Fréttablaðið - 05.10.2019, Side 28

Fréttablaðið - 05.10.2019, Side 28
Kynferðisofbeldi 1. hluti af 5 „Á vormánuðum 2017 kærði dóttir mín mjög alvarlegt kynferðis­ of beldi til lögreglu. Maður sem hún þekkti lítillega beitti hana blekk­ ingum og þóttist vera annar maður. Hann braut á henni kynferðislega ítrekað og með alvarlegum hætti. Málið var f lókið og tók fjóra mán­ uði í rannsókn. Í upphafi leitaði dóttir mín í Bjarkarhlíð. Þar fékk hún hlýlegar móttökur frá fagfólki og þaðan var máli hennar komið í farveg til lög­ reglu. Bjarkarhlíð er góður staður fyrir þolendur að leita til. En það sem tók við hjá lögreglu er ámælisvert að mínu mati. Ég myndi lýsa ferlinu sem kerfis­ villu því það er stórgallað ferli frá upphafi til enda. Það er tekin skýrsla af þolanda ítrekað. Þolendur þurfa að endur­ taka frásögn sína aftur og aftur. Hún var send í sálfræðimat og niðurstaðan var að hún væri skýr og f lott ung kona með engan undir­ liggjandi vanda. Í skýrslunni var sérstaklega tekið fram í niðurstöð­ um að eftir þetta hrottalega of beldi þyrfti hún sértæka áfallameðferð. Réttargæslumaður og lögregla sem fengu skýrsluna í hendur sáu hins vegar enga ástæðu til að nefna við hana niðurstöðuna og brýna þörf á áfallameðferð eða hvar hana væri að finna. Það var gert ráð fyrir að dóttir mín myndi lesa skýrsluna og með­ taka efni hennar og síðan finna út úr því sjálf hvar og hvernig hún gæti sótt sér slíka aðstoð. Hún var í engu ástandi til þess og á þessum tímapunkti sá ég að ég þyrfti að taka málin í mínar hendur og gæta hennar enn betur en ég hafði gert í þessu ferli. Ég sá að enginn þol­ andi getur gengið einn í gegnum þetta ferli hjá lögreglu. Það þarf ástvini og sterkt bakland. Það eiga því miður ekki allir, og sú hugsun leitaði á mig á meðan ég studdi við dóttur mína. Rannsóknarlögreglan sem stýrði málinu kom fram við dóttur mína af slíkum ruddaskap. Hún sagði við hana ískalt og án samúðar að leita sér hjálpar. Og varpaði á hana skömminni og sagði málið hafa haft slæm áhrif á þann sem hún kærði upphaflega. Ég kvartaði yfir henni við þáverandi yfirmann kynferðis­ brotadeildar. Yfirmaður hennar sagðist ekki geta farið fram á að hún bæðist afsökunar heldur þyrfti hún að finna það hjá sjálfri sér vildi hún gera það. Ég velti því fyrir mér hvort það sé Dóttir mín var bara málsnúmer Móðir ungrar konu sem kærði alvarlegt kynferðisofbeldi til lögreglu vill viðhorfs- breytingu og breytt verklag. Hún skrifar opið bréf til dómsmálaráðherra um reynslu sína af því að standa við hlið dóttur sinnar. Mæðgurnar vilja báðar viðhorfsbreytingu og breytt verklag innan lögreglunnar. Tafir á málinu, erfið samskipti og viðmót jók á mikla vanlíðan og áfallastreitu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Mó ð i r u n g r a r konu sem kærði alvarlegt kyn­ferðisbrot t i l lög reglu f y rir tveimur árum segir ferlið hafa reynst dóttur sinni erfið þrautaganga. Það sem var henni hvað erfiðast varðar rann­ sókn málsins og viðtökur hjá lög­ reglu. Gerandinn var dæmdur í fjög­ urra ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í vor, kynferðisbrot hans voru í dómsorði sögð alvarleg og áhrif þeirra á ungu konuna djúp­ stæð. Þrátt fyrir alvarleika brotanna upplifði unga konan að sögn móð­ urinnar að henni væri ekki trúað. Hún var látin endurtaka vitnisburð sinn ítrekað og þurfti að undir­ gangast sálfræðimat. Þegar málið var loks sent héraðs­ saksóknara hafi það svo verið sent aftur til lögreglu vegna vankanta á rannsókninni. Það vantaði að yfir­ heyra tvö vitni. Lögregla hafi þá tekið sér fjóra mánuði í að lagfæra þessi atriði áður en málið var aftur sent héraðssaksóknara. „Hjá lögreglu var dóttir mín kennitala á blaði með málsnúmer, ekki eins og hún væri í raun og veru af holdi og blóði og hefði tilfinn­ ingar. Hún var að upplifa verstu martröð lífs síns,“ segir móðirin sem skrifar opið bréf til dómsmála­ ráðherra. Bréf frá móður Í spennitreyju réttargæslukerfisins Auðkennaþjófnaður, nauðgun og fleiri alvarleg kynferðisbrot Í vor hlaut 26 ára karlmaður fjögurra ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að hafa villt á sér heimildir og fengið unga konu til kynmaka. Maðurinn fékk hana til að koma á hótelher- bergi með bundið fyrir augun þar sem hann síðan nauðgaði henni og kúgaði hana til kynmaka með öðrum mönnum. Blekkingar mannsins voru úthugsaðar. Hann stofnaði Snap chat-reikning þar sem hann þóttist vera annar ungur maður sem hún þekkti. Hann átti í samskiptum við hana í 20 mánuði undir fölsku flaggi. Konan kærði manninn sem hún taldi hafa brotið á sér fyrir nauðgun til lögreglu árið 2017. Við rannsókn málsins hjá lögreglu kom svo auðkenna- þjófnaðurinn í ljós og hver hinn sanni gerandi var. Höfðað var sakamál vegna nauðgunar og kynferðisbrota en ekki var hægt að höfða mál vegna unga mannsins sem var ranglega sakaður um nauðgun og kúgun. Engin ákvæði eru til sem gera auðkennaþjófnað refsi- verðan hér á landi. 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 5 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 1 0 4 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 F 3 -5 8 8 0 2 3 F 3 -5 7 4 4 2 3 F 3 -5 6 0 8 2 3 F 3 -5 4 C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 0 4 s _ 4 _ 1 0 _ 2 0 1 9 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.