Fréttablaðið - 05.10.2019, Side 12

Fréttablaðið - 05.10.2019, Side 12
Reykjavíkurborg Umhverfis- og skipulagssvið LOFTSLAGSMÁL – Eru peningarnir þínir loftslagsmál? Umhverfis- og skipulagssvið styður vakningu í loftslagsmálum og stendur fyrir fundaröðinni Liggur okkur lífið á? Öll velkomin og heitt á könnunni. Þriðjudagurinn 8. október 2019 kl. 20 á Kjarvalsstöðum. Umhverfis- og skipulagssvið stendur fyrir funda- röðinni ásamt Sigurborgu Ósk Haraldsdóttur, formanni skipulags- og samgönguráðs, og Líf Magneudóttur, formanni umhverfis- og heilbrigðisráðs, þar sem loftslagsmál eru skoðuð og rædd út frá ýmsum sjónarhornum. Á fundinum munum við glíma við efni eins og: Hvernig sýnum við fjárhagslega ábyrgð í loftslags- málum? Geta græn skuldabréf fjármagnað aðgerðir í baráttunni við loftslagsbreytingar, t.d. rafbíla- væðingu, almenningssamgöngur, rafvæðingu hafna, umhverfisvænt húsnæði eða endurvinnslu? Hvaða gráu fjárfestingum getum við hætt? Fjallað verður um grænar fjárfestingar, græn skuldabréf og loftslagsmál. Bjarni Herrera, framkvæmdastjóri CIRCULAR Solutions sjálfbærni- ráðgjafar, flytur upphafserindi. Aðrir sem fram koma eru Hrefna Ö. Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri Markaða hjá Landsbankanum, Guðmundur D. Haraldsson, stjórnarmaður í Öldu, félags um sjálfbærni og lýðræði og Helga Benediktsdóttir, skrifstofustjóri fjárstýringar- og innheimtuskrifstofu hjá Reykjavíkurborg. Byggjum á staðreyndum. Hlustum á fagfólk og grasrótina. Tökum þátt í umskiptunum. Ráðstefna um tækifæri á sviði endur- nýjanlegrar orku, jarðvarma, orkunýtni o.fl. sem vinnur gegn hlýnun jarðar, í Póllandi, Rúmeníu og Króatíu, á vegum Uppbyggingasjóðs EES Margir gestir frá opinberum aðilum, borgum og bæjum þessara landa mæta Ráðstefnan verður á Grand hótel 23. október, kl. 9:00 – 14:00 Dagskrá 9:00 Ávarp – Utanríkisráðuneyti og Orkustofnun 9:15 Kynning á tækifærum í Póllandi, Rúmeníu og Króatíu 10:15 Kynning á fyrirtækjum á Íslandi 11.30 Viðræður um samstarf á milli fyrirtækja og landa 14:00 Fundarlok Þau fyrirtæki sem áhuga hafa á því að kynna sína starfsemi á fundinum, eru beðin að hafa samband við Orkustofnun, í síma 569 6000 eða með tölvupósti os@os.is Utanríkisráðuneyti Ráðstefna um tækifæri á sviði endurnýjanlegrar orku, jarðvarma, orkunýtni o.fl., í Póllandi, Rúmeníu og Króatíu, sem vinnur gegn hlýnun jarðar, á vegum Uppbyggingasjóðs EES Margir gestir frá opinberum aðilum, borgum og bæjum þessara landa mæta. Ráðstefnan verður á Grand hótel 23. október, kl. 9:00 – 14:00 Dagskrá 9:00 Ávarp – Utanríkisráðuneyti og Orkustofnun 9:15 Kynning á tækifærum í Póllandi, Rúmeníu og Króatíu 10:15 Kynning á fyrirtækjum á Íslandi 11.30 Viðræður um samstarf á milli fyrirtækja og landa 14:00 Fundarlok Þau fyrirtæki sem áhuga hafa á því að kynna sína starfsemi á fundinum, eru beðin að hafa samband við Orkustofnun, í síma 569 6000 eða með tölvupósti os@os.is - Skráning fyrir alla er á os.is Ráðstefna um tækifæri á sviði endur- nýjanlegrar orku, jarðvarma, orkunýtni o.fl. sem vinnur gegn hlýnun ja ðar, í Póllandi, Rúmeníu og Króatíu, á vegum Uppbyggingasjóðs EES Margir gestir f á opinberum aðil m, borgum og bæjum þessara land mæta Ráðstefnan verður á Grand hótel 23. október, kl. 9:00 – 14:00 Dagskrá 9:00 Ávarp – Utanríkisráðuneyti og Orkustofnun 9:15 Kynning á tækifærum í Póllandi, Rúmeníu og Króatíu 10:15 Kynning á fyrirtækjum á Íslandi 11.30 Viðræður um samstarf á milli fyrirtækja og landa 14:00 Fundarlok Þau fyrirtæki sem áhuga hafa á því að kynna sína starfsemi á fundinum, eru beðin að hafa samband við Orkustofnun, í síma 569 6000 eða með tölvupósti os@os.is Utanríkisráðuneyti tanríkisráðuneytið 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð BANDARÍKIN Bandarískt hagkerfi bætti við 136.000 nýjum störfum í september en það dregur úr launa- skriði að sögn bandarísku vinnu- málastofnunarinnar sem birti í gær nýjar upplýsingar um atvinnu- markaðinn. Störfum fjölgaði yfir sumarmánuðina. Atvinnuleysi í Bandaríkjunum hefur ekki verið svo lítið í 50 ár. Það er komið niður í 3,5 prósent af vinnumarkaði og hefur ekki verið svo lágt síðan í desember 1969. Vísbendingar eru um að draga muni úr ráðningum á næstunni. Að sögn breska blaðsins Financial Times hafa opinberir aðilar í Banda- ríkjunum lýst aukinni spennu á vinnumarkaði allt þetta ár, þar sem atvinnuleysi hefur stöðugt reynst undir langtímaáætlun. Fólki á vinnumarkaði hefur fjölgað og fyrirtæki hafa verið viljugri til ráðninga og að greiða fyrir starfs- þjálfun. Atvinnuþátttaka karla og kvenna á vinnualdri fór í 82,6 pró- sent í ágústmánuði. Donald Trump, forseti Bandaríkj- anna þakkaði sér lítið atvinnuleysi í tísti í gær eftir skýrsluna. En það eru teikn á lofti um að það kunni að hægja á hagkerfinu. Til að mynda hefur dregið úr hækkun launa á vinnumarkaði. En stærsti óvissuþátturinn eru tollaviðræður Bandaríkjanna og Kína. AP fréttastofan segir viðskipta- halla Bandaríkjanna hafa aukist á sama tíma. Útflutningur hafi reynd- ar aukist en innf lutningur aukist enn meir. Trump forseti lítur á við- varandi viðskiptahalla landsins sem merki um efnahagslegan veik- leika og af leiðingar ósanngjarnra viðskiptasamninga. AP segir bandaríska neytendur enn bjartsýna og að kaupgleði þeirra hafi haldið hagkerfinu uppi á þessu ári. Þannig hafa fasteignakaup aukist aftur í kjölfar lægri vaxta hús- næðislána. Að auki hefur sala bíla verið góð. david@frettabladid.is Ekki verið minna atvinnuleysi í 50 ár Bandarískt hagkerfi bætti við 136.000 nýjum störfum í september en það dregur úr launaskriði. Vísbendingar um færri ráðningar. Atvinnuleysi er komið niður í 3,5 prósent og hefur ekki verið svo lítið síðan í desember 1969. TÚNIS Túnisbúar, sem kröfðust frjálsra kosninga í uppreisn árið 2010, hafa ef til vill ekki gert ráð fyrir svo mörgum kosningum. Á sunnudag 6. október, munu þeir kjósa nýtt þing. Það verða aðrar af þrennum kosningum í haust. Nýlokið er fyrri umferð forseta- kosninga og fram undan er kjör í seinni umferð. Kosningaþreytu er farið að gæta í þessu eina lýðræðis- lega ríki Arabaheimsins. Kosningarnar hafa fallið í skugga síðari umferðar forseta- kosninga sem verða haldnar viku síðar. Í þeirri lokakeppni takast á tveir nýliðar: Kais Saied, lögfræð- ingur sem hefur viðurnefnið „vél- mennið“ vegna stífrar framkomu, og Nabil Karoui, sem er auðugur fjölmiðlamaður. Þingkosningarnar eru mikilvæg- ari en forsetakjör, þar sem dregið var úr völdum forsetans í nýrri stjórnarskrá sem samþykkt var í kjölfar byltingarinnar. Meira en 15.000 frambjóðendur keppa um 217 þingsæti. Líkt og víðar eru kjósendur þreyttir á ríkjandi öf lum og því eru óvenju- margir óháðir frambjóðendur. Fram undan eru næg verkefni fyrir nýtt þing þessa 11 milljón manna ríkis. Aðgerða er þörf gegn verulegri stöðnun í efnahagslífi. Þegar Túnisbúar komu Zein al- Abidine Ben Ali forseta og einræðis- herra frá, fengu þeir ríkisstjórn sem átti að skila landinu frelsi, lýðræði og byggja upp innviði og efnahag. Nú átta árum síðar hafa þeir frelsi og lýðræði, en betri efnahagur lætur á sér standa. Atvinnuleysi er um 15 prósent. Kjósendur eru þó ekki mjög áhugasamir. Kjörsókn í fyrstu umferð forsetakosninganna í sept- ember var einungis 45%. – ds Enn á ný er kosið í Túnis Fólki á bandarískum vinnumarkaði hefur fjölgað og fyrirtæki hafa verið viljugri til ráðninga og að kosta starfsþjálfun. NORDICPHOTOS/GETTY Kjósandi virðir fyrir sé langa framboðslista í höfuðborg Túnis í gær. Milljónir Túnisbúa kjósa til þings á sunnudag. NORDICPHOTOS/AFP 0 5 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 1 0 4 s _ P 1 0 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 F 3 -4 E A 0 2 3 F 3 -4 D 6 4 2 3 F 3 -4 C 2 8 2 3 F 3 -4 A E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 0 4 s _ 4 _ 1 0 _ 2 0 1 9 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.