Fréttablaðið - 05.10.2019, Blaðsíða 38
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Cheick vill gjarnan miðla afrískri menningu til Íslendinga. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ég kom upphaflega til Íslands árið 1998 fyrir tilstilli íslenskrar konu, Sigrúnar
Grendal, sem kom til að læra dans
í dansskóla föður míns í Gíneu í
Vestur-Afríku. Í kjölfarið spurði
hún hvort ég vildi koma til Íslands
í þrjá mánuði til að spila afró og ég
sló til og er hér enn,“ segir Cheick
Ahmed Tidiane Bangoura sem nú
hefur búið á Íslandi í 21 ár og talar
reiprennandi íslensku.
„Ég talaði eingöngu frönsku
þegar ég kom fyrst til Íslands. Ég
hafði aldrei heyrt neitt um Ísland
og var forvitinn að kynnast því en
viðurkenni að fyrsta árið var mér
erfitt vegna tungumálaörðugleika
og auðvitað er mun kaldara hér
en í Gíneu. Ég dreif mig því í skóla
til að læra bæði íslensku og ensku
og fékk mér vinnu á leikskóla
þar sem ég vann í fimm ár. Það
reyndist vera langbesti skólinn,
ég náði góðu valdi á málinu með
því að eiga dagleg samskipti við
krakkana og kynntist íslenskri
menningu smám saman. Mér
fannst óskaplega gaman að vinna
með börnunum og kenndi þeim
að dansa afródansa og spila á
trommur,“ segir Cheick sem þessa
dagana fer með hljómsveit sinni
Bangoura Band á milli leikskóla,
grunnskóla og elliheimila til að
flytja afríska tónlist og afródansa.
„Undirtektirnar eru frábærar
og við njótum heimsóknanna í
botn. Við heimsóttum tvö elli-
heimili í fyrra en höfum á þessu
ári heimsótt sex og gamla fólkið
er afar ánægt með að fá okkur til
sín, syngur með okkur, dillar sér
og dansar. Afríski menningar-
arfurinn er lifandi og veitir gleði
í hjörtun og börnin taka líka
undir og dansa með. Þau verða
Allir geta gleymt
sér í afrískri gleði
Gíneumaðurinn Cheick Ahmed Tidiane Bangoura
skemmtir þessa dagana íslenskum börnum og eldri
borgurum með afrískum trumbuslætti, söng og dansi.
Hann er líka forsprakki afrísku menningarhátíðarinnar
Far Fest Afríka sem fagnaði tíu ára afmæli í vikunni.
Cheick segir börn vera einkar spennt fyrir því að leika á djembe-trommur.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Nánari upplýsingar um blaðið veitir
Arnar Magnússon
Sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins, arnarm@frettabladid.is Sími: 550-5652
JÓLAHLAÐBORÐ
Veglegt sérblað Fréttablaðsins
um jólahlaðborð kemur út laugardaginn 12. október
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
12. október
yfir sig spennt þegar við mætum
með allar trommurnar, sem þau
kalla bongótrommur, en heita í
raun djembe-trommur,“ útskýrir
Cheick.
Hrifinn af íslensku hangikjöti
Hópur Gíneumanna á Íslandi telur
fimmtán manns. Þar af er helm-
ingurinn úr gíneskri fjölskyldu
Cheicks.
„Hinn helmingurinn telur bestu
vini mína frá Gíneu, menn sem ég
hef trommað með í gegnum tíðina
og hafa trommað í dansskólanum
hans pabba. Við þekkjumst öll
vel og hittumst oft, eldum góðan,
gíneskan mat og spjöllum saman.
Allir eiga sínar fjölskyldur hér á
Íslandi og una hag sínum vel,“ segir
Cheick sem á íslenska konu og með
henni barn, en hjá þeim býr líka
sonur Cheicks sem hann átti með
afrískri barnsmóður sinni.
„Ég fer utan til Gíneu ár hvert
í janúar og hitti fjölskylduna
mína þar. Oft tek ég íslensku
fjölskylduna mína með en þegar
ég fer einn utan sakna ég hennar
óendanlega, sem og íslenskra vina
minna sem ég hef eignast hér og
tónlistarmannanna sem ég spila
með hér heima. Ég sakna þó ekki
kuldans en alltaf íslenska vatns-
ins og matarins sem mér finnst
gómsætur og þar er hangikjöt í
uppáhaldi,“ segir Cheick sem ætlar
að elda gíneskan mat fyrir gesti
sína í kvöld.
„Þegar Gíneubúar koma saman á
laugardagskvöldi elda þeir gjarnan
fiskrétti eða kjöt með kartöflum,
tómötum og vel krydduðum og
sterkum sósum. Afrískur matur
er ljúffengur og á Menningarnótt
hafa afrískar þjóðir frá Gana,
Kenýa og Gíneu eldað vinsæla
rétti frá sínu heimalandi og gefið
gestum og gangandi að smakka,
sem hefur hlotið góðar undir-
tektir. Fyrir þá sem vilja spreyta
sig í afríska eldhúsinu mæli ég með
afrísku búðinni í Hólagarði í Efra-
Breiðholti þangað sem ég fer oft til
að ná mér í afríska matvöru, sósur
og krydd.“
Heillandi menningararfur
Kominn er áratugur síðar Cheick
ákvað að setja á fót afrísku menn-
ingarhátíðina Far Fest Afríka en
Á milli Íslands og
Afríku er sterkur
vinastrengur og við
eigum eitt og annað
sameiginlegt.
hún fór einmitt fram á fimmtudag-
inn og í gærkvöldi þegar íslenskir
og afrískir tónlistarmenn stigu
á svið í Iðnó og trylltu gesti með
trumbuslætti, afrískum fönkáhrif-
um, djassi og dansi.
„Mig langaði einfaldlega að gefa
til baka og vekja athygli Íslendinga
á afrískri tónlist og listum. Á
milli Íslands og Afríku er sterkur
vinastrengur og við eigum eitt
og annað sameiginlegt eins og
brennandi áhuga á tónlist, dansi
og hljóðfæraslætti. Á hverju ári fer
hópur Íslendinga til Gíneu að læra
dans og trommuslátt og hátíðin
hefur vaxið frá ári til árs. Við
erum þakklát Reykjavíkurborg
sem hefur styrkt hátíðina og erum
strax farin að undirbúa Far Fest
Afríka að ári þar sem við stefnum
að því að fá gesti úr afrísku tón-
listarsenunni og hafa mismunandi
matarþemadaga frá hinum ýmsu
Afríkulöndum. Það þarf svo
enginn að kunna afríska dansa eða
söngva til að njóta afrískrar gleði
og allir geta komið og gleymt sér í
hamingju með okkur.“
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
0
5
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:1
2
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
F
3
-A
2
9
0
2
3
F
3
-A
1
5
4
2
3
F
3
-A
0
1
8
2
3
F
3
-9
E
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
0
4
s
_
4
_
1
0
_
2
0
1
9
C
M
Y
K