Fréttablaðið - 05.10.2019, Síða 80
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Bryndís Kristjánsdóttir
frá Nesi í Fnjóskadal,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
þann 12. september.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu
þriðjudaginn 8. október kl. 15.00.
Karl Jónsson Katrín V. Karlsdóttir
Indriði Jónsson Valgerður Anna Þórisdóttir
Þórólfur Jónsson Hulda Rósarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Dóra Jakobsdóttir
Guðjohnsen
grasafræðingur,
lést 28. september sl.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
föstudaginn 11. október klukkan 15.00.
Kolbrún Bergþórsdóttir
Brynhildur Bergþórsdóttir
Ásdís Bergþórsdóttir
Anna Bergþórsdóttir Christopher Nandrea
Auður Ákadóttir Sigursteinn J. Gunnarsson
Ólafur Ásdísarson
Brynja og Vaka Björg
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Ingibjörg Stefanía Eiðsdóttir
Þorsteinsgötu 17,
Borgarnesi,
lést á Landspítalanum 29. september.
Útförin fer fram frá Borgarneskirkju
miðvikudaginn 9. október, klukkan 14.00.
Guðmundur Ingimundarson
Margrét Helga Guðmundsdóttir Jóhannes Ellertsson
Pálmi Guðmundsson Elín Magnúsdóttir
ömmu- og langömmubörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum
sem sýnu okkur samúð og vináttu
vegna andláts eiginkonu minnar,
móður, tengdamóður, dóttur,
tengdadóttur og ömmu,
Helgu Þóreyjar Sverrisdóttur
Lyngholti 5, Hauganesi.
Sverrir E. Torfason
Dagný Davíðsdóttir Karl Þorkelsson
Auðbjörg María Kristinsd. Fannar Hafsteinsson
Hildur Ýr Kristinsdóttir
Konráð Már Sverrisson Helga María Ólafsdóttir
Torfi Brynjar Sverrisson Ester Hafdís Ásbjörnsdóttir
María Aldís Sverrisdóttir Birkir Örn Stefánsson
foreldrar, tengdaforeldrar og ömmubörn.
Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi,
Viðar Á. Benediktsson
bílstjóri,
Engihjalla 19 (áður Löngubrekku 7),
lést að heimili sínu
27. september síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju
föstudaginn 11. október kl. 11.00.
Ástvinir.
Bróðir minn og frændi,
Hjörtur Hjartarson
lést í Svíþjóð.
Útför hans hefur farið fram í kyrrþey.
Fyrir hönd fjölskyldu og vina,
Elfar Úlfarsson
Bolli Eyþórsson
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Sigurður Bjarni Jónsson
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Ástkær eiginkona mín og móðir,
Hrönn Garðarsdóttir
heimilislæknir,
lést á Landspítalanum 24. september
sl. Útför hennar fer fram frá
Vídalínskirkju, mánudaginn 7. október
kl. 13.00. Minningarathöfn verður haldin í
Egilsstaðakirkju fimmtudaginn 10. október kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast Hrannar er bent á að hafa
samband við Rebekkustúku nr. 15, Björk á Egilsstöðum.
Fyrir hönd aðstandenda,
Páll Rúnarsson
Garðar Páll Pálsson
Hveragerðiskirkja mun óma af söng hátt í fjöru-tíu karlaradda upp úr klukkan fjögur í dag. Þá eru hausttónleikar Karlakórs Hveragerðis
sem var stofnaður þennan mánaðar-
dag fyrir þremur árum. Þetta eru því
afmælistónleikar og einnig upptaktur
að söngferð sem kórinn heldur í til Ítalíu
von bráðar. Meira um það síðar.
Ekkert verður til sparað í dag til að
gera hausttónleikana sem glæsilegasta.
Einsöng með kórnum syngur Arnar Gísli
Sæmundsson og sérstakir heiðursgestir
verða söngvararnir Ólafur M. Magnús-
son, Jón Magnús Jónsson og Ásdís Rún
Ólafsdóttir. Undirleikari með þeim
verður Arnhildur Valgarðsdóttir. Einn-
ig mun hljómsveit koma fram á tón-
leikunum, hana skipa Unnur Birna
Björnsdóttir, Sigurgeir Skafti Flosason,
Rögnvaldur Pálmason og Örlygur Atli
Guðmundsson. Sá síðastnefndi er líka
undirleikari kórsins og stjórnandi, svo
hann verður í stóru hlutverki.
En hvernig er lagavalið? Því svarar
einn af kórfélögunum, sjónvarps-
maðurinn góðkunni Magnús Hlynur
Hreiðarsson. „Ég get alveg lofað því að
lagavalið er létt og skemmtilegt,“ segir
hann sannfærandi.
Nú eru semsagt þrjú ár að baki í starf-
semi Karlakórs Hveragerðis og Magnús
Hlynur segir þátttöku í honum hafa
farið fram úr björtustu vonum. „Að
jafnaði syngja á milli 35 og 40 karlar
á öllum aldri með kórnum. Starfsemi
þessa hausts er hafin á fullu enda mikið
stuð fram undan því eftir tónleikana
heldur kórinn í söngferðalag til Suður-
Týról á Ítalíu þar sem tónleikar verða
haldnir. Kórfélagar og makar þeirra ætla
að skemmta sér saman í vikutíma og
skoða allt það helsta á svæðinu.
Miðaverð á hausttónleikana er 2.500
krónur en frítt fyrir 12 ára og yngri.
gun@frettabladid.is
Kórsöngur í Suður-Týról
Hausttónleikar Karlakórs Hveragerðis í dag eru í senn afmælisfagnaður og lokaæfing
fyrir söngferðalag sem fram undan er til sjálfstjórnarhéraðsins Suður-Týról á Ítalíu.
Þessi mynd af Karlakór Hveragerðis var tekin á æfingadegi kórsins í Garðyrkjuskólanum í vor.
Þennan dag árið 1989 hlaut Dalai Lama
friðarverðlaun Nóbels. Dalai Lama
voru valdamestu stjórnmálaleiðtogar
Tíbet frá því á sautjándu öld fram
til ársins 1951 er Kínverjar hertóku
Tíbet. Dalai Lama er heitið sem einn
aðalleiðtogi lamasiðar, helstu gerðar
búddisma í Tíbet, ber. Núverandi
Dalai Lama heitir í raun Tenzin Gyatso.
Hann fæddist 6. júlí 1935 og er sagður
fjórtánda endurholdgun Dalai Lama,
andlegs leiðtoga Tíbeta. Hann hefur
verið í útlegð frá heimalandi sínu frá
árinu 1959 og hefur verið búsettur
á Indlandi síðan hann flúði þangað
sama ár. Friðarverðlaun Nóbels hlaut
hann fyrir að stuðla að friðsamlegri
baráttu Tíbeta gegn hernámi Kína á
landi þeirra, en Dalai Lama hefur ávallt
neitað að beita ofbeldi í baráttunni
fyrir bættum hag landa sinna og
frelsun Tíbet.
Þ E T TA G E R Ð I S T: 5 . O K T Ó B E R 19 8 9
Dalai Lama hlýtur Nóbelsverðlaun
Ég get alveg lofað því að laga-
valið er létt og skemmtilegt.
5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R40 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
0
5
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
F
3
-7
1
3
0
2
3
F
3
-6
F
F
4
2
3
F
3
-6
E
B
8
2
3
F
3
-6
D
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
0
4
s
_
4
_
1
0
_
2
0
1
9
C
M
Y
K