Fréttablaðið - 05.10.2019, Page 46

Fréttablaðið - 05.10.2019, Page 46
Leitum að öflugum liðsmanni á Húsavík Verkís óskar eftir að ráða starfsmann á starfsstöð fyrirtækisins á Húsavík. Menntunar- og hæfniskröfur • Verkfræðingur, tæknifræðingur eða byggingafræðingur • Reynsla af hönnun • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum • Góðir samskipta- og skipulagshæfileikar • Öflugur liðsmaður í verkefnaöflun Nánari upplýsingar veita Ragnar Bjarnason, útibússtjóri, rab@verkis.is Elín Greta Stefánsdóttir, mannauðsstjóri, egs@verkis.is Verkís er öflugt og framsækið ráðgja far- fyrirtæki sem býður fyrsta flokks þjónustu á öllum sviðum verkfræði. Hjá Verkís starfa yfir 300 manns að fjöl breyttum og krefjandi verkefnum á Íslandi og erlendis. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um að ráðningarvef Verkís (umsokn. verkis.is). Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum um sóknum verður svarað. Við hvetjum jafnt konur sem karla til að sækja um. Umsóknarfrestur er til og með 14. október 2019. Vilt þú taka þátt í að móta og þróa sálfræðiþjónustu fyrir börn og unglinga? Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir laust til umsóknar nýtt starf verkefnastjóra sálfræðiþjónustu barna og unglinga. Þetta er spennandi starf sem reynir á frumkvæði, skipulags- og samskiptahæfni. Ráðið verður í starfið sem fyrst eða eftir frekara samkomulagi. Umsóknarfrestur er til 7. október n.k. Frekari upplýsingar veita: Agnes Agnarsdóttir - fagstjóri sálfræðinga agnes.agnarsdóttir@heilsugaeslan.is - s. 513-5000 Sigríður D. Magnúsdóttir - framkvæmdastjóri lækninga sigridur.d.magnusdottir@heilsugaeslan.is - s. 513-5000 Sjá nánar á www.heilsugaeslan.is undir laus störf og www.starfatorg.is Nýtt fólk Tilkynningar um nýtt fólk Atvinnublað Fréttablaðsins kemur út á laugardögum í viku hverri. Umsjónarmaður blaðsins er Hrannar Helgason. Blaðið birtir valdar greinar um ráðningu nýrra starfsmanna. Sendið til- kynningar ásamt mynd af viðkomandi á netfangið: nyttfolk@frettabladid.is Nýr framkvæmdastjóri FKA Ósk yfir markaðsmálum Póstsins Jón Þorsteinn til Ölgerðarinnar Andrea Róbertsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu. Hún mun taka við starfinu um miðjan þennan mánuð af Hrafnhildi Hafsteinsdóttur sem hefur verið ráðin markaðs- og gæðastjóri Hjallastefnunnar. Andrea er með MS-gráðu frá viðskipta- og hag- fræðideild Háskóla Íslands í mann- auðsstjórnun, BA-gráðu í félags- og kynja- fræði og MA-diplómu í jákvæðri sálfræði. Síðustu ár hefur hún starfað sem framkvæmdastjóri og forstöðumaður hjá Tali og Kaffitári en einnig sem mannauðsstjóri RÚV. Þá starfaði Andrea einnig sem verkefnastjóri hjá Hjalla- stefnunni um tíma og sem ráðgjafi á sviði stjórnunar með fókus á breytingastjórnun, heilsueflingu og græn mál fyrirtækja og stofnana. Þá hefur hún annast fjölmiðla- tengsl, almanna- og kynningarmál. Ósk Heiða Sveinsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður markaðsdeildar Íslands- pósts og hefur hún þegar hafið störf. Ósk hefur mikla reynslu á sviði markaðsmála og bakgrunn úr upplýsingatækni, smásölu og ferðaþjónustu. Hún starfaði síðast sem markaðsstjóri Trackwell, þar á undan var hún markaðsstjóri Krónunnar og Íslandshótela. Hún er með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði frá Háskóla Íslands. Ósk Heiða er gift Magnúsi Frey Smára- syni, rafmagnsverkfræðingi hjá Eflu, og eiga þau tvö börn. Ölgerðin Egill Skalla-grímsson hefur ráðið Jón Þorstein Oddleifsson sem framkvæmdastjóra fjármála- og mannauðssviðs fyrirtækisins. Jón Þorsteinn er stúdent frá Menntaskól- anum á Laugarvatni og hagfræðingur með framhaldspróf í fjármálum fyrirtækja frá Háskóla Íslands. Hann hefur reynslu af fjármálamarkaði en síðustu ár hefur hann sinnt viðskiptaþróun hjá Lands- bréfum sem er sjóðastýringarfyrirtæki Landsbankans. Á árunum 2008-2010 var Jón Þorsteinn fjármálastjóri nýja Landsbankans og þar áður var hann forstöðumaður fjárstýringar Landsbankans. Hann hefur einnig sinnt fjár- málaráðgjöf til fyrirtækja og stofnana sem sjálfstæður ráð- gjafi. Jón Þorsteinn er kvæntur Helgu Margréti Pálsdóttur matvælafræðingi og eiga þau fjóra syni. Finnur Pálmi Magnússon hefur verið ráðinn til starfa sem vörustjóri svefnrannsóknafyrirtækisins Nox Medical. Helstu verkefni hans munu snúa að nýsköpun og þróun á nýrri þjónustu. Finnur hefur undanfarin sex ár starfað hjá Meniga, nú síðast sem fram- kvæmdastjóri vöruþróunar. Undir hans handleiðslu byggði Meniga upp teymi sem vinnur þvert á fyrirtækið með áherslu á hönnunarhugsun, notendaupplifun og nýsköp- un. Hjá Meniga vann teymi Finns til fjölmargra verðlauna og náði góðum árangri með vörur sínar. Þessa dagana er Finnur að rannsaka áhrif svefnskorts á nýbakaðra for- eldra. Þá sérstaklega sinn eigin þar sem hann býr í Kópa- vogi með Heiðu Harðardóttur, Sögu og nýfæddum dreng. Finnur til Nox Medical 8 ATVINNUAUGLÝSINGAR 5 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R 0 5 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 1 0 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 F 3 -9 8 B 0 2 3 F 3 -9 7 7 4 2 3 F 3 -9 6 3 8 2 3 F 3 -9 4 F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 0 4 s _ 4 _ 1 0 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.