Fréttablaðið - 05.10.2019, Síða 2
Veður
Suðaustan 13-23 og víða rigning
með morgninum, hvassast syðst,
en þurrt fyrir norðan. Lægir síð-
degis, fyrst á Reykjanesi. Styttir
þá upp smám saman, en rigning
áfram um landið suðaustanvert.
Hiti 6 til 12 stig. SJÁ SÍÐU 48
Skrifuðu undir áskorun Barnaheilla
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
NÁNAR Á UU.IS EÐA Í SÍMA 585 4000
VERÐ FRÁ 339.900 KR.
TVÆR FERÐIR, APRÍL 2020
SA M F É L AG A lmannateng illinn
Andrés Jónsson var í byrjun mán-
aðarins skipaður kjörræðismaður
Indónesíu á Íslandi. Símtalið frá
sendiherranum í Ósló um að hann
tæki að sér embættið kom honum
á óvart en vinir hans úr samfélagi
indónesískra innflytjenda á Íslandi
höfðu bent á hann sem kandídat.
„Ég var AFS-skiptinemi í Indónes-
íu 1994 til 1995 og hef síðan haldið
góðu sambandi við fjölskyldu mína
þar. Ég hef eignast marga indónes-
íska vini hérlendis á undanförnum
árum og er þakklátur fyrir þennan
heiður. Ég mun þjóna þessu litla
samfélagi eins vel og mér er unnt,“
segir Andrés. Áður hafði lögfræð-
ingurinn Sveinn Andri Sveinsson
gegnt embættinu frá árinu 2007. – bþ
Skiptineminn
ræðismaður
HEILBRIGÐISMÁL „Ég sé að Sjúkra-
tryggingar Íslands hafa vaknað úr
dvala og nota gamla lummu sem
ég þekki í svarinu,“ segir Sigurður
Halldór Jesson um skýringar for-
stjóra SÍ varðandi innkaup á þvag-
leggjum.
Fram hefur komið að Sigurður er
ósáttur við að tiltekin tegund þvag-
leggja sem henta honum best standi
ekki til boða eftir útboð SÍ í fyrra.
Í Fréttablaðinu í gær sagði María
Heimisdóttir, forstjóri SÍ, að þessir
þvagleggir hefðu ekki verið boðnir í
útboðinu og því ekki hægt að semja
um kaup á þeim. „Fyrir þessa vöru,
eins og önnur hjálpartæki, er til
undanþáguleið fyrir þá notendur
sem óska eftir að fá aðra vöru eða
tegund niðurgreidda af SÍ,“ sagði
forstjórinn.
Sigurður segir undanþáguleiðina
hins vegar vera þyrnum stráða og
útheimta mikla skriffinnsku. Hann
nefnir dæmi um mænu skaddaðan
þvagleggjanotanda sem hafi þrætt
sig í langan tíma og hafi reynt að
fara undanþáguleiðina. Málið sé
enn í ferli.
„Það síðasta sem SÍ lagði fyrir
hann var að prófa alla aðra þvag-
leggi sem eru í boði en þá sem hann
vill. Þetta þarf hann að gera áður en
þeir íhuga að skoða málið. Þetta er
ekkert gamanmál því eitt af því sem
þvagleggjanotendur eru að stríða
við eru þrálátar þvagfærasýkingar
sem geta skemmt blöðru og nýru,“
segir Sigurður. Fólk í slíkri stöðu sé
ekki að prófa eitthvað nýtt hafi það
þegar fundið hið eina rétta.
Varðandi útboðsmálið segir Sig-
urður að hafi SÍ áttað sig á að eitt-
hvert klúður væri í gangi sem bitn-
aði á fastaviðskiptavinum þeirra
bæri þeim skylda til að bjarga mál-
unum og útvega rétta leggi. Senda
hefði átti hlutaðeigandi bréf og láta
vita af vandanum.
„Í kjölfarið hefði svo átt að fylgja
spurning um hvort við sættum
okkur við aðra leggi. Það hefði
verið lágmarks andmælaréttur
okkar. Svarið frá mér hefði að sjálf-
sögðu verið nei: Reddið þessu. Sam-
kvæmt mínum kokkabókum er SÍ
þjónustufyrirtæki fyrir okkur, ekki
öfugt,“ segir Sigurður.
Skilja mátti af orðum Sigurðar í
Fréttablaðinu á fimmtudag að það
hefðu verið bæklunarhjúkrunar-
fræðingar og bæklunarlæknar sem
veittu SÍ ráðgjöf við innkaupin.
María Heimisdóttir, forstjóri SÍ,
segir þetta óheppilegan misskiln-
ing.
„Það eru sérfræðingar í þvag-
færaskurðlækningum og sérhæfðir
hjúkrunarfræðingar á því sviði sem
skoða þessi tilvik. Slíkt fagfólk var
einnig í valhópnum sem valdi þá
vöru sem nú er almennt í boði,“
segir forstjóri Sjúkratrygginga
Íslands. gar@frettabladid.is
Segir undanþáguleið
hjálpartækja torfæra
Sigurður Halldór Jesson sem notar þvagleggi segir það þyrnum stráða leið að
ætla sér að fá undanþágu hjá Sjúkratryggingum Íslands fyrir slík hjálpartæki
eins og forstjóri stofnunarinnar sagði vera í boði fyrir þá sem þess óska.
Til vinstri eru þvagleggir sem Sigurður Halldór notaði í átta ár þar til í fyrra
en þvagleggirnir sem hann notar nú eru til hægri á myndinni. AÐSEND MYND
Þetta er ekkert
gamanmál því eitt
af því sem þvagleggjanot-
endur eru að stríða við eru
þrálátar þvagfærasýkingar
sem geta
skemmt
blöðru og
nýru.
Sigurður Halldór
Jesson grunnskóla-
kennari
VIÐSKIPTI Hraðflutningafyrirtækið
DHL mun ekki framlengja samning
sinn við Icelandair Cargo en hann
rennur út um næstu mánaðamót.
Þetta staðfestir Sverrir Auðunsson,
framkvæmdastjóri DHL á Íslandi.
DHL hefur nú þegar samið við
nýja aðila, vildi Sverrir ekki gefa upp
að svo stöddu hvaða aðilar það eru.
Líkt og kom fram í blaðinu í gær
hyggst Icelandair Cargo breyta
leiðakerfi fragtvéla um næstu mán-
aðamót og byggir það að hluta til á
útgöngu Bretlands úr Evrópusam-
bandinu. – gar
DHL hættir hjá
Icelandair Cargo
Icelandair Cargo hefur starfað með
DHL í áraraðir. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Andrés Jónsson,
almannatengill
og ræðismaður.
STJÓRNSÝSLA Guðmundur Ingi
Guðbrandsson umhverfisráðherra
vék úr sæti í máli er varðar kæru
Landverndar vegna ákvörðunar
Skipulagsstofnunar. Svandís Svav-
arsdóttir heilbrigðisráðherra mun
taka sæti Guðmundar Inga.
Málið snýst um kæru Land-
verndar um að taka ekki til ákvörð-
unar hvort fyrirhuguð stækkun
á Hótel Reynihlíð í Mývatnssveit
skuli sæta umhverfis mati. Guð-
mundur Ingi var framkvæmda-
stjóri Landverndar á árunum 2011
til 2017. – ab
Guðmundur
Ingi víkur sæti
fyrir Svandísi
Alþjóðasamtökin Barnaheill – Save the Children eru 100 ára á þessu ári og af því tilefni blása samtökin til alþjóðlegs átaks undir
yfirskriftinni „Stöðvum stríð gegn börnum“. Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid skrifuðu undir áskorunina og
settu handarför sín á þar til gerðan vegg í Smáralind í gær. Náði Guðni mynd af því þegar Eliza skrifaði undir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
+PLÚS
5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
5
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
F
3
-2
C
1
0
2
3
F
3
-2
A
D
4
2
3
F
3
-2
9
9
8
2
3
F
3
-2
8
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
0
4
s
_
4
_
1
0
_
2
0
1
9
C
M
Y
K