Fréttablaðið - 05.10.2019, Page 18
AÐALFUNDUR
knattspyrnudeildar Fylkis
Miðvikudaginn 23. október 2019 kl. 20:00 er
boðað til aðalfundar knattspyrnudeildar Fylkis
í samkomusal Fylkishallar.
Dagskrá:
Hefðbundin aðalfundastörf samkvæmt lögum
félagsins
Önnur mál.
Stjórn knattspyrnudeildar Fylkis.
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.isHöldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · BVA Egilsstöðum
www.hekla.is/volkswagensalur
Volkswagen T-Roc
Ef þú vilt áberandi hönnun, möguleika á sérsniðnu útliti og gæði niður í minnstu smáatriði þá er T-Roc málið.
Með T-Roc gefst þér tækifæri til að prófa nýstárlegan sportjeppa sem vekur eftirtekt með öugu útliti.
Fæddur til að
skara framúr
Verð frá
4.390.000,-
5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
FÓTBOLTI „Stjórn ÍTF fundar reglu-
lega en við höfum ekki hist í sumar,
allur hópurinn sem slíkur. Við
ræðum ekkert fjármál einstakra
félaga en það er svo sem ekkert nýtt
að þetta er erfiður rekstur,“ segir
Haraldur Haraldsson, formaður
ÍTF, regnhlífarsamtaka félaga í efstu
tveimur deildum karla og kvenna,
og framkvæmdastjóri Víkings.
Þó að fótboltinn hafi verið flaut-
aður af þetta sumarið og flestir leik-
menn séu komnir í frí eru stjórnar-
menn og aðrir sjálfboðaliðar á fullu
að reyna að skrapa saman fyrir kom-
andi vertíð. Fyrirtækin í landinu eru
að gera sínar áætlanir og því er betra
að vera inni í þeim.
Haraldur segir að blikur séu á lofti
enda eru mörg fyrirtæki að draga
saman seglin eins og fréttaf lutn-
ingur undanfarnar vikur sannar.
„Það eru stór fyrirtæki í landinu
jafnvel að loka á samstarfssamninga
við félög. Það er verið að skera niður
mjög víða og ég óttast að það eigi
eftir að snerta félögin svolítið harka-
lega,“ segir Haraldur.
Séu ársreikningar nokkurra félaga
skoðaðir handahófskennt má sjá
að reksturinn stendur oft tæpt þar
sem hagnaður er eitt árið en tap það
næsta.
Breiðablik tapaði til dæmis 16
milljónum á síðasta ári en var með
900 þúsund króna hagnað árið þar
á undan. Alls greiddi félagið 255
milljónir og 745 þúsundum betur í
laun til þjálfara, leikmanna og yfir-
stjórnar. Fór launaliðurinn upp um
hartnær 26 milljónir milli ára.
ÍBV, sem féll úr efstu deild, tap-
aði 10 milljónum á síðasta ári. Þar
voru greiddar 80 milljónir í laun
og tengd gjöld. Skagamenn skiluðu
47 milljóna króna hagnaði. Líklega
má reikna með að salan á Arnóri
Sigurðssyni til CSKA Moskvu vegi
þar þungt. Tekjurnar voru 253 millj-
ónir en gjöldin voru 205 milljónir en
ÍA var í Inkasso-deildinni í fyrra. Þó
kemur fram að knattspyrnudeildin
skuldar um fimm milljónir.
Stjarnan segir í sínum ársreikn-
ingi að aðrar rekstrartekjur hafi
verið nálægt 300 milljónum en
knattspyrnudeildin hagnaðist um
13 milljónir í fyrra miðað við tíu
milljóna tap árið á undan. Laun og
tengd gjöld telja 223 milljónir.
Svona mætti trúlega lengi telja
séu ársreikningar allra félaga teknir
til skoðunar. Haraldur bendir á að
upphæðunum sem er safnað sé yfir-
leitt safnað af sjálfboðaliðum.
Haraldur segir að fjármál ein-
stakra félaga séu ekki rædd meðal
ÍTF, þau séu og verði trúlega alltaf
svolítið tabú. „Það er trúlega ein-
hvers staðar þannig að það sé ekki
verið að borga leikmönnum og
öðrum í kring á réttum tíma. Við í
Víkingi höfum verið í þeim sporum,
þó við séum í miklu betri málum í
dag, og ég held að öll félög hafi ein-
hvern tímann kynnst þeirri tilfinn-
ingu. Þetta hefur verið og verður
trúlega áfram alltaf erfiður rekstur,“
segir Haraldur.
Jón Rúnar Halldórsson, fyrrver-
andi formaður knattspyrnudeildar
FH, ritaði þannig í ársskýrslu félags-
ins: „Öllum sem koma að rekstri
íþróttadeilda hér á landi er ljóst að
það er ekki tekið út með sældinni
einni að standa í því og er rekstur
knattspyrnudeildar FH þar ekki
nein undantekning. Það hefur alltaf
verðið erfitt að reka fótboltafélag og
verður svo áfram.“
benediktboas@frettabladid.is
Peningalofti hleypt úr fótboltablöðru
Ársreikningar nokkurra félaga
Allar upphæðir eru í milljónum króna
Stjarnan
Tekjur: 325
Gjöld: 311
Hagnaður: 13
Laun knattspyrnudeildar: 223
Breiðablik
Tekjur: 322
Gjöld: 338
Tap: 16
Laun knattspyrnudeildar: 256
ÍBV
Tekjur: 152
Gjöld: 162
Tap: 10
Laun knattspyrnudeildar: 79
ÍA
Tekjur: 253
Gjöld: 205
Hagnaður: 47
Laun knattspyrnudeildar: 51
Valur
Tekjur: 360
Gjöld: 288
Hagnaður: 85
Laun knattspyrnudeildar: 188
Víkingur
Tekjur: 200
Gjöld: 198
Hagnaður: 0,7
Laun knattspyrnudeildar: 66
Fyrirtæki eru farin að
halda að sér höndum
þegar kemur að
styrktarsamningum við
íþróttafélög. Rekstur
knattspyrnudeilda er
erfiður sem fyrr, segir
formaður ÍTF, regn-
hlífarsamtaka félaga í
efstu tveimur deildum
karla og kvenna.
Samkvæmt ársreikningum félaga fá þau um 10-12 milljónir fyrir sjónvarpsréttinn. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Haraldur
Haraldsson,
formaður ÍTF.
0
5
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
F
3
-3
5
F
0
2
3
F
3
-3
4
B
4
2
3
F
3
-3
3
7
8
2
3
F
3
-3
2
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
0
4
s
_
4
_
1
0
_
2
0
1
9
C
M
Y
K