Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2019, Page 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2019, Page 17
saman úr ótta beggja stjórnarflokka við kosningar og þrá til þess að halda Salvini úti úr kastljósinu sem hann fékk sig sem valdamesti ráðherra ríkisstjórnar- innar. Upphaf að endalokum En ekki er víst að vonir þessara nýju ást- og haturs- manna gangi eftir. Ambrose Evan-Pritchard segir nýrri ríkisstjórn Ítalíu að treysta varlega vonum sínum um hvað leiði af síðustu leikjum þeirra á velli stjórnmálanna. „Útlegðardómurinn yfir eldstöðinni Matteo Salvini er áþekkur samningsgerð Faust við fjandann sjálfan (Faustian Bargain) í höndum ESB-elítunnar og varð- sveitarinnar um evru-tilraunina. Það verður að telja mikil líkindi á að sterki maður Bandalagsins sem er óskipaður en samt óskoraður leiðtogi uppreisnar- innar gegn ESB í álfunni muni koma þegar á næsta ári eins og stormsveipur til valda á ný með afgerandi meirihluta á bak við sig. Og þá gæti hann verið kom- inn með nægilegt afl til að knýja í gegn byltingar- kenndar breytingar sem hefðu verið óframkvæman- legar áður: Framkvæmdasprengju í anda New Deal Roosevelts sem væri tryggð af nýjum Seðlabanka sem væri beintengdur ítölsku ríkisstjórninni og um leið væri lagður grundvöllur að mynt sem væri hlið- sett evrunni og myndi smám saman gera stjórnkerfi Seðlabanka evrunnar gagnvart Ítalíu óvirkt.“ Þarna er lýst aðferð sem er algjört eitur í beinum búrókrata í Brussel enda kynntur til sögunnar verk- færakassinn sem þjóðirnar myndu hver af annarri nota til að koma sér smám saman út úr tilraunastof- unni um evruna sem stórskaðað hefur þjóðirnar sem ánetjuðust henni. Af hverju í ósköpunum? Á sama tíma er „kerfið“ sem í raun stjórnar Íslandi í krafti óvenjulega veikrar stjórnmálastéttar að færa landið sífellt nær inngöngu í ESB, en svikist var um að afturkalla aðildarumsókn með réttmætum og sjálfsögð- um hætti. Þvert ofan í allt sem sagt var við ákvörðun um inngöngu í Evrópska efnahagssvæðið hafa íslensk yfir- völd þegar þverbrotið öll loforð sem þau gáfu um að virða umhverfi íslensks landbúnaðar og galopna hann ekki fyrir ESB. Sú braut hefur verið opnuð án þess að þjóðin hafi verið spurð. Nú er verið með skýlausu broti á íslensku stjórnarskránni að færa eina meginauðlind landsins, einstæða orku þess, undir endanlegt „boðvald ESB“ eins og formaður Sjálfstæðisflokksins orðaði það á Alþingi áður en hann snerist eða var snúið um heilan hring. Og þá er aðeins eftir að meðhöndla sjávarútveginn með sama hætti. Og því skyldi honum hlíft eftir önnur afrek? Og þar með er hægt að draga umsóknina vondu óafturkallaða upp úr skúffunum enda þá orðið forms- atriði eitt að klára hana. Illa farið með góð tímamót Fagnað er hundrað ára fullveldi og níutíu ára Sjálf- stæðisflokki með því að stíga stór skref til hátíðarbrigða til að vega að þessu tvennu. Það eru aðeins ein rök færð fram fyrir því að Alþingi verði að samþykkja orkupakkann þriðja. Aðeins ein rök. Þau eru að það muni setja EES-samninginn í algjört uppnám ef málinu verði hafnað og engu breyti þótt sú höfnun sé í fullu samræmi við samninginn sjálfan. En það er ekki aðeins svo að slík höfnun sé í samræmi við samninginn sjálfan. Það að hún sé fullkomlega heimil er í raun forsenda þess að samningurinn var gerður og að það var stætt á því að gera hann. Þetta er eins augljóst og verða má. Ef Ísland gæti ekki hafnað tilskipunum frá Brussel og yrði að samþykkja þær þvert gegn vilja þjóðarinnar, þá þýddi það að Ísland hefði flutt löggjafar- vald sitt úr landinu. Allir á Alþingi vissu, þeir sem sam- þykktu: Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur. Þeir sem sátu hjá: Sjö þingmenn Framsóknarflokksins undir for- ystu varaformannsins Halldórs Ásgrímssonar, þeir sem sögðu nei, átta þingmenn Framsóknarflokks undir for- ystu formannsins Steingríms Hermannssonar og allir þingmenn Alþýðubandalags og Kvennalista, að hefði Ís- land ekki virkt neitunarvald gagnvart tilskipunum og réði því eitt hvort þær yrðu leiddar í lög eða ekki, þá hefði löggjafarvald landsins verið flutt úr landi. Meira að segja vitlausustu gervikennimenn í lögfræði í HR gætu ekki haldið því fram að slíkt stæðist stjórnarskrá. Gerðu þeir það ættu þeir að hefja lagakennslu í Grænuborg, en hætt er þó við því að jafnvel óvitarnir þar myndu horfa á slíka furðu lostnir. Það voru jú börnin sem könnuðust fyrst við að keisarinn var klæðalaus. Það er forvitnilegt að lesa hvernig snillingurinn A.E. Pritchard lýsir Evrópusambandinu og lítt sýnilegri snertingu þess við lýðræðið sem það á svo grátlega litla samleið með. Ekki er þó líklegt að þeir sem eru að svíkja sjálfa sig, flokkinn sinn og mikinn meirihluta hans þessa dagana muni hafa fyrir því. En kannski munu þeir láta launaða spunameistara, launaða af ríkinu, taka saman fyrir sig talpunkta, ein- ungis til útúrsnúninga, til að halda sér á floti í fáeinar vikur. Allt er þetta þyngra en tárum tekur. Trúverðugleikinn fer og þar með flest. Það kennir Icesave. Lexían ljóta. Morgunblaðið/Árni Sæberg 1.9. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.