Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd - 01.05.1998, Qupperneq 14
12
Utanríkisverslun 1997 - vöruflokkar og viðskiptalönd
2. yfirlit. Vöruskiptajöfnuður árin 1988-1997
í milljónum króna Útflutt fob Innflutt fob V öruskiptaj öfnuður
Á gengi hvers árs Á gengi ársins 1997 1 Hlutfall af vlf., %
1988 61.667 62.243 -576 -905 -0,22
1989 80.072 73.129 6.943 8.661 2,25
1990 92.625 88.085 4.540 5.084 1,25
1991 91.560 94.797 -3.237 -3.625 -0,82
1992 87.833 88.224 -391 -436 -0,10
1993 94.658 82.576 12.082 12.430 2,94
1994 112.654 93.243 19.411 18.985 4,46
1995 116.607 103.539 13.068 12.793 2,89
1996 125.690 124.836 854 837 0,18
1997 131.213 131.326 -113 -113 -0,02
' Miðað er við meðalgengi á vðruviðskiptavog; samkvæmt þeim mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 1997 2,0% lægra en árið áður.
Mynd 1. Utanríkisverslun árin 1985-1997
Milljónir króna á gengi hvers árs
Verð- og magnbreytingar 1996-1997
3. yfirlit sýnir samanburð á utanríkisverslunartölum á föstu
gengi árin 1996 og 1997. Þetta yfirlit er með sama sniði og
sú fréttatilkynning sem Hagstofan gefur út í hverjum mánuði
um framvindu helstu flokka innflutnings og útflutnings í
samanburði við næstliðið ár. Venja hefur verið að umreikna
tölur fyrra árs til meðalgengis líðandi árs til þess að eyða
áhrifum gengisbreytinga á verðmætistölur svo að saman-
burður milli ára verði marktækari en ella.
í 3. yfirliti kemur ífam að verðmæti útflutnings jókst um
tæp 7% frá árinu 1996 til ársins 1997 og verðmæti inn-
flutnings fob jókst um rúm 7% þegar tekið hefur verið tillit
til 2,0% lækkunar á meðalverði erlends gjaldeyris milli ára.
Verðmæti sjávarafurða jókst um 3%, reiknað á sama gengi
bæði árin. Verðmæti iðnaðarvara jókst um 17% en þar af
jókst útflutningur á áli um 28%. Verðmæti útflutts kísiljáms
stóð því sem næst í stað. Mikil aukning varð á innflutningi
ijárfestingarvara, 19%, og á innfluttum fólksbílum, 31%, en
á móti kom að innflutningur á skipum dróst saman um 51 %,
reiknað á sama gengi bæði árin.
Samkvæmt útreikningum Þjóðhagsstofnunar á einingar-
verðsvísitölum útflutnings og innflutnings, sem sjást í 4. yfirliti,
hækkaði útflutningsverð í krónum um 2,5% ífá árinu 1996 til
ársins 1997. Samkvæmt sömu heimild lækkaði innflutningur í
krónum um 0,8% árið 1997 miðað við árið á undan.