Fréttablaðið - 05.10.2019, Síða 97
ÞARNA ÁTTI ÉG EKKI
AÐ VERA NAKIN EN ÉG
FÓR AÐ BERJAST FYRIR AÐ FÁ
AÐ VERA ÞAÐ. SMÁ SKRÝTIÐ.
Vala Kristín Eiríksdóttir
Styrkir úr Lýðheilsusjóði 2020
Lýðheilsusjóður óskar eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til
heilsueflingar og forvarna.
Áhersla er lögð á eftirfarandi:
Aðgerðir sem miða að því að efla geðheilsu.
Verkefni sem tengjast geðrækt barna.
Heilsuefling eldra fólks.
Nýsköpun í heilsueflingu.
Rafrettunotkun ungmenna.
Aðgerðir sem miða að heilbrigðu mataræði, svefni og hreyfingu.
Áfengis-, vímu- og tóbaksvarnir.
Verkefni sem tengjast kynheilbrigði.
Verkefni sem beinast að minnihlutahópum til að stuðla að jöfnuði til heilsu,
eða verkefni sem eru til þess fallin að stuðla að auknu jafnrétti kynjanna í
tengslum við heilsu
Við úthlutun verður tekið mið af eftirfarandi stefnum:
Lýðheilsustefnu og aðgerðum sem stuðla að heilsueflandi samfélagi.
Stefnu í áfengis- og vímuvörnum til 2020.
Stefnu og aðgerðaráætlun í geðheilbrigðismálum til 2020.
Verkefni sem uppfylla eftirtalin skilyrði hafa forgang:
Sem unnin eru í víðtæku samstarfi hagsmunaaðila.
Eru með eigin fjármögnun eða aðra fjármögnun.
Verkefnin eiga að byggja á faglegum grunni og hafa raunhæf og skýr markmið. Gera
þarf grein fyrir því hvernig árangur verkefnis verður metinn og skal skila
framvinduskýrslu að verkefni loknu.
Opnað verður fyrir umsóknir þann 7. október en frestur til að sækja um rennur út
þann 4. nóvember 2019. Sótt er um á vefsvæði Lýðheilsusjóðs
http://lydheilsusjodur.sidan.is/pages/
Nánari upplýsingar í síma 510 1900 eða á vef embættis landlæknis.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum vefsvæði sjóðsins.
Embætti landlæknis – Rauðarárstígur 10 - 105 Reykjavík - Sími 510 1900 - lydheilsusjodur@landlaeknir.is - www.landlaeknir.is
Flísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Finndu okkur
á facebook
30%
afsláttur
á Heliosa hiturum
HELIOSA hitarar henta bæði
innan- og utandyra.
Helstu kostir HELIOSA hitara
eru:
• Hitna strax
• Með fjarstýringu
• Vatnsheldir og menga ekki
Flísabúðin
30
ÁRA
2018
Margar gerðir til á lager.
Hvítir og svartir.
Sparaðu allt að 50-70%!
info@fedaszdental.huHafðu samband:
+ 36 70 942 9573 www.tannlaeknathjonusta.is
Fyrir
Eftir
Tannlækningar í Ungverjalandi
sem gengur og gerist,“ segir Vala og
Fannar samsinnir því.
Eru byrjuð á þriðju seríu
„Þegar við byrjuðum að gera seinni
seríuna þá var sögusviðið náttúru-
lega tilbúið. Þannig að þetta snerist
meira um að láta söguna halda
áfram. Við vorum líka komin með
aðeins meiri reynslu í því að skrifa
þannig að við vorum meira hvert í
sínu horninu en í fyrri seríunni, en
hittumst auðvitað reglulega. Það
gekk mjög vel,“ segir Fannar.
„Við spinnum ekki á settinu en
við spinnum með kjaftinum þegar
við erum að skrifa, ef það má kom-
ast þannig að orði,“ bætir Vala við.
Margir skemmtilegir aukaleik-
arar voru í fyrri seríunni, og sú
seinni gefur henni ekkert eftir í
þeim málum.
„Jóhannes Haukur leikur í nýj-
ustu, Aron Mola, Björn Stefánsson
og Hildur Vala sem var að taka við
hlutverki Ronju í Þjóðleikhúsinu,“
segir Fannar.
Vala heldur áfram að telja upp
aukaleikarana. „Gunnar Hansson
og Sigurður Þór, en hann var líka í
fyrstu seríu.“
„Í fyrstu seríunni voru þetta alls
sjötíu hlutverk, núna er þetta að
slaga upp í það sama, um sextíu
hlutverk,“ segir Fannar.
Vala hnippir í Fannar og muldrar
eitthvað í hljóðum.
„Já, já,“ svarar Fannar.
„Við erum sem sagt byrjuð að
skrifa þriðju seríu. Ég held það þurfi
ekkert að vera leyndarmál,“ bætir
hann við.
„Ég hugsaði, þegar við skiluðum
af okkur þessari seríu, að núna vissi
ég miklu betur hvað mig langaði að
láta gerast í þeirri þriðju. Eftir fyrstu
seríu var svo miklu meiri óvissa. Þá
skilaði maður af sér og vonaði inni-
lega að fólki þætti þetta skemmti-
legt, en hugsaði ekki endilega mikið
lengra en það. Maður var bara glað-
ur yfir að hafa fengið að gera þetta.
Maður gerði ekki endilega ráð fyrir
að það kæmi svo önnur sería,“ segir
Vala.
Ber að ofan á klósettinu
Þau segja tökurnar hafa gengið
frekar áfallalaust fyrir sig.
„Ég man bara eftir því þegar ég
var brjáluð yfir því að fá ekki að
vera allsber,“ segir Vala og heldur
áfram: „Á ég að segja frá því? Við
leggjum okkur fram við að reyna að
hafa þetta venjulegt og raunsætt og
reynum að sýna raunveruleikann
eins og hann er. Persónan sem ég
leik var í senu sem gerðist daginn
eftir eitthvert djamm og hún var
enn þá í samfestingi frá kvöldinu
áður. Svo kemur sena þar sem hún
situr á klósettinu. Ég hugsaði að
allar konur þekkja það að sitja eins
og lurkar á klósettinu, berar að
ofan. Við vorum ekki búin að hugsa
mikið út í þetta svo það var ekkert
tekið fram um það í handritinu.“
Ekkert hafði því verið rætt um
þetta við búningadeildina né aðrar
ráðstafanir gerðar.
„Þannig að ég bendi Fannari á
þetta, að hún sé í samfestingi og þar
af leiðandi ætti hún að vera nakin,
sitja þarna ber að ofan. Ég hugsaði
alls ekkert á þá leið að ég yrði nú að
reyna koma brjóstunum mínum í
mynd. Mig langaði bara að konur
myndu horfa á þetta og tengja, hvað
maður er asnalegur á klósettinu
þegar maður er í samfestingi. En allt
gerist svo hratt í svona tökum þann-
ig að við höfðum bara mínútu til að
ákveða af eða á. Á lokastundu var
ákveðið að það væri minni áhætta
að láta hana vera í peysunni sem
hún var í yfir, við þyrftum ekkert að
svara spurningunni um það hvernig
hún hefði komist allt í einu í peys-
una. Við vonuðum bara að enginn
tæki eftir því. Guð, ætli fólk horfi
núna á seríuna og bíði sérstaklega
eftir að sjá þennan samfesting?“
segir Vala hlæjandi.
Þannig hafi þau lent í þessari
dýnamík og umræðunni um hvort
hún ætti að vera ber eða ekki, en
niðurstaðan var að sleppa því í
þetta sinn.
„Við höfðum ekkert verið að
vinna með nekt í seríunum hingað
til og það væri kannski skrýtið að
byrja á því allt í einu. Við höfðum
alveg gert senur þar sem viðkom-
andi hefði kannski átt að vera nak-
inn. Við ákváðum að „play it safe“.
En þetta sat í mér, ég hugsaði að
hún hefði alltaf verið nakin. Þetta
var fyrsta og held ég eina skiptið
sem ég komst í eitthvert uppnám,“
segir Vala.
Venjulegt fólk án drama
Hún segir að í raun hafi það gerst
seinna, en ekki á settinu, þegar þau
ræddu annað atriði.
„Þá byrjaði ég aftur að tala um
þetta og sagði alvarleg við Fannar
að hann væri ekki alvöru femínisti
af því að hann leyfði mér ekki að
vera nakin á klósettinu,“ segir Vala
og þau hlæja bæði.
„Þetta er smá þannig að maður
þarf að taka ákvörðun á staðnum.
Þetta var ekki í handritinu og
tíminn var naumur, en ég hugsaði
að við skrifum þetta kannski bara
þannig næst, ef svipað dæmi kemur
upp,“ segir Fannar.
Vala segir að þetta hafi verið smá
öfugsnúin klemma í raun, miðað
við sögur af því þegar leikkonur séu
taldar á að sýna meiri nekt en þær
kæri sig um.
„Þarna átti ég ekki að vera nakin
en ég fór að berjast fyrir að fá að vera
það. Smá skrýtið. Mér finnst fallegt
og gaman að þetta hafi verið stærsta
málið sem kom upp. Mér finnst smá
heillamerki að þetta hafi verið eina
vandamálið,“ segir Vala.
„Samstarfið gekk mjög vel. Ég
man ekki eftir neinu öðru sem kom
upp á eða einhverju sem varð að
drama,“ segir Fannar að lokum.
steingerdur@frettabladid.is
Serían fjallar um tvær leikkonur sem eru að fóta sig í lífinu og bransanum.
L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 57L A U G A R D A G U R 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9
0
5
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
F
3
-6
7
5
0
2
3
F
3
-6
6
1
4
2
3
F
3
-6
4
D
8
2
3
F
3
-6
3
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
0
4
s
_
4
_
1
0
_
2
0
1
9
C
M
Y
K