Fréttablaðið - 05.10.2019, Side 26

Fréttablaðið - 05.10.2019, Side 26
óljóst hvort við eigum tiltæka hug- myndafræði sem ræður við svona stórt verkefni. Ég hef sveiflast í því hvort við séum að fara inn í óöld og kaos. Það er alveg gild skoðun og freistandi að skrifa napra bók um að allt sé að fara til andskotans. Ég hef lesið margar slíkar bækur.“ Um að þetta sé vonlaust? „Já, og líka bækur þar sem því er haldið fram að öll okkar lífsgæði og réttindi séu til komin vegna olíu sem auðveldi okkur lífið og hafi skapað ákveðna blekkingu á síð- ustu 200 árum, að við séum dæmd til að klára olíuna og steikja nátt- úruna um leið. En ég vil leyfa mér að trúa því að þegar heil kynslóð ungmenna er komin með hugsjón og sér að hlutir verða að breytast og er komin með fyrirmyndir um það hvernig á að breyta því, þá muni hlutir breytast mjög hratt. En við sjáum vissulega tregðu sem er orðin glæpsamleg, eins og þann áróður sem hefur verið kostaður af hagsmunaaðilum. Hann er orðinn eins konar stríðsglæpur. Glæpur gegn mannkyninu og jörðinni í heild sinni. Jú, jú, það var lítil ísöld og Vatna- jökull var miklu minni á landnáms- öld og náttúran hefur tekið miklum breytingum og þar hafa orðið sveifl- ur. En þegar eðlisfræðin er skoðuð þá er staðreynd að CO2 fangar hita og meira CO2 fangar meiri hita. Það er jafn ljóst og að áfengi veldur ölvun og meira áfengi veldur meiri ölvun. Það eru ótal dæmi um ölvað fólk sem segist geta ekið eftir sex bjóra, en það er bara rugl. Þessir hópar sem afneita loftslagsvísind- um reyna meðvitað að rugla okkur í ríminu og búa til hugmyndir um að málið sé hlaðið efasemdum. Þeir eru að verja gríðarlega fjárhagslega hagsmuni en tjónið sem þeir hafa valdið er nánast ómælanlegt. Við værum komin langt með að leysa vandann ef við hefðum byrjað fyrir 30 árum.“ Ekki jarðvegur fyrir vantraust Við höfum samt popúlísk öfl við völd víða um heim, eins og Trump og for- seta Brasilíu. Heldurðu að álíka öf l gætu náð áhrifum hér á landi? „Einhverjir daðra við það en ég er sannfærður um að það fái engan hljómgrunn því þessi popúlísku öfl eru byggð á fjarlægð við vísindin og vísindamenn. Ein mikilvægasta langtímarannsóknin á sýrustigi sjávar í heiminum kemur frá Jóni Ólafssyni haffræðingi og við eigum vísindamenn sem eru virtir um allan heim. Ef menn ætla að ata merka vísindamenn auri af þing- pöllum og vísa í YouTube-mynd- bönd, amerískar olíuhugveitur eða danska afneitunarsinna, þá segi ég bara: Guð hjálpi þeim! Við eigum frábæra vísindamenn í jökla- fræðum, jarðeðlisfræði og eldfjalla- fræðum og þeir standa allir nærri almenningi. Við eigum björgunar- sveitir og félög eins og Jöklarann- sóknafélagið þar sem sérfræðingar og almenningur vinna saman. Hér má vera gagnrýnin hugsun en hér er ekki jarðvegur fyrir vantraust.“ Þú hefur í mörg ár talað fyrir nátt- úruvernd og oft fengið á þig óvægna gagnrýni. „Ég tek það ekki mikið inn á mig. Ég hef kynnst svo mörgu góðu fólki gegnum þessa baráttu og hef sára- sjaldan lent í leiðinlegum aðstæð- um. Ég sé kannski eitthvað á netinu eða heyri utan að mér að einhverj- um sé illa við mig. Ég hef átt í deilum við stóriðjuna og er málkunnugur mörgum af þeim sem ég hef átt í orrahríð við. Ég kann vel við þetta fólk í viðkynningu, en ef mér finnst stigið yfir mörkin í sannleikanum þá andmæli ég. Það er þá frekar að málefnið sjálft angri mig. Mér þykir sárt þegar ómetanleg svæði eru eyðilögð og mér þykir leitt að það þurfi að eyða svona mikilli orku í að verja dýrmæta náttúru. Ég myndi ekki mála mig sem fórnarlamb eða píslarvott í þessum málum. Það getur vel verið að ég hafi misst af einhverjum tækifærum eða glatað einhverjum lesendum eða að það sé illt umtal einhvers staðar sem ég veit ekki af. Ég á ekk- ert annað líf til samanburðar. Það má segja að þetta hafi blossað upp þegar listamannalaunaumræðan var hér um árið. Þá voru einhverjir viljugir að taka mig niður. Það var áður en orðið falsfréttir var orðið til, en allar fréttirnar voru rangar. Þá var ég á kafi í þessari nýju bók en það var talað eins og ég væri ekki að gera neitt.“ Er okkur ekkert heilagt? Það virðist ríkja almennur skilning- ur á að við þurfum að vera hófsam- ari en við erum en svo koma skila- boðin: Yfirvofandi orkuskortur! Er það hræðsluáróður? „Í bókinni er ég viljandi að f lýja hina þrúgandi innri umræðu um orkumálin og reyna að sjá heiminn í stærra samhengi. Það er auðvitað hlægilegt, þegar Íslendingar eru stærsti raforkuframleiðandi í heimi, að hægt sé að birta fyrirsagnir um orkuskort. Hann á að ógna okkur svo að við eigum að titra og skjálfa vegna þess að það á hugsanlega að fara að taka eitthvað af okkur. Þarna er tekinn svo stór sveigur að manni finnst eiginlega ekkert ómögulegt þegar kemur að því að stilla fólki upp við vegg. Ég veit að f lestir for- stjórar orkufyrirtækjanna skrifa ekki undir þetta. Bitcoin er síðan annar kapítuli, þar er verið að brenna orku til að skapa sýndar- veruleika og eyða dýrmætum berg- vatnsám á Íslandi. Heilagleiki er nokkuð sem ég velti fyrir mér í þessari bók. Þar segi ég frá Helga Valtýssyni, sem var fædd- ur 1877 og eyddi nokkrum sumrum við rannsóknir á Kringilsárrana frá árinu 1939. Hvernig hann orðar upplifun sína á náttúrunni er eitt- hvert hlaðnasta líkingamál sem ég hef nokkru sinni rekist á í íslenskri bók. Hann talar um að hann hafi fundið „þagnarþrungna geimvídd Guðs“ uppi á Vesturöræfum. Þá fer ég að velta fyrir mér: Er okkur ekk- ert heilagt? Svæðið þar sem hann fann þennan helgidóm er horfið og við sjáum Amasonskógana brenna. Paradís brennur. Verðum við kannski að fara að tengja okkur inn í heilagleikann? Verð ég að tala um hagkvæmni og hagvöxt eða má ég segja að eitthvað sé heilagt? Höfum við hugsanlega tapað einhverri tengingu við raunveruleikann – og þá á ég við náttúruna? Öll þessi ímyndaða skynsemi og hagkvæmni er að ýta okkur fram af brúninni, nú þegar undirstöður lífsins virðast ætla að bresta.“ Talandi um heilagleika. Dalai Lama er persóna í þessari bók. Hvaða áhrif hafði það á þig að hitta Dalai Lama? „Það var auðvitað magnað. Við hittumst í tvígang og ræddum saman í næstum þrjár klukku- stundir samtals. Þetta var eins og að láta söguna sjálfa segja þér söguna. Þegar hann talaði um fundi sína með Maó sem síðar sveik hann þá fannst mér það nánast óraunveru- legt, þarna var drengurinn sem ég las um í bókinni Sjö ár í Tíbet að segja mér frá Maó. Það er lærdóms- ríkt að sjá hvernig hann bregst við mótlæti og hversu sterkum gildum friðsamlegrar baráttu hann heldur á lofti. Hann var rekinn í útlegð og þjóð hans og menning troðin niður. Hann talar ekki illa um Kínverja og er tilbúinn að afskrifa fortíðina og vísar þar réttilega til Evrópu, hún stæði í ljósum logum ef Evrópu- búar væru alltaf að velta sér upp úr seinni heimsstyrjöldinni. Menn gætu hefnt sín alveg endalaust. Við- tölin fóru víða og hann virðist geta skipst milli gleði og sorgar í sömu setningu. Ég gat spurt hann um lífið, dauðann, framtíðina og umhverfis- mál, jafnvel tilgang lífsins. Í viðtal- inu sem ég tók við hann talaði hann um að einn megintilgangurinn væri að gera gagn, en ekki bara það held- ur líka að verða öðrum að gagni.“ Þú trúir á það? „Ég myndi ekki neita því. Við höfum verið að ganga í gegnum langt tímabil þar sem einstakling- urinn á að setja sjálfan sig í fyrsta sæti. Að sumu leyti þvert á það sem fyrri kynslóðir gerðu þar sem það var dyggð að fórna sér fyrir aðra. Í dag er það jafnvel kallað meðvirkni en kannski er meiri sannleikur í því sem sú kynslóð var að gera.“ Sambandsleysi við tímann Bókin heitir Um tímann og vatnið og þú tengir lesandann mjög vel og skemmtilega við tímann, eins og þegar þú bendir á að það sé ein- ungis tuttugu og ein amma síðan Jesús fæddist. Þú lokar svo bókinni árið 2102 með barnabörnum dóttur þinnar, af hverju vildirðu gera það? „Sambandsleysi við tímann er grundvallargalli hjá okkur. Bæði tilfinning fyrir fortíð og djúp til- finning fyrir náinni framtíð. Þaðan kemur þessi hugarleikfimi mín. Ég tengi djúpt við afa mína og ömmur og spegla það fram í tímann. Það sem við gerum í dag hefur bein áhrif á afkomendur okkar. Miðað við það hvernig við tökum ákvarðanir og hvernig kerfi okkar eru uppbyggð erum við ekki að búa í haginn fyrir næstu kynslóðir. Við búum við sið- ferðilega kreppu og erum föst í kerfi sem erfitt er að slíta sig út úr en er ekki að fara nógu hratt í rétta átt. Næstu 30 ár snúast um miklar kerfisbreytingar.“ Þú heldur að það takist að koma þeim á? „Það væri fáránlegt að reyna það ekki. Út frá þeirri staðreynd að CO2 fangar hitann þá munar um allt. Jafnvel þótt við náum bara 10 pró- sent árangri þá munar um það. Við erum ekki lengur tengd við jörðina á náttúrulegan hátt. Ofur- kraftarnir sem olían færði okkur eru rosalegir og hafa blindað okkur. Við erum komin svo óralangt frá því sem mannkynið var fyrir 200 árum. Við þurfum að leita aftur í lífrænar aðferðir en um leið erum við sam- ofin tækninni og við þurfum að finna leiðir til að létta okkur lífið án þess að grafa undan komandi kyn- slóðum. Við héldum að næstu 30 ár myndu snúast um meiri sýndar- veruleika og gervigreind, en í raun- inni munu þau snúast um mat, orku, samgöngur, votlendi, breytta neyslu og byggingartækni. Næstu áratugir munu snúast um hinn áþreifanlega veruleika, lofthjúpinn og hafið. Á meðan vísindamenn telja að við getum haft einhver áhrif þá ber okkur öllum skylda til að gera okkar besta.“ EF MENN ÆTLA AÐ ATA MERKA VÍSINDAMENN AURI AF ÞINGPÖLLUM OG VÍSA Í YOUTUBE-MYND- BÖND, AMERÍSKAR OLÍU- HUGVEITUR EÐA DANSKA AFNEITUNARSINNA ÞÁ SEGI ÉG BARA: GUÐ HJÁLPI ÞEIM! VIÐ HÉLDUM AÐ NÆSTU 30 ÁR MYNDU SNÚAST UM MEIRI SÝNDARVERU- LEIKA OG GERVIGREIND, EN Í RAUNINNI MUNU ÞAU SNÚAST UM MAT, ORKU, SAMGÖNGUR, VOTLENDI, BREYTTA NEYSLU OG BYGGINGARTÆKNI. Andri Snær segir að það hafi verið næstum óraunverulegt að hlusta á Dalai Lama tala um kynni sín og Maós formanns. MYND/ ARNAR ÞÓRISSON 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 5 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 1 0 4 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 F 3 -6 C 4 0 2 3 F 3 -6 B 0 4 2 3 F 3 -6 9 C 8 2 3 F 3 -6 8 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 0 4 s _ 4 _ 1 0 _ 2 0 1 9 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.