Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2019, Blaðsíða 17
saman úr ótta beggja stjórnarflokka við kosningar og
þrá til þess að halda Salvini úti úr kastljósinu sem
hann fékk sig sem valdamesti ráðherra ríkisstjórnar-
innar.
Upphaf að endalokum
En ekki er víst að vonir þessara nýju ást- og haturs-
manna gangi eftir.
Ambrose Evan-Pritchard segir nýrri ríkisstjórn
Ítalíu að treysta varlega vonum sínum um hvað leiði
af síðustu leikjum þeirra á velli stjórnmálanna.
„Útlegðardómurinn yfir eldstöðinni Matteo Salvini
er áþekkur samningsgerð Faust við fjandann sjálfan
(Faustian Bargain) í höndum ESB-elítunnar og varð-
sveitarinnar um evru-tilraunina. Það verður að telja
mikil líkindi á að sterki maður Bandalagsins sem er
óskipaður en samt óskoraður leiðtogi uppreisnar-
innar gegn ESB í álfunni muni koma þegar á næsta
ári eins og stormsveipur til valda á ný með afgerandi
meirihluta á bak við sig. Og þá gæti hann verið kom-
inn með nægilegt afl til að knýja í gegn byltingar-
kenndar breytingar sem hefðu verið óframkvæman-
legar áður: Framkvæmdasprengju í anda New Deal
Roosevelts sem væri tryggð af nýjum Seðlabanka
sem væri beintengdur ítölsku ríkisstjórninni og um
leið væri lagður grundvöllur að mynt sem væri hlið-
sett evrunni og myndi smám saman gera stjórnkerfi
Seðlabanka evrunnar gagnvart Ítalíu óvirkt.“
Þarna er lýst aðferð sem er algjört eitur í beinum
búrókrata í Brussel enda kynntur til sögunnar verk-
færakassinn sem þjóðirnar myndu hver af annarri
nota til að koma sér smám saman út úr tilraunastof-
unni um evruna sem stórskaðað hefur þjóðirnar sem
ánetjuðust henni.
Af hverju í ósköpunum?
Á sama tíma er „kerfið“ sem í raun stjórnar Íslandi í
krafti óvenjulega veikrar stjórnmálastéttar að færa
landið sífellt nær inngöngu í ESB, en svikist var um að
afturkalla aðildarumsókn með réttmætum og sjálfsögð-
um hætti. Þvert ofan í allt sem sagt var við ákvörðun um
inngöngu í Evrópska efnahagssvæðið hafa íslensk yfir-
völd þegar þverbrotið öll loforð sem þau gáfu um að
virða umhverfi íslensks landbúnaðar og galopna hann
ekki fyrir ESB. Sú braut hefur verið opnuð án þess að
þjóðin hafi verið spurð. Nú er verið með skýlausu broti á
íslensku stjórnarskránni að færa eina meginauðlind
landsins, einstæða orku þess, undir endanlegt „boðvald
ESB“ eins og formaður Sjálfstæðisflokksins orðaði það á
Alþingi áður en hann snerist eða var snúið um heilan
hring.
Og þá er aðeins eftir að meðhöndla sjávarútveginn
með sama hætti. Og því skyldi honum hlíft eftir önnur
afrek? Og þar með er hægt að draga umsóknina vondu
óafturkallaða upp úr skúffunum enda þá orðið forms-
atriði eitt að klára hana.
Illa farið með góð tímamót
Fagnað er hundrað ára fullveldi og níutíu ára Sjálf-
stæðisflokki með því að stíga stór skref til hátíðarbrigða
til að vega að þessu tvennu.
Það eru aðeins ein rök færð fram fyrir því að Alþingi
verði að samþykkja orkupakkann þriðja. Aðeins ein rök.
Þau eru að það muni setja EES-samninginn í algjört
uppnám ef málinu verði hafnað og engu breyti þótt sú
höfnun sé í fullu samræmi við samninginn sjálfan. En
það er ekki aðeins svo að slík höfnun sé í samræmi við
samninginn sjálfan. Það að hún sé fullkomlega heimil er
í raun forsenda þess að samningurinn var gerður og að
það var stætt á því að gera hann. Þetta er eins augljóst
og verða má. Ef Ísland gæti ekki hafnað tilskipunum frá
Brussel og yrði að samþykkja þær þvert gegn vilja
þjóðarinnar, þá þýddi það að Ísland hefði flutt löggjafar-
vald sitt úr landinu. Allir á Alþingi vissu, þeir sem sam-
þykktu: Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur. Þeir sem
sátu hjá: Sjö þingmenn Framsóknarflokksins undir for-
ystu varaformannsins Halldórs Ásgrímssonar, þeir sem
sögðu nei, átta þingmenn Framsóknarflokks undir for-
ystu formannsins Steingríms Hermannssonar og allir
þingmenn Alþýðubandalags og Kvennalista, að hefði Ís-
land ekki virkt neitunarvald gagnvart tilskipunum og
réði því eitt hvort þær yrðu leiddar í lög eða ekki, þá
hefði löggjafarvald landsins verið flutt úr landi. Meira að
segja vitlausustu gervikennimenn í lögfræði í HR gætu
ekki haldið því fram að slíkt stæðist stjórnarskrá. Gerðu
þeir það ættu þeir að hefja lagakennslu í Grænuborg, en
hætt er þó við því að jafnvel óvitarnir þar myndu horfa á
slíka furðu lostnir. Það voru jú börnin sem könnuðust
fyrst við að keisarinn var klæðalaus.
Það er forvitnilegt að lesa hvernig snillingurinn A.E.
Pritchard lýsir Evrópusambandinu og lítt sýnilegri
snertingu þess við lýðræðið sem það á svo grátlega litla
samleið með. Ekki er þó líklegt að þeir sem eru að svíkja
sjálfa sig, flokkinn sinn og mikinn meirihluta hans þessa
dagana muni hafa fyrir því.
En kannski munu þeir láta launaða spunameistara,
launaða af ríkinu, taka saman fyrir sig talpunkta, ein-
ungis til útúrsnúninga, til að halda sér á floti í fáeinar
vikur.
Allt er þetta þyngra en tárum tekur.
Trúverðugleikinn fer og þar með flest.
Það kennir Icesave.
Lexían ljóta.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
1.9. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17