Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.10.2019, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 05.10.2019, Qupperneq 4
® 37” BREYTTUR NÝR RAM 3500 NÝTT GLÆSILEGT ÚTLIT. NÝJAR ÚTFÆRSLUR OG FJÖLMARGAR TÆKNINÝJUNGAR Í BOÐI. EIGUM TIL CREW CAB BIG HORN, LARAMIE, SPORT OG LIMITED ÚTFÆRSLUR TIL AFGREIÐSLU STRAX. EINNIG MEGA CAB Í LARAMIE OG LIMITED ÚTFÆRSLUM . RAM 3500 VERÐ FRÁ: 6.987.745 KR. ÁN VSK. RAM 3500 VERÐ FRÁ: 8.640.000 KR. M/VSK. ramisland.is CREW CAB UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 534 4433 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 717 símtöl frá ein­ staklingum í sjálfs­ vígshugleiðingum hafa borist Hjálparsíma Rauða krossins það sem af er ári, 30 prósent fleiri en í fyrra. TÖLUR VIKUNNAR 30.09.2019 TIL 04.10.2019 70 ár eru frá því að Alþýðu­ lýðveldið Kína var sett á fót og voru hátíðahöld þar í landi í vikunni. 10 prósent Íslendinga eru með sykursýki. Þar af eru 90 til 95 prósent með sykur­ sýki 2. 420 milljónir hefur Stofnun Leifs Eiríkssonar veitt í námsstyrki á síðustu 18 árum. Stofnunin styrkir um tíu nemendur á ári og fær hver þrjár milljónir. 0 voru skot Man­ chester United á mark í leik gegn AZ Alkmaar í vikunni. Þetta er í fyrsta skipti í sögu félagsins sem ekkert skot þeirra ratar á rammann í Evrópudeildinni. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur sagði tvísköttun á Reykvíkinga ekki á dag- skránni þegar kemur að öflun sextíu milljarða króna sem vantar upp á samgönguuppbyggingu á höfuð- borgarsvæðinu. Veggjöld komi þó vel til greina. Halla Bergþóra Halldórsdóttir settur ríkissaksóknari telur ábendingu í mannhvarfs- máli Guð- mundar Einarssonar fullrann- sakaða. Meint vitni kvaðst hafa verið í bíl sem ók á Guðmund nóttina sem hann hvarf í janúar 1975. Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor í stjórnmálafræði setti inn færslu á Twitter þar sem hann gagnrýndi baráttu- konuna Gretu Thunberg. Þar sagði hann komandi kyn- slóðir ekkert hafa gert fyrir okkur, en að við höfum gert allt fyrir þær. Þrjú í fréttum Rannsóknir, tvísköttun og Thunberg Í frétt um laun varaborgarfulltrúa í blaðinu í gær var rangt farið með starfshlutfall Jórunnar Pálu Jónasdóttur, hún er í 50 prósent starfi, en ekki 100 prósent. Þá er Diljá Ámundadóttir ekki í öðru starfi samhliða því að vera varaborgarfulltrúi. LEIÐRÉTTING VIÐSKIPTI Verktaka- og þjónustu- fyrirtækið VHE er í erfiðri fjár- hagslegri stöðu eftir að upp komst að stór samstarfsaðili þess, Upp- haf fasteignafélag, væri í mun verri stöðu en áður hafði verið haldið. Samstarf Upphafs og VHE hefur verið náið undanfarin ár og meðal annars stefndu fyrirtækin í sam- einingu að umfangsmikilli upp- byggingu í Skarðshlíð, nýju hverfi í Hafnarfirði. Miklar tafir hafa verið á þeim fyrirætlunum. Eins og greint var frá í vikunni var eigið fé sjóðsins GAMMA: Novus fært niður úr 4,4 milljörðum í 42 milljónir í vikunni. Vandræði sjóðs- ins má rekja til erfiðleika dóttur- félags þess, Upphafs fasteignafélags. Eigið fé þess er uppurið og nú er þess freistað að afla eins milljarðs króna frá skuldabréfaeigendum til þess að klára útistandandi verkefni félagsins. VHE var byggingaraðili 129 íbúða Upphafs í Kársnesi. Upphaf lega stóð til að sala íbúðanna myndi hefjast í lok árs 2018 en þær áætl- anir hafa dregist á langinn. Eins og Fréttablaðið greindi frá í vikunni hunsuðu stjórnendur Upphafs kostnaðaráætlun frá verkfræði- stofunni Ferli og gerðu eigin áætl- un innanhúss. Sú áætlun reyndist vanmeta kostnaðinn við byggingu íbúðanna verulega. Engar fram- kvæmdir hafa staðið yfir á reitnum á Kársnesi síðan í júní í sumar. Þessu slæma höggi mátti VHE ekki við. Segja má að fyrirtækið hafi róið lífróður frá efnahagshruni en þá stökkbreyttust erlendar skuldir félagsins. Fyrirtækið rambaði á barmi gjaldþrots eins og svo mörg verktakafyrirtæki. Morgunblaðið fjallaði um stöðu fyrirtækisins í mars 2018 og greindi frá því að VHE hefði um alllangt skeið átt í erfið- leikum með að standa skil á greiðsl- um til birgja og helsta lánveitanda síns, Landsbankans. Lausafé hafði skort til að standa undir af borg- unum á lánum á réttum tíma og greiða undirverktökum vegna þeirra verka. Umsvif VHE eru mikil en að sama skapi er reksturinn í járnum. Félagið velti um 9,6 milljörðum króna árið 2018 og nam rekstrar- hagnaður þess um 653 milljónum króna. Þegar leiðrétt hafði verið fyrir fjármagnsgjöldum og tekju- skattsinneign var hagnaður ársins 31 milljón króna. Þá skuldar félagið tæpa 9 milljarða króna. Eigendur VHE eru systkinin Unnar Steinn, Einar Þór og Hanna Rún Hjaltabörn auk foreldra þeirra. Unnar Steinn er stjórnarformaður fyrirtækisins og á 80 prósenta hlut í því en Einar Þór, framkvæmdastjóri þess, átta prósent. Hanna Rúna á sex prósent og foreldrar þeirra sín þrjú prósentin hvort. Systkinin eiga einnig fyrirtækið Nesnúp ehf. í svipuðum hlutföllum og VHE. Það fyrirtæki var hlut- skarpast í útboði Hafnarfjarðar- bæjar um fjórar fjölbýlishúsalóðir í nýju Skarðshlíðarhverfi bæjarins í lok árs 2016. Hreppti fyrirtækið lóðirnar Apalskarð 2, Apalskarð 6, Bergsskarð 1 og Geislaskarð 2. Sam- kvæmt upplýsingum frá Hafnar- fjarðarbæ var kaupverð lóðanna 661 milljón króna. Tæpu ári síðar keypti félagið Skarðshlíð ehf. lóðirnar út úr Nes- núpi en kaupverð lóðanna var 691 milljón króna. Skarðshlíð er í 50 prósent eigu Upphafs og 50 pró- sent eigu VHE. Þá undirritaði félag- ið einnig leigusamninga um tvær aðrar lóðir í hverfinu, Hádegisskarð 12 og 16, til 75 ára. Framkvæmdir á lóðunum eru skammt á veg komnar og óvíst hvað verður. Stjórnarformaður VHE, Unnar Steinn Hjaltason, vildi ekki ræða stöðuna sem upp er komin við Fréttablaðið þegar eftir því var leitað. bjornth@frettabladid.is VHE í járnum vegna Upphafs Rekstur verktaka- og þjónustufyrirtækisins VHE er í járnum vegna stöðu Upphafs fasteignafélags. Mikl- ar tafir hafa verið á framkvæmdum í Skarðshlíð og hafa engar framkvæmdir átt sér stað á reit á Kársnesi. VHE ehf., áður Vélaverkstæði Hjalta Einarssonar, hefur róið lífróður frá efnahagshruninu 2008. FRÉTTABLAÐIÐ/BJÖRN VHE var byggingaraðili 129 íbúða Upphafs fast- eignafélags á Kársnesi. Engar framkvæmdir hafa átt sér stað á reitnum frá því í júní síðastliðnum. 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 5 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 1 0 4 s _ P 1 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 F 3 -3 F D 0 2 3 F 3 -3 E 9 4 2 3 F 3 -3 D 5 8 2 3 F 3 -3 C 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 0 4 s _ 4 _ 1 0 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.