagður er hafa gert
meira fyrir sjálfsvirðingu Banda-
ríkjamanna af asískum uppruna en
flestir aðrir með sjálfsöryggi sínu og
velgengni á hvíta tjaldinu. Tarantino
hefur meðal annars verið sakaður um
að „alhæfa“ og setja fram „stereótýp-
íska sýn“ á asíska karlmenn en Bruce
Lee er eina litaða persónan sem eitt-
hvað kveður að í myndinni.
Það verður þó að teljast langsótt að
væna Quentin Tarantino um rasisma
en fáir leikstjórar hafa skapað eft-
irminnilegri litaðar persónur seinasta
aldarfjórðunginn; nægir þar að nefna
Jules Winnfield og Marsellus Wallace
í Pulp Fiction, Jackie Brown í sam-
nefndri mynd og Django í Django
Unchained. Að ekki sé talað um tví-
tyngdu ambáttina Broomhildu von
Shaft. Sú kallaði ekki allt ömmu sína.
Sony Pictures Entertainment
1.9. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Suðurlandsbraut 6, 108 Rvk | S. 419 9000 | info@handafl.is | handafl.is
VANTAR ÞIG STARFSFÓLK?
Við útvegum hæfa starfskrafta
í flestar greinar atvinnulífsins
Traust og fagleg starfsmannaveita
sem þjónað hefur íslenskum fyrirtækjum í áraraðir
MÁLMUR Sem frægt er þá var Ste-
ven Adler, upprunalegur trymbill
Guns N’ Roses, ekki endurlimaður
inn í málmbandið fræga fyrir Not
In This Lifetime-túrinn sögufræga
sem lauk á Laugardalsvelli fyrir
rúmu ári. Þetta gramdist Adler og
brást við með því að setja á lagg-
irnar hljómsveitina Adler’s Appe-
tite sem hefur verið að troða upp í
Bandaríkjunum að undanförnu.
Söngvarann, Ariel Kamin, fann Ad-
ler í GN’R-ábreiðubandinu Son Of a
Gun í Argentínu.
Adler saman nú!
Steven gamli Adler hress að vanda.
BÓKSALA 21.-27. ÁGÚST
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Til í að vera til Þórarinn Eldjárn
2 Verstu börn í heimi 3 David Walliams
3 Sú sem varð að deyja David Lagercrantz
4 Sapiens Yuval Noah Harari
5 Tungutak – ritun Ásdís, Elínborg og Sólveig
6 Focus on Vocabulary 2 Diane Schmitt
7 Menschen A1 Arbeitsbuch
8 Menschen A1 Kursbuch
9 Svört perla Liza Marklund
10 Annabelle Lina Bengtsdotter
1 Verstu börn í heimi 3 David Walliams
2
Blesa og leitin að
grænna grasi
Lára Garðarsdóttir
3 Kennarinn sem hvarf Bergrún Íris Sævarsdóttir
4 Vandræðasögur Ýmsir höfundar
5 Risastóri krókódíllinn Roald Dahl
6
Þín eigin saga
– draugagangur
Ævar Þór Benediktsson
7
Þín eigin saga
– piparkökuhúsið
Ævar Þór Benediktsson
8 Óvænt endalok Ævar Þór Benediktsson
9 Fleiri Korkusögur Ásrún M./Sigríður M.
10 Litli prinsinn Antoine de Saint-Exupéry
Allar bækur
Barnabækur
Ég er í leshóp sem kallast Les-
hópur fyrir konur sem lesa. Við
hittumst mánaðarlega og sú sem
er gestgjafi velur
bókina hverju
sinni. Núna erum
við að lesa Sælu-
vímu eftir Lily
King. Bókin kem-
ur út hjá bóka-
forlaginu Ang-
ústúru, og er hluti
af útgáfu sem
kallast bækur í áskrift en þá fær
áskrifandi fjórar þýddar bækur á
ári frá ýmsum heimshornum í
beint inn um lúguna. Að vera í
bókaklúbb, hvort sem það er
með góðum vinkonum eða
áskrifandi, er kjörin leið til að
kynnast bókum og höfundum
sem ella hefðu kannski ekki orð-
ið fyrir valinu. Sæluvíma fjallar
um störf mannfræðinga í Nýju-
Gíneu á fjórða áratug síðustu
aldar og byggir á raunverulegum
atburðum í lífi bandaríska mann-
fræðingsins
Margaret Mead.
Ég er nýbyrjuð á
bókinni og hún
lofar góðu.
Fyrir nokkrum
árum ákvað les-
hópurinn að lesa
Dalalíf eftir Guð-
rúnu frá Lundi.
Bókin vakti mismikla lukku inn-
an hópsins en þetta voru mín
fyrstu kynni af Guðrúnu og ég
kolféll. Bækur Guðrúnar eru
stórkostleg blanda af sveitastörf-
um til forna, ást, svikum, gleði
og sorgum - fullkomin sveita-
sápa. Sumrinu varði ég því með
fólkinu á Herjólfsstöðum í Lága-
nessveit við mótekju, mjaltir og
gegndarlausa kaffidrykkju.
Eyjan hans afa eftir Benji Dav-
ies er í miklu uppáhaldi hjá eins
og hálfs árs
gamalli dótt-
ur minni og
við lesum
hana á
hverju
kvöldi,
stundum tvisvar. Þetta er gull-
falleg, litrík bók með trega-
fullum undirtóni. Hún fjallar um
drenginn Leó sem fer með afa
sínum í hans hinsta ferðalag til
ævintýraeyju.
Svo er það Pratchett. Það er
alltaf Pratchett.
Discworld heimurinn er sögu-
svið fantasíubóka breska rithöf-
undarins Terry Pratchett. Heim-
urinn í bókaröðinni er diskur
sem stendur á
baki fjögurra fíla,
sem aftur standa
á baki skjaldböku
sem syndir gegn-
um alheiminn.
Eðlilega. Í þessum
heimi búa nornir,
galdramenn, tröll,
dvergar og mannfólk, og galdrar
eru hluti af hinu daglega lífi.
Bækurnar í Discworld bóka-
röðinni skipta tugum. Ég ánetj-
aðist þeim á unglingsárum og
get lesið sömu bækurnar aftur
og aftur, enda uppgötva ég nýjar
vísanir við hvern lestur. Bæk-
urnar eru bráðfyndnar en að
auki hafði Pratchett einstakt
næmi fyrir mannlegu eðli og
undir gamansömu yfirborðinu
leynist hárbeitt ádeila á sam-
félagið.
AUÐUR ER AÐ LESA
Bókaklúbbur kjörin leið
Auður Hall-
dórsdóttir er
Forstöðumað-
ur bókasafns
og menningar-
mála í Mos-
fellsbæ.